Austurland - 12.03.1965, Síða 1
Justurlaml
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 12. marz 1965. 10. tölublað.
Skilyrði iil hafnargerðar í
Ormsslhjáleigu könnuð
Hér eru nú staddir menn frá
Vita- og hafnarmálaskrifstofunni
og er erindi þeirra að kanna skil-
yrði til hafnargerðar í Orms-
staðahjáleigu. Hefur vita- og
hafnarmálastjóri látið sér til hug-
ar koma, að þar yrði gerð bálta-
höfn á þann hátt, að hún yrði
grafin inn í landið norðan flug-
vallarins. Þarna eru engar bygg-
ingar eða önnur mannvirki og því
hægt að skipuleggja hafnarsvæði
eins og haganlegast er talið.
Vita- og hafnarmálastjóri hef-
ur neitað að samþykkja frekari
framkvæmdir við hafnargerðina
úti á Nesi, nema rannsókn leiddi
í Ijós, að óhagkvæmt væri að gera
höfn í Hjáleigunni. Hafði hann af-
dráttarlaust heitið því, að sú
rannsókn skyldi fram fara fyrir
lok sjðasta árs, en það er ekki
fyrr en nú, að hann sendir menn
til að kanna skilyrðin. Þessi ó-
hæfilegi dráttur verður til þess
að tefja hafnarframkvæmdir hér
Margir ungir menn, og raunar
uiiðaldra menn og eldri einnig,
ganga nú um í mjög alvarlegum
byggingarhugleiðingum, svipast
um eftir lóðum og skoða teikn-
ingar. Munu nærfellt 20 manns
vera í þessum þönkum, og komist
þeir allir af stað, má ætla, að á
þessu ári verði hafin smáði allt
að 25 íbúða, að meðtöldum þeim
6 sem bærinn lætur reisa. En það
er við ýmsa erfiðleika að stríða
°g ekki alla fjárhagslegs eðlis.
Einna alvarlegasti erfiðleikinn er,
hve erfitt er að fá smiði til að
vinna við byggingarnar. Gæti það
orðið til þess, að sumir þeirra,
sem ella hefðu byrjað í vor, byrji
ekki fyrr en síðar á árinu.
Annars er fyllilega athugandi,
að fá smiði að til að flýta bygg-
ingum. Hægt mun að fá vinnu-
flokka úr Reykjavík, sem tækju
að sér að slá upp fyrir húsum í
ákvæðisvinnu. Ber að athuga það,
því sízt af öllu má vinnuaflsskort-
ur tefja íbúðabyggingar.
Ef til vill mundi það hækka
og allt bendir til, að ekkert verði
að þeim unnið á þessu ári, þar
sem engin efnispöntun hefur ver-
ið gerð. *
Hafnarnefnd og bæjarstjórn
hafa ekki léð máls á því, að
hverfa frá hafnargerð á Nesi.
Fyrir vita- og hafnarmálastjóra
vakir ekki að gera hafskipahöfn,
heldur einungis bátahöfn, fyrir
stærri og smærri fiskibáta.
Líklegt má telja, að sú rann-
sókn, sem nú stendur yfir leiði í
ljós, að vel sé framkvæmanlegt
að gera höfn í Hjáieigu með
þeirri tækni, sem menn nú hafa
yfir að ráða. En það verður að
taka allt með í reikninginn, með-
al annars sandburð, sem hugsan-
legt er að valdið gæti grynning-
um úti fyrir hafnarmynninu og
jafnvel borizt inn í höfnina.
Drátturinn, sem orðið hefur á
framkvæmd þessarar rannsóknar,
er mjög alvarlegur, þar sem hann
veldur því, að engar hafnarfram-
byggingakostnað eitthvað, en ekki
er það víst, en aftur á móti kæm-
ust húsin fyrr í gagnið.
Þá má búast við mjög miklum
byggingum opinberra aðila. Hald-
ið verður áfram byggingu barna-
heimilis og hafin bygging íþrótta-
húss og að því stefnt, að koma
því undir þak á árinu. Þá má
geta þess, að ekki verður hjá því
komizt, að byggja nýtt lands-
símahús áður en sjálfvirki síminn
kemur, og munu menn símans
vera að velta því máli fyrir sér.
Þá mun Síldarútvegsnefnd vænt-
anlega koma á fót mikilli birgða-
stöð á lóð þeirri, er hún hefur
fengið loforð fyrir við mörk lög-
eagnarumdæmanna við Auralæk.
Loks hefur stjórn síldarverksmiðj-
unnar lauslega rætt um að byggja
skrifstofuhús, en það mál er á
engan rekspöl komið.
