Austurland - 05.04.1968, Síða 1
ÆJSTURLAND
MALGAGN ALÞÝflUSAHDALAGSiNS Á AUSTURUNDI
18. árgangur. ! Neskaupstað, 5. apríl 1968. 14. tölublað.
Þingsályktunartillaga á Alþingi:
Fyrir Alþingi liggur nú tillaga
til þingsályktunar um skipun
nefndar samkvæmt 39. grein
stjórnarskrárinnar til að rann-
saka ýmis atriði herstöðvamáls-
ins, og eru flutningsmenn hennar
5 þingmenn Alþýðubandailagsins,
þeir Ragnar Arnalds (varaþm.),
Jónas Árnason, Jón Snorri Þor-
leifsson (varaþm.), Lúðvík Jós-
epsson og Geir Gunnarsson.
Grein stjórnarskrárinnar, sem
fiutningsmenn höfða til, er á
þessa leið:
„Hvor þ;ngdeild getur skipað
nefndir innandeildarþingmönnum
til að rannsaka mikilvæg mál, er
almenning varða. Þingdeildin get-
ur veitt nefndum þessum rétt til
að heimta skýrslur, munnlegar og
bréflegar, bæði af embættismönn-
um og einstökum mönnum“.
Flest bendir til þess, að sá vet-
ur, sem samkvæmt almanakinu á
að vera allur eftir þrjár vikur,
verði sá kaldasti á landsvísu um
50 ára skeið, eða frá því 1918.
Meðalhiti fjögurra vetrarmánaða,
desember til marz, er um 2l/o° C
lægri en á árunum 1930—1960.
Úrkoma mun ekki hafa orðið til
hiuna meiri en að meðaltali, en
sökum lægri meðalhita hefur
kyngt niður snjó langt umfram
það sem venjulegt telst á Suður-
og Vesturlandi. Raunar var líka
■sett Islandsmet í úrfelli á þess-
úm vetri, það í Austfirðinga-
Tillaga þingmanna Alþýðu-
bandalagsins er í heild á þessa
leið:
Neðri deild Alþingis ályktar að
skipa fíwnn manna nefnd í sam-
ræmi við 39. gr. stjórnairskrárinn-
ar til að rannsaka eftirtalin at-
riði varðandi dvöl Bandaríkjahers
á íslandi:
í fyrsta Iagi, hvernig Islending-
ar geta tryggt, að bandarískar
flugvélar búnar kjarnorkuvopn-
um fljúgi ekki um íslenzka loft-
helgi og lendí ekki á íslenzku
landi, með hliðsjón af þeim at-
burðuin, sem gerzt hafa í Tbiule
á Grænlandi, þvert ofan í fyrri
yfirlýsingar Bandaríkjamanna;
í öðru lagi, hvernig á því standi,
að ekki hefur verið staðið við
fyrri loforð um takmörkun her-
mannasjónvarpsins við herstöð-
fjórðungi: Síðla í febrúar, þegar
flóðin miklu urðu á Suðurlandi,
mældist sólarhringsúrkoman á
Vagnsstöðum í Suðursveit 234
mm, en það er um fjórðungur
þeirrar ársúrkomu sem við eigum
að venjast hér á Austurlandi í
meðalári.
En þótt árferði sem þetta sé
biturt, þá býr hinn norræni vet-
ur yfir sérstakri fegurð og hrein-
leika í ásjónu landsins, einkum á
kyrrum dögum og heiðríkum. —
Myndin er frá Norðfirði á slíkum
deji. — Ljósm. H. G.
