30. júní - 28.06.1968, Side 16
16
30. JÚNÍ
HERSTEINN PÁLSSON
VÍÐA BLÁSA SVALVINDAR
Eins og menn vita, var í upp-
hafi kosningahríðarinnar gerð
tilraun til að bæta vígstöðu
Gunnars Thoroddsens með því
að telja almenningi trú um, að
íramboð hans væri stjórn Sjálf-
stæðisflokksins ekki aðeins
þóknanlegt, heldur væri sá mað-
Ólafur E. Einarsson.
Fylgið sannfæringu
ykkar. — Kjósið
dr. Kristján Eldjárn
Allt frá unglingsárum mín-
um hefi ég haft afskipti af
sveitarstjórnar- og alþingis-
kosningum hverju sinni, og
ekki hefur neinn vafi leikið
á skoðunum mlnum. Fylgt
hefi ég Sjálfstæðisflokknum
og frambjóðendum hans af
heilum hug.
Nú hefur einn af mínum
góðu vinum á Suðurnesium
furðað sig á þeirri ákvörðun
minni að kjósa dr. Krístján
Eldjárn við forsetakjörið 30.
Júní n.k.
Við þennan góða vin minn
og fleiri vil ég segja þetta:
Allir stjórnmálaflokkarnir
hafa lýst því yfir, að forseta-
kosningarnar skuli vera ó-
pólitiskar að þessu sinni.
Auðvitað á hver og einn að
kjósa eftir sinni beztu sann-
færingu, ekki sízt þegar öll
flokksbönd hafa verið leyst.
— Minnugir forsetakosning-
anna 1952, sem þá voru póli-
tlskar, og úrslitanna, sem
Framh. á bls. 15.
ur í rauninni frambjóðandi þess
flokks við forsetakosningarnar.
Hvort tveggja er rangt, eins
og lýst hefir verið yfir opinber-
lega — meðal annars af Bjarna
Benediktssynl forsætisráðherra.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
hefir hvorki gert samþykkt um,
að framboð þetta sé henni sér-
staklega að skapi, né heldur að
hún veiti Gunnari Thoroddsen
brautargengi, svo að flokksmenn
eigi að styðja hann.
Hitt er rétt, að einstakir ráð-
herrar flokksins hafa látið birta
eftir sig greinar eða jafnvel flutt
ræður, þar sem þeir lýsa stuðn-
ingi við Gunnar Thoroddsen
vegna stjórnmálaafskipta hans.
Þeir hinir sömu sem studdu séra
Bjarna Jónsson 1952, af því að
hann var ekki stjórnmálamaður,
berjast nú gegn þeim rökum og
kenningum, sem þeir settu fram
þá. Er nokkur furða, þótt al-
mennlngur hafl litla trú á „rök-
um“ slíkra manna, sem þann-
ig snúast?
Raunar mætti einnig spyrja
þessa menn, hvort það sé ekki
mikil vanrækslusynd hjá þeim,
úr því að forseta er slík nauð-
syn að hafa vaðið forir stjórn-
málanna, að þeir skuli ekki hafa
reynt að breyta stjórnarskránni
á þá leið, að þjóðin sé firrt þeim
voða, sem fólginn er í því, að
þar eru engar skorður við því
reistar, að aðrir séu færir um
að gegna embætti forseta ís-
lands.
Annars verður mjög að efast
um, að allir þeir, sem hafa vitn-
að með Gunnari Thoroddsen,
geri slíkt sem sjálfboðaliðar. Er
miklu sennilegra, að þeir hafi
látið til leiðast fyrir þrábeiðni
þess manns, sem verður þess
glögglega var, að framboð hans
finnur ekki hljómgrunn með
þjóðinnl. Og það liggur næstum
1 hlutarins eðli, að sumir
stjórnmálamenn telji stjórn-
málavafstur nauðsynlega for-
sendu framboðs til forseta. Ella
telja þeir sig kippa stoðunum
undan starfi og striti sjálfra sín.
Ef til vill finnst þeim, að þeir
verði að auðsýna „stéttvísi", þeg-
Frh. á bls. 15.
