30. júní - 28.06.1968, Qupperneq 10

30. júní - 28.06.1968, Qupperneq 10
10 30. JÚNÍ INGVAR GÍSLASON, alþingismaður, Akureyri: Gætni í orðum og athöfnum mun tryggja Kristjáni Eldjárn farsæld - á forsetastóli Tvær meginástæður ráða því, að ég fagna mjög framboði Kristjáns Eldjárns til forseta- kjörs. í fyrsta lagi er það lýðræðis- ieg nauðsyn að kjósa forseta al- mennum kosningum nú, þegar mannaskipti eru óumflýjanleg I forsetaembættinu. Þegjandi „útnefning“ nýs manns í æðsta embættl þjóðarinnar hefði jafn gilt því að gera ákvæði stjórn- arskrárinnar um þjóðkjör for- seta að hlægilegum gervibók- staf. í öðru lagi hef ég ævinlega verið þeirrar skoðunar, að velja eigi forseta öðru fremur úr hópi þeirra, sem lítt eða ekki hafa verið við stjórnmál riðn- ir. Eins og forsetaembættinu nú er háttað, vil ég eiga þess kost að þurfa ekki að velja til for- seta umdeildan flokksforingja, nýkominn úr eldlínu dægur- málabaráttunnar. Mun svo fleir um farið. Framboð Kristjáns Eldjárns var þegar í upphafi og er enn með öllu óháð flokkspólitík, enda á hann formælendur og fylgismenn innan allra stjórn- málaflokka. Kristján Eldjárn hefur allt það í fari sínu, sem prýða má mann í embætti forseta ís- lands. Hann er hófsemdarmað- ur í skoðun og gerð, óflokks- bundinn og nálega afskiptalaus um stjórnmál alla ævi, þó að nafn hans hafi einhvern tíma fyrir ævalöngu staðið neðarlega á framboðslista eins stjórnmála- flokkanna í Reykjavik. Það ger- ir hann heldur ekki að stjórn- Ingvar Gíslason málamanni né geta talizt stjórn málaafskipti í eiginlegum skilningi, þótt hann hafi fyrr á árum skipað sér í fylking með mönnum úr öllum stjórnmála- flokkum til andstöðu við ein- stök afmörkuð og mjög umdeil- anleg málefni. En um nærfellt 20 ára skeið hefur Kristján Eldjárn ekkert skipt sér af stjórnmálum af einu eða neinu tæi. Svo lítið sem hann lét til sín taka í opinberum málum fyrr á árum, mótaðist afstaða hans jafnan af viðhorfum hins gætna manns, túlkuð af hóf- semd og virðingu fyrir réttum lögum. Rangfærslur og endur- tekin ofstækisskrif Þjóðkjörs- ritstjóranna fá ekki breytt þeirri sannfæringu, sem al- menningur á íslandi hefur fyrir óhlutdrægnl hans, réttsýni og einlægri þjóðrækni. Ósæmilega er og langt til seilzt í óheilind- um að gefa i skyn, að Kristján Eldjárn sé bundinn trúnaði við annarleg öfl eða sjónarmið. Margt myndi betur fara, ef þjóðin hefði í forystu á sem flestum sviðum hófstillingar- menn af hans gerð. Kristján Eldjárn er vel til þess fallinn að vera íslenzkur þjóðhöfðingl. Hin óvenju nánu kynni hans af fólkinu í iand- inu og högum þess til sjávar og sveita og eðlislæg gætni í orð- um og athöfnum mun tryggja honum farsæld í vandasömum stjórnarstörfum. Prúðmennska hans og alhliða menntun, þ.á.m. ágæt málakunnátta og reynsla í umgengni við háttsetta menn heima og erlendis, gerir hann hverjum manni hæfari til þess að koma fram sem æðsti full- trúi þjóðar sinnar, hvar og hve nær sem er. Hann hefur sér við hlið frábæra konu að gáfum og kvenlegu atgervi. Hann verður manna sízt bendlaður við sér- hagsmuna- eða stjórnmálasam tök. Gott er að geta kosið slikan frambjóðanda. Frá fundinum í Stapa Stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjárns héldu samkomu að kvöldi 25. júní í hinu glæsilega félags- heimili Stapa í Ytri-Njarðvík. Fundur þessi var einstæður meðal kynningarfunda forsetacfnanna fyrir þá sök, að þar komu fram þingmenn allra flokka í Reykjaneskjördæmi. Fundarstjóri var Jón Ármann Héðinsson alþingismaður, en hinir þingmennirnir, sem töluðu á fundinum, voru Gils Guðmundsson, Jón Skaftason og Pétur Benediktsson. Er ræða Péturs birt á öðrum stað hér í blaðinu. Auk þingmannanna fjögurra tóku til máls fimm menn aðrir á fundinum: Andrés Kristj- ánsson, ritstjóri, Kópavogi, Árni Gunnlaugsson, lögfræðingur, Hafnarfirði, séra Björn Jónsson Keflavík, Kristinn Lárusson, Sandgerði, og Páll Jónsson, Keflavík. — Samkomuhúsið var alskip- að, og auk þess stóðu menn inni í salnum og frammi í anddyrinu svo sem þéttast mátti: Var þarna saman komið nokkuð á þriðja þúsund manns. Heiðursgestir fundarins voru dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra, kona hans. — Ræðumönnum mæltist skörulega. Var máli þeirra ákaflega vel tekið og mikill bjartsýnishugur rikjandi á fundinum. Að lokum flutti dr. Kristján Eldjám snjallt og hugnæmt ávarp, og fundarmenn hylltu þau hjónin ákaft og þökkuðu þeim komuna.

x

30. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.