30. júní - 28.06.1968, Page 12
12
30. JONI
PÁLMI PÉTURSSON, kennarl
EMBÆTTI SEM
ÞJÓÐIN SJÁLF VEITIR
Því hefur stundum verið á
loft haldið, að embættaveiting-
ar ráðherra séu um of litaðar
pólitískum viðhorfum, og liggja
þar, að því er virðist, allir flokk-
ar undir ásökunum.
Það er því fagnaðarefni, að
veitingavaldið til forsetaembætt-
ls er í höndum fólksins sjálfs.
Þjóðin veitir, með frjálsum
kosningum, æðsta embætti
landsins og þarf ekki við neinn
að sakast nema sjálfa sig,
hvernig til uekst; á herðum
hennar hvílir ábyrgðin, sem er
rökrétt afleiðing valdsins. Von-
andi verður það ætíð svo, sem
nú og áður, að valið er á milli
manna úr röðum beztu sona
landsins.
Almennur vilji er á að hefja
þessar kosningar yfir hversdags-
mennskuna, pólitískar erjur og
smámunasemi. Sú hætta er þó
alltaf yfirvofandi, að það tak-
ist ekki, ef kosið er á milli
manna sem staðið hafa í póli-
tísku sviðsljósi og ýmist níddir
af andstæðingum eða hafnir til
vegs af samherjum. Segir sig
sjálft, að erfitt kann að vera
fyrir kjósendur að meta raun-
gildi umsagna um slíka menn.
Stjórnmálaflokkarnir ákváðu að
láta þessar kosningar afskipta-
lausar að sinni, og lofaði það
strax góðu.
— Og svo kom fréttin.
Eins og vorþeyr fór hún um
landið, mitt í vetrarkuldanum.
Hvarvetna yljaði hún fólki. Alls
staðar birti yfir svip manna.
„Dr. Kristján Eldjárn hefur loks
gefið kost á sér til forsetakjörs",
gekk frá manni til manns. Eng-
um getur hafa skotizt yfir að
veita eftirtekt þeirri almennu
Kosningasjóður okkar
þarfnast
liðsinnis ykkar
Ragnar Jónsson
Kosningaskrifstofur
stuðningsmanna dr. Kristjáns Eldjárns á kjördegi í nágrenni
Reykjavíkur:
KEFLAVÍK:
Aðalskrifstofa á kjördegi er í Aðalveri, sími 1516.
Kosningaskrifstofa er einnig að Hafnargötu 57, sími 2240,
og er það bílasími og þar eru veittar upplýsingar um kjör-
skrá.
Keflvíkingar, látið skrá ykkur til starfa á kjördegi og lánið
bíla.
HAFNARFJÖRÐUR:
Kosningaskrifstofan er að Strandgötu 4B. Hafið samband
við skrifstofuna og látið skrá ykkur til starfa á kjördegi eða
lánið bíla. Símar 52727 og 52728.
SELTJARNARNES:
Kosningaskrifstofan er á Vallarbraut 16.
Seltjamamesbúar, komið í skrifstofuna eða hringið og
látið skrá ykkur til starfa á kjördegi. Einnig þeir, sem geta
lánað bíla. Símar: 13206 og 10655.
GARÐAHREPPUR:
Kosningaskrifstofan á kjördegi að Lækjarfit 2, símar 52733
og 52734. Opið allan laugardag og sunnudag.
KÓPAVOGUR:
Vesturbær: Kosningaskrifstofa á Borgarholtsbraut 43, sím-
ar 42565 og 42634. Upplýsingar um kjörskrá og bíla í báðum
símunum.
Austurbær: Kosningaskrifstofa í Bræðratungu 17, símar
42427 og 42428. — Upplýsingar um kjörskrá og bíla í báð-
um símunum.
Kópavogsbúar, komið á kosningaskrifstofurnar, veitið
upplýsingar, látið skrá ykkur til starfa á kjördegi eða lánið
bíla.
AKRANES:
Kosningaskrifstofan er í félagsheimilinu Röst, sími 1716.
Kaffisala á kjördag á sama stað. Akumesingar, látið skrá
ykkur til starfa á kjördegi, einnig þeir, sem geta lánað bíla.
MOSFELLSS VEIT:
Kosnmgaskrifstofa Kristjáns Eldjáms verður að
Tröllagili. Opin sem hér segir: Laugardaginn 29. júní
frá 13 e.h. til kl. 22. Stmnudaginn 30. júní frá kl. 10
f.h. til 23 e.h. — Sími 66121
Fram að þeim tíma eru allcr upplýsingar gefnar í
símum 66121 og 66211.
Pálmi Pétursson
þjóðarhreyfingu, sem strax varð
vart, er fréttin barst um landið.
Hvernig stóð á þessu?
Svarið er einfalt.
Hér hlýddi kalli maðurlnn,
sem mikill hluti þjóðarinnar bað
um og gat sameinazt um. Hinn
hógværi menntamaður, sem
staðið hefur traustan vörð um
fjöregg íslenzkrar þjóðar, menn-
ingararf liðinna kynslóða, hinn
glaðværi nútímamaður, er met-
ur samtíð sína, hinn íhugull,
vökuli vísindamaður, sem lelt-
ar staðreynda og hefur það ætið,
er sannara reynist, hlnn síungi,
tildurlausi fulltrúl þess, sem
sannast er og göfugast í íslenzkri
manngerð.
Það er hamingja hverrar
þjóðar að eiga þess kost að
senda slíkan mann sem sameln-
ingartákn í æðsta embættl sltt.
Einmitt þess vegna kýs ég dr.
Kristján Eldjárn sem forseta is-
lenzka lýðveldisins.