Austurland - 12.02.1965, Side 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 12. febrúar 1965.
Hvad er í fréttum?
A1 Héraði
Hallormsstað, 10. febr. SBl/SÞ
Eins og kunnugt er af fyrri
fréttum geisaði hér aðfaranótt 9.
febrúar afspyrnuveður af VSV.
Mönnum hér ber saman um, að
slíkt hvassviðri hafi ekki komið
hér síðan árið 1950, en menn
jafna þessu við veður er þó geis-
aði hér á sama árstíma.
Hér á ofanverðu Héraði urðu
allmiklar skemmdir bæði á úti-
i úsum, en þó einkum á heyjum,
en þar sem heyfengur. var mikill
sl. sumar ; áttu bændur óvenju
mikið hey í stökkum.
Stefán Hallgrímsson, bóndi að
Arnaldsstöðum í Fljótsdal te.ur
þetta vera versta veður .sem hatiji
man eftir. Þar fuku þök af tveim
lilöðum • og stafn fauk einnig úr
hinu þriðja af útihúsunum. Eini:-
ig tættist blæjuhús af jeppabif-
reið. Svo var rokið mikið, að það
reif upp grjót úr áreyrunum.
Á Víðivöllum fram, en þar býr
Jörgen Sigurðsson, fauk þak af
stórri, nýrri hlöðu og mest allt
járnið á íbúðarhúsinu. Einhverj-
ar skemmdir rnunu einnig hafa
orðið á Egilsstöðum í Fljótsdal.
Á Bessastöðum í Fljótsdal
liristist íbðarhúsið svo mikið, að
bækur duttu úr bókahillum.
Á nokkrum bæjum í Skógum
mun hafa orðið eitthvað tjón.
í þessum haimförum ýfðist
Lagarfljót svo mjög, að menn
muna það vart úfnara. T. d. var
íbúðarhúsið á Strönd undir
stanzlausri ágjöf meðan veður-
hæðin var sem mest. Þykkir ís-
strönglar hlóðust á símalínur, er
næst lágu Fljótinu því lítilshátt-
ar frost var.
Á bænum Jaðri, sem er í land-
areign Vallaness, fuku 60 hest-
ar af heyi.
1 Egilsstaðakauptúni fauk járn
af íbúðarhúsi Halldórs Ármanns-
sonar úrsmiðs og einnig hjá
Helga Gíslasyni að Hlöðum við
Lagarfljótsbrú, einnig fauk járn
af fjósi hjá syni hans Gísla.
Ekki virðist hafa orðið veru-
legt tjón af veðurofsa þessum í
Eiðaþinghá nema eitthvað á
Finnsstöðum.
Hér á Hallormsstað vorum við
all hræddir um ófyllt steypumót
í barnaskólabyggingunni, en þar
er ósteypt í mót að tveim álm-
um, en þau sluppu án skemmda.
Fullvíst er, að fáir munu hafa
sofið á Héraði þessa óveðursnótf,
í það minnsta á timanum frá kl.
2—4, en þá var veðurhæðin mest.
Annars hefur veðráttan undan-
fai'in verið mjög góð. Snjórinn er
algjö-lega horfinn af láglendi.
Ennþá er nokkur ís á vegum, en
minnkar nú ört og ennþá hafa
vegir hér eklr’ skemmzt af aur-
bleytu.
Brúin yfir Klifána, sem byrjað
var að byggja í haust, eins og
ég hef? áður getið um í fréttum
héðaii, Vár ' opnuð til umferðar
skömmu eftir jól.
Hér er þorri blótaður í hverri
sveit, enda talið, að hér eigi
þorrablótin uppruna sinn og
telja aldnir menn og fróðir hið
fyrsta þorrablót hafa verið hald-
ið í Vallahreppi rétt fyrir síðustu
aldamót.
Þorrablótin ent hér í hverri
sveit mikil hátíð með almennri
þátttöku. í ár er þeim flestum
lokið og hafa þau farið hið bezta
tram.
