Alþýðublaðið - 05.11.1919, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.11.1919, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þetta er þung ásökun, en höí. víkur ekki frá henni. Helztu atriðin, sem honum finst skifta máli, eru þessi: 1. Höfuðnauðsynjar og fram- leiðsla hverrar þjóðar verða vegna almenningsheilla og velferðar að vera eign þjóðarinnar og undir umsjá hennar. 2. Það er lífsskilyrði að þjóðin hefjist handa til að halda einstaka vörum, svo sem kolum og timbri. 3. Svo og að ríkið hafi hönd í bagga með öllum vöruflutningi. 4. Það hefir sannast, að hagn- aðarvon einstaklinganna er ekki til aÖ auka né útbreiða fram- leiðsluna. 6. Krafan um eign hins opin- bera er um heim allan orðin afarsterk síðustu 20 árin og hefir borið svo góðan árangur, að aldrei hefir heyrst, að ríki eður borg hafi látið af hendi fenginn eignar- rétt. -f- Spitzbergen. Ein af ráðstöfunum friðarráð- stefnunnar er sú, að Noregur fái Spitzbergen til eignar og umráða. Varð Norðmönnum þetta hið mesta gleðiefni, því menn höfðu borið kvíðboga fyrir því, að Englending- ar myndu, sökum þess hve landið er kolaauðugt, skoða það sem hættulegan keppinaut í framtíð- inni, og því slá eign sinni á það- Þessi ráðstöfun mun hafa mælst vel íyrir, því landið liggur næst Noregi allra landa, enda kannað og numið af Norðmönnum og Sví- um að mestu. Norðmenn hafa nú um nokkurra ára skeið starírækt þar stórar kolanámur og voru Englendingar og Rússar einnig byrjaðir á því fyrir ófriðinn. 'Spitzbergen (Tindafjöll) er eyja- klasi í Norðuríshufinu norður af Noregi. Liggja þær milli 76 og 80 br.gr. en 5 br.gráðum (300 sjó- mílum) norðar en nyrsti oddi Nor- egs. Eyjarnar eru hálendar, strend- urnar vogskornar og sæbrattar. Að flatarmáli eru þær 64.000 km. □ eða nær 2/3 af flatarmáli ís- lands, en stærsta eyjan, Vest, er nál. 40.000 km, Q Loftslagið er mjög milt eftir' legu landsins, er það því að þakka að Golfstraumurinn streymir að suðvesturströndinni. Mestur hiti er 13° Cels. en kuldi h-35°. Veðr- átta er þar mjög óstöðug og þok- ur miklar. Á veturna umlykur haf- ís strendurnar en á sumrin eru þær auðar, einkum vesturströndin. Jurtagróður og dýralíf er þar fá- skrúðugt sem í öðrum heimskauta- löndum, en mikið er þar af ein- stökum tegundum dýra, svo sem, blárefum, ísbjörnum, hreindýrum, og í sjónum, rostungum, selum og mikið af fugli. Fiskimið eru þar góð og kemur þar mikið af sel- veiðaskipum og öðrum fiskiskipum á hverju ári. Þangað kom mikið af ferða- mönnum fyrir stríðið og komu þýzku skemtiskipín er hingað komu fyrir stríðið þar venjulega við í leiðinni. Það er því eigi lítið happ fyrir Norðmenn að hafa hlotið landið til eignar, og má segja að það hafi verið happ fyrir Norðurlanda- þjóðirnrr yfirleitt, því nú þurfa þær væntanlega ekki lengur að vera komnar uppá Englendinga með kol. X títlenðar jréttir. Pýzkaland. Ríkisskuldir þess eru nú 212 miljarðar marka, að ótaldri her- kostnaðarskuldinni, sem Þjóðverj- ar eiga að greiða bandamönnum. En allur þjóðarauður Þýzkalands er talinn 250 miljarðar marka. Fjármálaráðherrann þýzki, Erz- berger, sagði fyrir nokkrum dög- um í þinginu, að yrði Þýzkaland gjaldþrota, mundi það draga Frakk- land með sér í gjaldþrotin. Pjóðverjar setja fejark í sig. Þjóðverjar hafa neitað að taka þátt í hafnbanni því á Rússlandi, er Bandamenn vilja koma á, til þess að yfirbuga Bolsivíka. frá geicjíu. Fá lönd hafa vakið eins mikið umtal síðustu árin eins og Belgía, og engri þjóð, sem orðið hefir fyrir áföllum í stríðinu, hefir verið vorkent jafnmikið og Belgjum, og hafa þó ýmsar þjóðir verið enn harðar leiknir en þeir, í ófriðnum, t. d. Pólverjar og Serbar, að ó- nefndum Armeningum, sem öllum þjóðum hafa verið verst leiknir nú stríðsárin. Kosningar eiga að fara fram í Belgíu 16. nóvember (daginn eftir að kosið er hér á íslandi til Al- þingis). í Belgíu er kosningaskijlda þannig, að hver kjósandi er skgld- ugur að greiða atkvæði, að við- lagðri hegningu, ef heima er setið. Kosningarétturinn var þar fyrir stríðið þannig, að allir fullorðnir karlmenn, höfðu atkvæðisétt, en verkamenn höfðu að eins eitt at- kvæði hver, en heldri menn 2—3 atkvæði hver, eftir efnum og á- stæðum. Nú hefir þessum órétt- látu kosningarlögum verið breytt, og við kosningar þær, sem íram eiga- að fara, hafa allir þeir, sem tvítugir eru eða meira, kosningar- rjett, nvort það er karl eða kona, og enginn nema eitt atkvæði, hvað ríkur sem hann svo er eða. bóklærður. Hslaað viðnrkennir 3 ný ríki. Fyrir skömmu barst hingað símfregn um það, að Norðurlönd, og þá um leið ísland, hefðu við- urkent sjálfstæði þriggja nýrra ríkja á Eystrasaltsströndum Rúss- lands, nefnilega Eistlands, Latívu. og Líthár. Ríki þessi hafa samtals nær 10 milj. íbúa. Voru þau áður undir Rússastjórn og hétu Eistland, Liv- land, Kurland og Lithauen. Latívu og Líthá byggja Lettar og Litháar og eru þær þjóðir af sama kynstofni og aðrar Vestur- Evrópuþjóðir. En Eistland byggja Eistur, sem eru í ætt við Finna,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.