Voniandi láta menn nú hendur
standa fram úr ermum við húsa-
byggingar, því skortur íbúðarhús-
næðis stendur bænum beinlínis
fyrir þrifum.
kvæmdir geta orðið hér á þessu
ári, en þörfin á að halda áfram
hafnargerðinni hinsvegar mjög
brýn.
Barði kominn
Barði, hið nýja skip Síldar-
vinnslunnar, kom hingað sl. föstu-
dag, 5. marz.
Barði er tveim mánuðum á eft-
ir áætlun. Að öllu forfallalausu
átti hann að koma í janúarbyrj-
un, en skömmu fyrir jól vildi það
óhapp til, að stórt skip sigldi á
Barða þar sem hann var í
reynsluferð, og skemmdi hann
mjög mikið.
Barði er eitt af 10 skipum af
sömu stærð og gerð, sem smíðuð
eru í Austur-Þýzkalandi fyrir ís-
lendinga. Hann er 264 tonn að
stærð og hefur ekkert verið til
sparað, að gera hann sem bezt úr
garði. Af þessum 10 skipum koma
a. m. k. 4 til Austurlands. Áður
var Krossanes komið til Eski-
fjarðar, en ókomið er skip til
Seyðisfjarðar og Neskaupstaðar.
Skipstjóri á Barða er Sigurjón
Valdimarsson, 1. vélstjóri Sigfús
Jónsson, stýrimaður Hjörvar
Valdimarsson og 2. vélstjóri
Björgvin Jónsson. Framkvæmda-
stjóri er Jóhann K. Sigurðsson.
Barði er farinn á veiðar með
þorskanót.
Af hinu skipi Síldarvinnslunnar,
Bjarti, er það að segja, að ein-
hver dráttur verður á afhendingu
þess og er það ekki væntanlegt
fyrr en einhverntíma í næsta
mánuði. Upphaflega var gert ráð
fyrir að það kæmi í þessum mán-
uði.
Oddsskarð
fœrt
í óveðurskaflanum, sem yfir
gekk um daginn, lokaðist vegur-
inn um Oddsskarð, þó snjór væri
lítill á veginum. Honum hefur nú
verið rutt í burtu og er vegur-
inn fær.
FM-stöð
Nú er verið að setja upp FM-
istöð og verður hún til húsa í
landssímahúsinu, og getur ekki
annað verið, en að þar sé orðið
þröngt. Stöð þessari er ætlað að
færa bæjarbúum truflanalaust út-
varp og er tími til kominn. En
fjöldi útvarpsnotenda geta ekki
hagnýtt sér útvarp frá þessari
stöð, nema kaupa ný tæki, þar
sam FM-bylgjur eru ekki á tækj-
um þeirra.
Fyrir nokkrum vikum var nýr,
stór sendir tekinn í notkun í út-
varpsstöðinni fyrir sunnan. Þá
var hár í blaðinu sagt, að um það
leyti hefði orðið mikil breyting
til batnaðar á hlustunarskilyrðum
hér í bæ, hvort sem það væri að
þakka nýja sendinum eða ein-
hverju öðru. En ekki höfðu þessi
orð fyrr á þrykk út gengið, en
útvarpið umsnerist og síðan hef-
ur sjaldan verið hlustandi á kvöld-
dagskrána og hvað ergiiegast er,
að ekki skuli vera hægt að hlusta
á endurvarpsstöðina hér, nema
leggja á sig píslir og þjáningar.
Aðalfuudur Kven-
félagsins Nönnu
Síðastliðinn mánudag hélt Kven-
félagið Nanna aðalfund sinn.
Skýrsia formanns bar það með
sér, að félagið hafði starfað af
miklum þrótti á sl. ári og Verður
hér stuttlega getið hins helzta úr
skýrslu formanns.
Dagana 18. apríl til 2. maí var
haldið námskeið í ýmsu föndri. 23
konur sóttu námskeiðið og var
þsi.n kennt að vinna úr tágum,
perlum, basti og beini.
Kennari var Helga Marselíus-
dóttir frá Isafirði.
Þá starfaði nefnd á vegum fé-
lagsins til styrktar Dagheimilis-
byggingunni. Alls aflaði sú nefnd
rúmlega 15 þúsundum króna til
styrktar því málefni.
Hingað kom á vegum félagsins
Óli Valur Hansson, garðyrkju-
ráðunautur og flutti erindi fyrir
almenning um ræktun skrúðgarða.
Framh. á 2. síðu.
Haft er í
flimtingum
að íhaldið telji sér lífsnauðsyn
að losna við Gunnar Tlior
úr sæti fjármálaráðherra;
að hann eigi að verða ambassa-
dor í Kaupmannahöfn;
að ekki beri Gunnar frekar á-
byrgð á hiiKum óvinsælu
skattaálögum en aðrir ráð-
herrar;
að með þessu sé verið að
hengja bakara fyrir smið.
Mikill byggingaáhugi