Úr Breiðdal
Staðarborg, 4. febr. HÞG/GÓ
Fyrsta frétt hér. eins og víðar,
er síldin Tb Breiðdalsvíkur hafa
borizt frá áramctum 10—-12 þús.
mál í bræðslu Eitthvað srnáveg-
is hefur verið fryst. Sigurður
Jónssor. liefur fengið 6—7 þús.
mál frá áramótum. Kringum
þetta er nokkur atvlhna, annars
er flest ungt iólk, sem ekki er í
skólum farið í aðra landshluta til
atvinnule;tar, og þá lang mest
til Eyja. Fámennt er þvi orðið á
flestum heimilum og félagslíf lít-
ið. Þorrablót er ráðgert um
næstu helgi, 6. febr. Þangað
reyna flestir að koma, enda eina
stórsamkoma vetrarins. •
Frá því um jól og þar til nú
að brá til hlýindanna, hefur ver-
ið mikill snjór um Breiðdal og
haglaust að kalla. Samgöngur
erfiðar á köflum, sérstaklega um
áramótin. Breiðdalsheiði er al-
gjörlega ófær og verður eflaust
til vors. Hreindýr hafa gert vart
við sig í byggð. Bendir það til
hagleysis fyrir þau á heiðum
uppi. Annars er alltaf slangur af
hreindýrum hér á nálægum heið-
um, t. d. var bílstjóri nokkur
kominn nærri því að aka yfir
hreintarf á Breiðdalsheiði í
haust, fékk aðeins forðað árekstri
i ieð snarræði sínu.
Heilsufar hefur verið gott,
enda komið sér betur, því að
hvað eftir annað hefur ekki
náðst til læknis á Djúpavogi
vegna símabilana. Samfara síma-
bilunum er svo útvarpsástandið
eins og flestir Austfirðingar
kannast við, en það hefur óneit-
anlega skánað nú upp á síðkast-
ið, en það gerir það venjulega
með lengri degi, svo að við vit-
um ekki, hvort um varanlegan
bata er að ræða eða aðeins
venjulegan vorbata.
Sú tilraun er nú gerð hér við
heimavistarskólann, að hafa öll
skólaskyld börn samtímis í skól-
anum. Er þá börnum frá Breið-
dalsvík ekið til og frá daglega,
en börn lengra að, búa 1 heilma-
vist. Hvort þessi nýbreytni þyki
til bóta er enn óreynt.
Frá Seyðisfirði
Seyðisfirði 11. febr. JS/ÖS
Mikil spjöll í óveðri
Aðfaranótt þriðjudagsins 9.
febr. sl. gerði hér mikið vonzku-
veður og olli það miklum
skemmdum. 1 roki þessu fauk
all.t járn af þaki verzlunarhúss
Kaupfélagsins, „Þórshamri“, og
skemmdi járnið næsta hús mikið
svo og nýjan Morrisbíl er stóð
þar skammt frá. Þá fuku plötur
af húsinu á bát, sem er í smíðum
í Skipasmiðastöðinni og stakkst
ein platan í gegnum byrðing
bátsins og stóð þar föst. Einnig
urðu talsverðar skemmdir á ýms-
um mannvirkjum í Skipamíða-
stöðinni. Einnig fuku nokkrar
plötur af þaki Fiskiðjunnar.
Löndunarkrani við Síldarverk-
smiðjur ríkisins fauk einnig um
í þessu roki. Svo óheppilega vildi
til, að unnið hafði verið að því
að losa kranann, og átti að færa
hann eitthvað til á bryggjunni,
þar se-m til stendur að fjölga
löndunarkrönum við SR fyrir
næsta sumar. Loks má geta þess,
að miklar skemmdir urðu á færi-
böndum o. fl. á söitunarstöð Val-
týs Þorsteinssonar.
