Austurland - 22.01.1965, Page 1
Amlnrlmul
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 22. janúar 1965. 3. tölublað.
Fjárhagsáætlun Neskaupstaðar
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
Neskaupstaðar verður tekin til
fyrri umræðu á fundi bæjar-
stjórnar í dag.
Þessi fjárhagsáætlun á ársiðan-
lega eftir að vekja mikið umtal,
ekki aðeins hér í bæ, heldur og í
hópi sveitarstjórnarnnanna um
land allt. Og mikið má vera, ef
hún á ekki eftir að verða blaða-
matur, gómsætur og lystilega
framreiddur á ýmsa vegu.
Það sem veldur þessu, er hin
gífurlega hækkun áætlunarinnar.
Niðurstöðutölur hennar eru kr.
17.600.000.00, en niðursföðutölur
áætlunar síðasta árs voru kr.
11.655.500.00.
Og auðvitað eru það einkum
útsvörin, sem hækka. Þau voru á
áætlun síðasta árs kr. 7.060.000.
00, en á fyrirliggjandi frumvarpi
12 millj. kr. — hækkun 70%. Mun
torfund ð dæmi þess, að sveitar-
félag hafi treyst sér til að auka
tekjur sínar svo mikið á einu ári.
/
Um tvær leiðir að velja
Það er vitað, að heildartekjur
bæjarbúa hafa enn vaxið til mik-
iUa muna á síðasta ári, þó ekkert
sé auðveldara en benda á einstak-
linga og jafnvel heila starfshópa,
sem ekki hafa aukið tekjur sínar
— jafnvel þvert á móti. En það
breytir ekki heildarmyndinni.
En það eru ekki útsvör ein-
staklinganna, sem lengst draga í
hækkuninni, heldur útsvör fyrir-
tækja og þá fyrst og fremst §íld-
arvinns.lunnar, sem fullvíst má
telja, að beri mieginhluta hækk-
unarinnar.
Þegar það lá fyrir, að tekjur
bæjarbúa, en þó fyrst og fremst
tekjur ópersónulegra útsvars-
greiðenda, mundu hækka stórlega
frá síðasta ári, var um tvær leið-
ir að velja.
Önnur leiðin, og sú auðveldari,
var að áætla aðeins fyrir óhjá-
kvæmilegum útgjöldum og ef til
vill einhverjum smáframkvæmd-
um, en nota í þess stað kringum-
stæðurnar til að lækka útsvörin.
Með þeirri aðferð hefði sjálfsagt
verið hægt að slá 40% af útsvör-
unum.
Hin leiðin var, að stilla útsvör-
um svo í hóf, að þau yrðu í létt-
ara lagi, en nota tækifærið til að
afla fjár til að hrinda áleiðis
ymsum framfaramálum og áhuga-
málum bæjarbúa.
Leiðin, sem valin var
Fjárhagsáætlunin ber það
greinilega með sér, að síðari leið-
in var vaiin. Og það er tvímæla-
laust rétta leiðin frá sjónarmiði
heildarinnar. Sú leið felur það í
sér; að útsvörum skuli haidið í
lægra lagi mioað við aðra kaup-
staði, og að kapp skuli á það
lagt að afla fjár til menningar-
og framfaramála bæjarins.
Það væru ófyrirgefanleg mis-
tök, ef sú gullöld, ef svo má að
orði komast, sem nú gengur yfir
Austfirði, liði svo hjá, að þess
sæi lítinn eða engan stað 1 þorp-
um og bæjum, jafnvel að verr
væri á margan hátt ástatt við
lok uppgangstímans en upphai'.
Því miður virðast sumar sveitar-
stjórnir svo skammsýnar, að setja
metnað sinn í það, að lækka sem
mesit útsvör, en hirða lítið um að
búa í haginn fyrir mögru árin,
sem reikna verður með að komi
eftir þau feitu. Þau þorp verða
illa á vegi stödd, ef aftur þreng-
ir að, eftir að hafa látið tæki-
færið sér úr greipum ganga.
20% afsláttur og hækkun
persónufrádráttar
Bæjarstjórnarmeirihlutinn mun
lýsa yfir því við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar, að hann muni hlut-
ast til um, að í álagningu verði
öll útsvör lækkuð um a. m. k.
20% frá hinum lögboðna útsvars-
stiga, og að fjölskyldubætur verði
ekki reiknaðar til tekna, en fjöl-
skyldubæturnar eru einu trygg-
ingarbæturnar, sem lagt hefur
verið á hér í bæ. Að fella niður
álagningu á fjölskyldubætur, jafn-
gildir því, að persónufrádráttur
fyrir hvert barn á framfæri
hækki um þrjú þúsund krónur,
úr fimm í átta þúsund. Þessi
breyting hefur þau áhrif á út-
svör, miðað við álagningu hér í
bæ 1964, að þeir, sem samkv. lög-
um eiga að greiða 20% útsvars-
skyldra tekna í útsvar, fá 540
króna lækkun í útsvari fyrir
hvert barn, en þeir, sem greiða
eiga 30% fá 810 króna lækkun.
Getur brugðizt
Nú getur svo farið, að þegar
framtöl liggja fyrir, standi bæj-
arstjórn frammi fyrir þeirri stað-
reynd, að útsvörin, með þeim til-
slökunum, sem heitið verður, nái
ekki þeirri upphæð, sem áætluð
er. I því tilfelli mun bæjarstjórn-
armeirihlutinn beita sér fyrir því,
að fjárhagsáætluninni verði
breytt eins og með þarf.
