30. júní - 28.06.1968, Page 5

30. júní - 28.06.1968, Page 5
30. JÚNÍ 5 B tbl. Föstudagur 13. júní 1952; S3SE: Prentsmiðjs Motgunblaðsins. líí&fiss' Thös'ss ..... f sjónvarpsþættl stuðnings- manna dr. Gunnars Thorodd- sens 24. júní, var vitnað til um- mæla Ólafs Thors um forseta- embættið. Sú stutta tilvitnun, sem þar var tekin upp, gefur alveg ranga hugmynd um merk- lngu orða Ólafs, eins og sanna má með því að athuga lengri kafla úr máli Ólafs og síðarl ummæli hans um þetta. Ólafur Thors skrifaði í Morgunblaðinu SKÚLI ÞÓRÐARSON, form. verkalýðs- og sjó- mannafélags Akrancss: Ég hef reynt að kynna mér ummæli beggja frambjóð- enda og stuðningsmanna 1 blöðum þeirra og sjónvarpi, einnig ummæli ýmlssa mætra manna, er lýst hafa fyrir þjóðinni í aðalatriðum, í hverju starf forseta íslands er helzt fólgið. Persónulega hef ég hvorug um frambjóðanda kynnzt. Menn úr öllum flokkum hafa skorað á Kristján Eld- Járn að gefa kost á séi til framboðs og hann er til kvaddur úr hópi valinkunnra manna vegna sinna miklu vinsælda og prúðmannlegrar framkomu í starfi, er hann hefur gegnt mörg undanfar- in ár og lagt einstaka alúð við, enda má segja, að hann hafi vaxið með starfi sínu til þess álits að vera valinn sem forsetaefni. Virðist hann lík- legur sigurvegari, ef dæma má eftir undirtektum, hvar sem hann hefur komið fram, en þær eru á einn veg jafnt hjá ungum sem öldnum. 2. febr. 1952 í minningargrein um Svein Björnsson forseta: „En aðal vandi forsetaembætt- isins liggur þó í allt öðru. Hon- um er ætlað að vita allt á sviði stjórnmálanna, hafast ekki að, Skúli Þórðarson. Kristján Eldjárn er verð- ugur fulltrúi þjóðarinnar, hafinn yfir alla pólitíska togstreitu. Því mun þjóðin sýna hug sinn sunnudaginn 30. júní með því að fylkja sér um kosningu hans. en vera stöðugt viðbúinn. Þegar svo örlagastundln rennur upp, þegar stjórnarkreppur ógna og yfir vofir glötun mikilla verð- mæta, vegna þess að þjóðar- skútan velkist um í ólgusjó stjórnmálanna, eins og stjórn- laust rekald, er þessum afskipta- litla manni ætlað að grípa um stjórnvölinn, taka málin í sín- ar hendur, firra þjóðina voða og koma þjóðarskútunni heilli í höfn. Án efa er þetta alls staðar erfitt verk þar sem forsetavald- ið er með svipuðum hætti sem hér á landi. En vissulega er það hvergi jafn vandasamt sem hér, vegna hinna lágkúrulegu sjónarmiða, sem oft leiða af smæð þjóðarinnar. Það er afar þýðingarmikið að forsetl íslands gerþekkl völundarhús stjórnmál- anna. Hann þarf að geta leikið á hljóðfærl sitt eins og snilling- ur“. Ólafur Thors ræddi síðan aft- ur um þessi ummæli sín og merkingu þeirra í Morgunblað- inu 13. júní 1952. Þar segist hann hafa talið síðustu málsgreinina kjarna málsins og bætir síðan við: „Það var í þessu skyni, ein- mitt til þess að forsetinn gæti „leikið eins og snillingur á hljóð- færi sitt“, að ég taldi honum nauðsynlegt, að lífsstarf hans hefði veitt honum svo mikla innsýn í mannlega sál, að hon- um yrði auðratað um öll „völ- undarhús stjórnmálanna". Mér var þá og er enn vel ljóst, að sú þekking myndi auðvelda forset- anum vandasama samninga við stjórnmálamennina og sættir milli þeirra." Verðugur fulltrúi þjóðarinnar ÓSKAR HALLDÓRSSON, lektor: „Engan hóf á efstu skör yfirborðið glæsta” Dr. Kristján Eldjárn hefur ekki sótzt eftir embætti forseta íslands. Hann varð við óskum mikils fjölda íslendinga um aS gefa kost á að takast á hendur vanda og vegsemd þessarar stöðu. Væntanlegt framboð Gunnars Thoroddsens var þá alkunnugt, en jafnframt var Ijóst, að þar hafði þjóðtn ekki fundið sameiningartákn sltt. A8 öðrum kosti hefði framboð dr. Kristjáns ekki vakið siíkan fögnuð um land allt sem raun varð á. Kosningabarátta Kristjáns Eldjárns hefur verið í fyllsta samræmi við þennan aðdrag- anda. Hún einkennist i hvívetna af hógværð og drengskap. Kristján er manna háttvísastur, en yfirborðs- eða sýndar- mennska er ósamrýmanleg fari hans. Kristján Eldjárn er skarpur vísindamaður og hefur glöggan skilning á fornum og nýjum verðmætum þjóðar sinnar. Menntun hans og hæfileikar samfara mannkostum og far- sæld í starfi hafa greitt honum götu til æðsta embættis þjóðar- innar. Óskar Halldórsson. 3 0. JÚNÍ Ritnefnd: Bjarni Vilhjálmsson (ábm.), Hersteinn Pálsson, Jónas Kristjánsson, Ragnar Amalds, Sigurður A. Magnússon. Setning: Prentsmiðjan Edda. Prentun: Prentsmiðja Þjóðviljans.

x

30. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.