Samgöngur
Snjóbíll hefur gengið héðan yf-
ir Fjarðarheiði í vetur, eins og
reyndar undanfarna vetur, í
sambandi við flug á Egilsstaða-
flugvöll. Oft hefur hann lent í
miklum erfiðleikum, þar sem því
liefur ekki verið sinnt að lagfæra
fyrir hann, þar sem halli er mik-
ill á heiðinni. Er það almenn
skoðun Seyðfirðinga og þeirra,
er við þá skipta, að það sé al-
gjörlega óviðunandi hvað hið op-
in-bera geri lítið til að bæta sam-
göngur yfir Fjarðarheiði, hvort
heldur er að sumri eða vetri.
Þá má geta þess, að 5 tonna
trillubátur hefur í vetur haldið
uppi áætlunarferðum til Loð-
mundarfjarðar hálfsmánaðarlega.
Eigandi bátsins er Jón Dan Jóns-
son.
Vertíð
Stærri bátar héðan eru farnir
á vertíð til Vestlmannaeyja. Eru
það Gullberg NS, Skálaberg NS
og Dalaröst NK. Gullbergið hef-
ur að undanförnu stundað síld-
veiðar, en hinir hafa róið með
línu.
Skipulag kaupstaðarins
Undanfarið hefur verið unnij
að skipulagningu svæðisins ofan
við Vesturveg, en þar verða mjög
góðar byggingalóðir.
Hefur nú borizt tillaga utn
skipulag svæðisins frá Helga
Hjálmarssyni, arkitekt, og er hún
nú til athugunar.
Þá hefur verið unnið að athug-
un á jarðvegi og botnlagi fyrir
botni fjarðarins. Er fyrirhugað
að ramma niður stálþil og auka
með því verulega athafnapláss.
Athugun þessi fer fram á vegum
Vitamálaskrifstofunnar.
Veðráttan
Síðustu vikur hefur verið eir-
muna tíð hér á Austurlandi til
landsins og h'ýindi mikil. Hafði
snjó að mestu t.eKið upp af lág-
lendi og sjatnað mikið til fjalla,
þó fjallvegir yrðu ekki færir,
enda tókst ekki að fá það fram,
að þeir yrðu ruddir.
En í nótt briá aftur til kulda-
tíðar og er nú mikil snjókoma
með fjúki.
Góður órangur
í síðasta blaði var að því vik-
ið, að koma þyrfti kvæðum þeim.
sem Jónas skáld Þorsteinsson lét
eftir sig og ekki eru glötuð, til
varðveizlu á Landsbókasafnið.
Nú hefur sonarsonur skáldsins,
Jóhann Elíasson, tjáð blaðinu, að
hann sé í þann veginn að senda
safninu það sem! hann hefur
undir höndum af ljóðmælum afa
síns, en það er all mikið.
Má því segja, að góður árang-
ur hafi orðið af þessari áskorun
blaðsins.
Frá blaðiiu.l
Frá og með næsta blaði hækk-
ar lausasöluverð þess í kr. 5.00.
-- Áskriftargjald fyrir yfir-
s+andandi ár verður kr. 150.00.
Hlkynning
irá Söltunarstöðinni Ás
Söltunarstúlkur og karlmenn, sem ætla að vinna hjá okkur
á komandi sumri, láti skrá sig sem fyrst hjá Hreini Stefáns-
öyni verkstjóra, eða Einari Ármannssyni, matsmanni.
SÖLTUNARSTÖÐIN ÁS
Neskaupstað.
•"^^'^A/W\AArtA/V/WWWWVWWVWVWVWVWWWWWWWWWWW\AAA/W/WWWV/WWW
^a^^^AAAAAA^A^^W'^^AAAA/WWWWWWWWWWWVWWV'WWWWWVWWWWWV
Sængurveraefni kr. 52.00. Mislitt Damask 64.00 og 75.00.
Hvítt Damask kr. 65.00
ALLABÚÐ
‘"'/'/'^^^^AAAAAAAAAAAAAAAAAAA/WWWWAAAAAAAAAAAA/WWWWWAAAAAAAAAAAAAA/WWN^'/W