30. júní - 28.06.1968, Blaðsíða 4

30. júní - 28.06.1968, Blaðsíða 4
4 30. JÚNÍ Forsetakosningar og flokkssjónarmið Það hefur nú borið til tíðinda, að Morgunblaðið hefur lýst stuðningi sínum við framboð Gunnars Thoroddsens, þvert ofan í yfirlýsingar, sem fyrir liggja um það, að stjórnmálaflokkar létu forseta- framboðin afskiptalaus. Að vísu bregður ritstjórn blaðsins því fyrir sig, að Morgunblaðið sé eign hlutafélagsins Árvakurs, en ekki Sjálfstæðisflokks- Ins, og sé félaginu því heimilt að styðja þann til forsetakjörs, sem því sýnist. Blaðinu 30. júní og skrifstofu stuðningsmanna dr. Kristjáns Eldjárns hefur borizt fjöldi fyrirspurna frá kjósendum, sem flestir eru flokksbundnir, um stöðu flokksbundinna kjósenda við forsetakjörið 30. júní. Svör og leiðbeiningar blaðsins og skrifstofunn- ar eru einkum þessi: 1. Frambjóðendur til forsetakjörsins eru utan- flokka og óháðir stjórnmálaflokkunum. Á þeim forsendum leita þeir kjörfylgis hjá kjósendum, flokksbundnum sem óflokksbundnum, og afsala sér með því fyrrverandi flokkssjónarmiðum. 2. Stjórnmálaflokkarnir hafa allir samþykkt hlut- leysi við forsetakosningarnar. Sérhver flokks- maður er þvl frjáls og óbundinn af flokkssam- þykktum um val forseta. 3. Dr. Kristján Eldjárn hefur ekki haft teljandi af- skipti af stjórnmálum, en hinn frambjóðand- inn, dr. Gunnar Thoroddsen, var áður áhrifa- mikill sjálfstæðismaður, en er utanflokka í fram- boði. Af þvl tilefni er athygli kjósenda Sjálf- stæðisflokksins sérstaklega vakin á því, að for- maður flokksins, dr. Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra, hefur skýrt frá þvl í viðtali í Morgunblaðinu 9. júní, að miðstjórn og þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins hafi samþykkt ein- róma og ágreiningslaust að láta forsetakjörið afskiptalaust og að flokksmenn séu frjálsir og óbundnir af samþykktum flokksins um val for- seta. Dr. Gunnar Thoroddsen hefur því ekki umboð Sjálfstæðisflokksins og er ekki á hans ábyrgð f framboði; en áskoranir kjósenda úr öllum flokkum réðu miklu um framboð dr. Kristjáns Eldjárns. Því er augljóst, að úrslit kosninganna hafa ekki áhrif á álit eða stöðu Sjálfstæðisflokksins fremur en annarra flokka. Það breytir því engu í þessu efni, þótt útgáfu- fyrirtæki Morgunblaðsins, Árvakur h.f., hafi í for- ystugrein blaðsins hinn 23. júní lýst yfir stuðningi við dr. Gunnar Thoroddsen. Morgunblaðið telur eftir sem áður, að það hafi vafalaust verið „hyggilegt af stjórnmálaflokkunum að taka ákvörðun um að hafa sem slíkir ekki afskipti af forsetakosningunum, þvl að fólkið vill fá að velja forseta án fyrirmæla flokks- stjórna." ÓLAFUR MIXA, læknir: Varðar mestu hvað maður ER í sjónvarpsviðtaU við forseta- efnin hinn 19. júní s.l. var oft minnzt á „andstæðinga" dr. Gunnars Thoroddsens. Enginn er ég andstæðingur dr. Gunn- ars. Eg hrósa happi yfir því að mega velja milli tveggja valin- kunnra manna með gagnmerka fortíð í virðulegasta embætti íslenzku þjóðarinnar. Og ég kýs dr. Kristján Eldjárn. Orsakirn- ar eru einkum þessar: 1. Embætti forseta íslands er æðsta virðingarembætti þjóð- arinnar. Hann er fulltrúi henn- ar. Valið nú stendur ekki um glæsimennsku og höfðingja- snið, því að báðir eru frambjóð endurnir þeim kostum búnir. En maður með bakgrunn dr. Kristjáns, kunnáttumaðurinn um fólk og sögu lands vors, verðmæti þess í munum, list- sköpun, starfi og verki frá fyrstu tíð, — slíkur maður er tvímælalaust verðugasti full- trúi íslenzku þjóðarinnar. 