Einnig getur svo farið, að lög-
gjafinn breyti álagningareglunum
gjaldendum í hag. Við ákvörðun
afsláttar verður að sjálfsögðu að
taka tillit til þess og verður þá
við það miðað, að lágmarksaf-
sláttur verði 20% miðað við nú-
gildandi lög, og persónufrádrátt-
ur fyrir börn ekki lægri en 8
þús. kr.
Um tekjurnar
Eftirfarandi yfirlit gefur hug-
mynd um hvaðan bæjarsjóði koma
tekjur:
Skattar:
Útsvör 12.000.000
Aðstöðugjöld 2.600.000
Fasteignagjöld / 200.000
Skattar alls 14.800.000
Tekjur af fasteignum
og vélum 270.000
Endurgr. framf.styrkur 75.000
Menntamál 448.000
Skemmtanaskattur 150.000
Framlag Jöfnunarsjóðs 1.450.000
Framlag vegasjóðs 300.000
Aðrar tekjur 107.000
Kr. 17.600.000
Um gjöldin
Eftirfarandi tafla sýnir í stór-
um dráttum áætluð útgjöld bæj-
arins á þessu ári:
Stjórn kaupstaðarins 700.000
Fram'færslumál 450.000
Verklegar framkvæmdir 4.900.000
Félags- cg menningarm. 2.328.500
Fræðslumál 1.465.000
Vegam. ótalin annarsst. 500.000
Kostn. við fasteignir 80.000
Brunamál 100.000
Löggæzla 160.000
Heilbrigðismál 622.000
Þrifnaðar- og hreinl.mál 383.000
Afborganir og vextir 3.840.500
Alþýðutryggingar 1.740.000
Önnur gjöld 331.000
Kr. 17.600.000
Til frekari glöggvunar skulu
hér nokkrir liðir sundurliðaðir
nánar:
Verklegar franrlaæmdir
Undir þann lið flokkast:
Nýir vegir og holræsi 500.000
Varanleg vegagerð 1.000.000
Til nýrrar vatnsveitu 1.000.000
Bygging barnaheimilis 700.000
Bygging íþróttahúss 700.000
Hafnarfrar.ikvæmdir 1.000.000
Samtals kr. 4.900.000
Framh. á 3. síðu.
Sundlaugin
opnuð
Fram að þeim tíma, að raf-
magn frá Grímsárvirkjun var
leitit til Neskaupstaðar, var vatn-
ið í sundlauginni hitað upp með
afrenn slisvatni raf stöð var innar.
Eftir það hefur vatnið verið hit-
að með olíu og laugin aðeins ver-
ið opin yfir sumiartímann.
Að hita vatnið með olíu hefur
reýnzt mjög dýrt. Hitunarkostn-
aður á síðasta ári var yfir 100
þús. kr. — Með styttingu starfs-
tíraa laugarinnar hefur og sund-
ruennt hrakað mjög í bænum.
Nú er hinsvegar svo komið, að
rafstöðin er oftast í gangi og því
mógulegt, að taka aftur upp þann
hátt, að láta afrennsiisvatn henn-
ar hita laugarvatnið.
Ákveðið hefur verið, að nota
sundlaugina sem kælivatnsþró
fyrir raistöðina. Dælir hún vatn-
inu úr lauginni á vélarnar og
rennur það síðan í laugina aftur.
Vegna frosts í jörðu, hafa
leiðslurnar ekki verið grafnar í
„örðu enn og verður það ekki
gert fyrr en í vor. Til bráða-
birgða hafa leiðslurnar verið
lagðar ofanjarðar, en það hefur
að sjálfsögðu í för með sér mik-
ið hitatap.
Laugin er nú fuli af vatni og
er yfirborðs'hiti þ.ess 26—27 stig.
Á morgun — laugardag — verð-
ur laugin opin fyrir almenning
kl. 2—7 og verður svo framVegis
í vetur. Enn hafa ekki aðrir al-
menningsitímar verið ákveðnir.
Eftir helgina er í ráði að sund-
námskeið hefjist fyrir nemendur
gagnfræðaskólans og efstu bekkja
barnaskólans. Verða sundtímar
væntanlega felldir inn í stunda-
fkrá skóianna og hverjum nem-
anda ætlaður elnn tími vikulega.
Það er mjög mikilsver.t, að nám-
skeið skólanemenda geti farið
fram á meðan skólarnir starfa,
bæði fyrir nemendur sjálfa og
sundlaugina. Reynslan hefur ver-
ið sú, að eríitt er að fá þá nem-
endur, sem komnir eru á þar.n
aldur, að þeir séu farnir að
stunda. vinnu, tii að sækja reglu-
Framh. á 3. síðu.
Haft er í
flimíingum
að áramótablað Austra sé enn
ekki komið út;
að ástæðan sé ófærð á Odds-
skarði og vantraust Krist-
jáns á hæfileika Framsókn-
armanna í Neskmipstað til
préfarkalcsturs;
að „Oddur á Skarðinu“ sé
Kristjáni frænda sínum æfa-
re'ður fyrir alla bölvaða vit-
leysuna, sem tnnn hefur
eftir homim haft og hefni
sín nú með því að halda
honum veðurtepptum heima.