Ávarp til kjósenda
Nú eru örfáir dagar til forsetakjörs. Það er nú ijóst orðið,
að framboð dr. Kristjáns Eldjárns til hins háa embættis á
geysiiegu fyigi að fagna með þjóðinnl. Undirtektir almenn-
ings hafa verið einstaklega góðar, hvar sem stuðningsmenn
hans hafa boðað samkomur. Feikilegur fjöldi einstakiinga
hefur auk þess komið til fylgis við framboð dr. Kristjáns og
boðið fram krafta sína til að vlnna að sigri hans. Þessar und-
irtektir eru okkur, sem frá öndverðu áttum hlut að framboð-
inu, nægileg sönnun þess, að sú ákvörðun hafi verið rétt og
heillavænleg.
En sigur vinnst ekki fyrr en á kjördegl. Þótt horfur séu
glæsilegar, er of snemmt að slaka á. Því viljum við skora á
stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjárns að sameina nú alla
krafta sina við lokaátakið. Markmið okkar er ekki naumur
meirihluti, markmiðið er stórsigur dr. Kristjáns Eldjárns 30.
júní. Þjóðin á þess nú kost að sameinast um glæsilegt for-
setaefni. Þeim kosti mun hún ekki hafna, en hvert eitt at-
kvæði, sem fellur dr. Kristjáni Eldjárn í skaut, stuðlar að
þjóðlegri einingu og þjóðlegri reisn.
Keppum nú sem fyrr af prúðmennsku og drengskap!
Leggjumst öll á eitt! Kjósum Kristján!
Benedikt Blöndal. Hilmar Foss. Kristján Karlsson.
Stefán Jóh. Stefánsson. Guðmundur Hjartarson.
Jóhannes Elíasson. Kristján Thorlacius.
Steingrímur Hermannsson. Ilatldór E. Sigurðsson.
Jónas Árnason. Ragnar Jónsson. Svandís Skúladóttir.
Hersteinn Pálsson. Karl Guðjónsson. Sigurður Guðmundsson.
Þorsteinn Pétursson. Örlygur Geirsson.
GUNNAR GUÐBJARTSSON
form. Stéttarsambands bænda:
í nánum tengslum
við fornan
menningararf
íslendingar eru sjálfstæð þjóð
fyrir það, að þeir hafa varðveitt
sitt sérstæða tungumái nær
óbreytt um þúsund ár og við-
haldið sérstakri þjóðmenningu,
sem hefur þroskazt í sambúð
þjóðarinnar við harðbýlt land
og duttlungasama veðráttu frá
upphafi íslandsbyggðar.
Allmikið hefur á því borið
síðustu ár, að lítið sé gert úr
gildi þjóðmenningar okkar, að
ekki sé hirt um verndun móð-
urmálsins og vanmetið sé gildl
okkar fornu og þjóðlegu atvinnu-
hátta, landbúnaðar og sjávar-
útvegs, einmitt þeirra þátta,
sem hafa tengt þjóðina land-
inu og náttúruöflunum og verið
styrkustu stoðirnar í við'haldi
þjóðmenningar okkar. Þetta van-
mat hefur ekki hvað sízt beinzt
að landbúnaðinum, hlut bænda-
stéttarinnar í þjóðlífinu og sér-
stöku hlutverkl hennar í við-
haldl þjóðmenningar okkar og
tengslunum við landið og for-
tíðina.
í þessu vanmatl felst mikll
hætta fyrir sjálfstæði þjóðar-
innar, og getur það leitt tll þess,
að við glötum rétti okkar til
sjálfstæðrar tilveru sem þjóðar.
Forsetl landsins getur miklu
fremur en aðrir menn haft áhrif
á hugsunarhátt fólksins í land-
inu I þessu efni sem öðrum.
Hann hefur það hlutverk, að
mínum dómi, að vekja þjóðina
til aukins skilnings á þelm
þáttum, sem mestu orka um
sjálfstæði hennar og þjóðarvit-
und.
Nú eigum við völ á forsetaefni,
sem er uppalið I sveit, 1 nánum
Framh. á bls. 7.