2. Sá, sem hefur í áratugi bar izt í fremstu víglínu íslenzkra stjórnmála í öllum þeirra hrá- skinnaleik hagsmunabaráttu, hrossakaupa og valdastreitu, getur með engu móti orðið allra bróðir þrátt fyrir sérstakan á- setning. Hann hlýtur óhjá- kvæmilega að eiga óvildarmenn, hann hlýtur að hafa vissar hlut drægar, persónulegar tilfinning ar gagnvart fyrrverandi starfs- bræðrum eða andstæðingum, eiga sumum gott upp að inna, en öðrum grátt að gjalda, flokk um eða einstaklingum. Þótt slík ur maður gerði sér, eins og bú- ast má við, far um að sýna full an drengskap í forsetaembætti, getur hann aldrei verið samein ingarfulltrúi heillar þjóðar. Það væri og ekki nema mannlegt, að einhverjar gamlar hræring- ar gætu haft áhrif á vissar emb ættisgjörðir slíks forseta, ef til þeirra skyldi koma, og hverjar sem þær kunna að verða. Dr. Kristján Eldjárn er ó- snortinn af vígaferlum stjórn- málabaráttunnar. 3. Mögnuð mælska og skrýdd orðgnótt, brýnd og skírð í eldi orðastimpinga margra ára stjórnmálabaráttu, er sannar- lega falleg og aðdáunarverð og mætti prýða hvern góðan for- seta. En ekki er þó síður reisn að sönnu látleysi. í ofangreind- um sjónvarpsþætti voru báðir frambjóðendurnir spurðir líkra spurninga um eftirlætisiðju eða frístundastarf þeirra hvors um Ólafur Mixa sig. Stjórnmálamaðurinn, sem staðið hefur í fremstu röð flokkabaráttunnar og hæstu embættum hennar, svaraði: kennsla og fræðastörf. En fræðimaöurinn svaraði ekki: þjóðmál. Hann svaraði: bara starf mitt og fræðimennskan. Það varðar mestu, hvað maðurinn er. Reisuleg hógværð og trúverðug framkoma eru þeir kostir, sem umfram allt skyldu prýða þjóðhöfðingja. Slíkir kostir prýða dr. Kristján Eldjárn. 4. Eg er ekki andstæðingur dr. Gunnars Thoroddsens. En e.t.v. er ég andstæðingur andstæð- inga dr. Kristjáns Eldjárns. Þeir segja: Dr. Eldjárn hefur skrifað grein í Frjálsa þjóð (án þess að nefna innihald hennar, sem var fræöilegs eðlis). Þess vegna er hann kommi, sem er . hræðilegt, og þið skuluð vara ykkur á því. Þeir segja: Dr. Eldjárn var einn af sextíumenn ingunum, sem beindu sér gegn samkeppnislausum sjónvarps- sendingum erlendrar þjóðar (Bandaríkjamanna); þess vegna er hann einfaldur NATO andstæðingur og tvöfaldur kommi. Þeir segja: Hvorugur frambjóðendanna er bindindis- maður; þess vegna eru þeir í sama báti i þeim efnum. Bæði aðferðir þeirra og efnis legt innihald bera því þrátt fyr ir allt keim gamalkunnra bar- dagaaðferða. Þeir hafa voldug- ustu dagblöðin og kunna að beita þeim, svo að lítið beri á. Þeir hafa mikið fjármagn. En þeir hafa ekki hreinan skjöld. Framh. á bls. 15.

x

30. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.