30. júní - 28.06.1968, Blaðsíða 6
6
30. JÚNÍ
Stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjárns í Norðurlandskjördæmi eystra héldu kynningarfund á Akureyri laugardaginn 22. júní.
Ætlunin var að halda fundinn á íþróttavellinum, en vegna veðurhörku var hætt við það og fundurinn haldinn í íþróttaskála bæj-
arins á Gleráreyrum. Voru þar saman komnir um 2500 menn, og hefur svo fjölmennur fundur aldrei verið haldinn norðanlands i
manna minnum. Margir fundarmenn voru langt að komnir, og m. a. höfðu 50—60 bílar Þingeyinga samflot vestur yfir Vaðlaheiði.
Fundarstjóri var Ámi Kristjánsson menntaskólakennari, en sjö menn fluttu ávörp og ljóð á fundinum. Dr. Kristján Eldjárn og frú
Halldóra voru heiðursgestir fundarins, og flutti dr. Kristján ávarp í fundarlok. Var þeim hjónum ákaflega vel fagnað, og þeir
sem viðstaddir voru ljúka upp einum munni um það, að fundurinn hafi verið frábærlega áhrifamikill og eftirminnilegur.
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON, framkvæmdastjóri, Stöðvarfirði:
VALIÐ ER AUÐVELT
Hinn 30. júní n. k. gengur
þjóffin aff kjörborðinu til aff
velja hinu unga lýðveldi forseta.
í kjöri eru tveir hámenntaðir
menn, báffir meff doktorsnafn-
bót, svo aff þeirra hluta vegna
geta þeir eflaust, hvor sem er,
gegnt hinu virðulega forseta-
embætti meff sóma.
Þar sem hér er ekki um flokks-
póUtískar kosningar aff ræða,
hlýtur val flestra kjósenda að
vera bundiff við þeirra eigið mat
á forsetaefnunum.
Ég þekki hvorugan frambjóð-
andann persónulega, svo að ég
get ekkl gert upp á miili þeirra
á þeim grundvelli, en tel að báð-
lr getl þeir vegna menntunar
slnnar og annarra hæfileika,
meðfæddra og áunninna, full-
komlega valdiff þeim vanda aff
gegna íorsetaembættinu, svo að
af þelm sökum ættl ég erfitt
um val.
Bn ég lít þannig á, að fleira
þuríl til að koma en að forset-
inn sé þeim vanda vaxinn að
koma opinberlega fram á erlend-
um og innlendum vettvangi,
svo aff sómi sé aff.
Ég álít, að fyrst og fremst
þurfi forsetinn að vera samein-
ingartákn þjóðarinnar, sómi
hennar, sverð og skjöldur.
Hann þarf að skynja hjart-
slátt þjóffarinnar.
Hann þarf að skynja gróand-
ann í þjófflífinu.
Hann þarf að skilja hugsun-
arhátt alþýðunnar.
Hann þarf aff vera fordóma-
laus og án allrar undirhyggju.
Og hvaffa heilvita maður með
óbrjálaða dómgreind trúir því,
að maður, sem eytt hefur mest-
um hluta starfsævi sinnar í
fremstu víglínu íslenzkrar stjórn-
málabaráttu, þar sem á ýmsu
veltur um greinarmun á sönnu
og ósönnu, réttu og röngu og
flokkshagsmunir eru settir öllu
ofar, verði allt í einu svo íullur
xéttlætis, að hann geti orðið
merkisberi hins bezta, sem býr
með þjóffinni?
Þaff þarf meiri trúgirni en guð
hefur gefiff mér til aff trúa slíku.
Óskertrar réttlætiskenndar og
siðgæðisvitundar er vænlegra að
leita annars staffar en í hópi
stjórnmálamannanna.
Því er valiff ekki erfitt í kom-
andl forsetakosningum fremur
en í þeim síðustu.
Af heilum huga greiði ég dr.
Kristjáni Eldjárn mitt atkvæði,
og ég trúi því, aff meff því vinni
ég þjóð minni gagn.
Guffmundur Björnsson.
KJÖRFYLGI
Kristjáns Eldjárns
„Þjóðkjör" ver heilli síðu í að birta skrá yfir alla
kaupstaði og hreppa landsins og finnur að því, að með-
mælendur dr. Kristjáns Eldjáms dreifist ekki jafnt á
sveitarfélögin og hljóti meðmælendur að hafa verið
mun fleiri en þrjú þúsund, sem er hámark skv. stjórnar-
skrá.
Þegar frambjóðandi nýtur svo almenns fylgis sem dr.
Kristján, má ætla, að fleiri óski að gerast meðmælendur
en þörf er fyrir skv. stjómarskrá, og er eðlilegt, að það
komi flatt upp á stuðningsmenn dr. Gunnars.
Ástæðulaust er fyrir „Þjóðkjör“ að gera ráð fyrir, að
kjósendur dr. Kristjáns reynist ekki vera úr öllum
byggðarlögum landsins, enda munu tvímæh af tekin á
kjördegi. Þó mun vonlítið um atkvæði úr Gmnnavík.