ina eina, hvers vegna sú tilhögun
var ekki ákveðin þegar í upphafi,
og liver voru tildrög þess, að
Guðmundur I. Guðmundsson, fyrr-
um utanríkisráðherra, sagði Al-
þingi ósatt, þegar sjónvarpsstöð-
in var stækkuð og málið var rætt
á Alþingi 28. marz 1962;
í þriðja lagi, hvaða. áhrif dvöl
Bandaríkjahers í landinu hefur
einkum haft á íslenzkt þjóðlíf,
t. d. verði vandiega rannsökuð
hin mikla fjármálaspilling, sem
lengi hefur þrifizt í skjóli her-
setunnar, og reynt að kanna,
hvaða áhrif hersetan heflur haft
á uppeldi, hugsunarhátt og tungu-
tak íslenzkrar æsku í nágrenni
herstöðvanna;
í fjórða lagi, hvort herstöðv,-
arnar geta talizt veita þjóðinni
nokkra vörn á ófriðartímum og
hvort þær eru ekki líklegri til að
kalla háskann yfir þjóðina, ef
fil styrjaldar dregur;
í fimmta lagi, hvaða upplýsinga
unnt er að afla um þær áætlanir,
sem vitað er, að NATO hefur
gert um hugsanlega íhlutun
bandalagsins í innanríkismál þátt-
tökulandanna, þegar þær aðstæð-
ur skapast, að þess er talin þörf,
og hvort þessar áætlanir snerta
Island.
I samræmi við 39. gr. stjórnar-
skrárinnar liefur nefndin heimild
til að heimta munnlegar og bréf-
legar skýrslur af embættismönn-
um og einstökum mönnum. Niður
staða rannsóknarihnar skal lögð
fyrir deildina eigi síðar en 1.
febrúar 1969, svo að Alþingi eigi
þess kost að taka sjálfstæða af-
stöðu ti’l herstöðvamálanna á ár-
inu 1969.
Tiliögu þessari fylgir alllöng
greinargerð, þar sem í upphafi
er bent á, að hernámið í maí 1951
hafi gerzt ,,á fölskum forsendum,
gegn vilja þjóðarinnar og í trássi
við stjórnarskrá lýðveldisins".
Hér á eftir verða aðeins birtir
nokkrir kaflar úr greinargerð-
inni varðandi hin einstöku efnis-
atriði tillögunnar.
Flugvélar með kjarnorku-
vopn
Yfirmenn bandariska hersms á
íslandi hafa lofað íslenzkimi
Framh. ú 2. síðu.
Hafísinn gerist
nœrgöngull
I vetur hefur hafís lengi verið
á sveimi fyrir Norðurlandi, eink-
um undan Hornströndum, en
annars staðar hefur hann ekki
orðið til verulegs baga fyrr en
síðustu vikuna. En nú er mjög
mikill ís fyrir öllu Norðurlandi og
sigling ófær. Isinn veldur Norð-
lendingum að sjálfsögðu þungum
búsifjum, einkum vegna þess, að
öll sjósókn liggur niðri.
Þá hefur ísinn teygt arma sína
suður með öllum Vestfjörðum,
suður fyrir Látrabjarg að því er
mér hefur skilizt, og suður með
öllum Austfjörðum a. m. k. suð-
ur um Papey. Isinn torveldar
siglingar og hefur fiskibátum
verið óhægt að komast til Norð-
fjarðar og frá.
Óvenjumiklir kuldar hafa verið
um land allt að undanförnu.
I grennd við Þórshöfn sáust
spor eftir tvö bjarndýr og við
Húsavík lokuðust höfrungar í
vök og hefur þeim verið slátrað.
Mikill ís er nú í Norðfjarðar-
flóa og hefur hann rekið hratt
inn í morgun og allar horfur á
að hann fylli fjörðinn innan
skamms, enda er spáð norðaustan
kalda og síðan stinningskalda.
Isinn getur haft mjög alvarleg-
ar afleiðingar fyrir atvinnulíf á
Austfjörðum, því fiskibátar munu
ekki geta siglt á hafnirnar til
losunar leggist ísinn að. Þá munu
siglingar flutningaskipa stöðvast
með þeim afleiðingum, að vöru-
skortur yrði. Esja og Blikur eru
nú á norðurleið og viðbúið að
þau geti ekki haldið áfram.
Gagnfræðaskólinn í Neskaup-
stað hélt árshátíð sína á laugar-
daginn í félagsheimilinu og var
þar margt um manninn og
skemmtiatriði mörg og góð.
Veigamesta skemmtiatriðið var
leiksýning. Sýndur var sjónleik-
urinn ,,Happið“ eftir Pál J. Ár-
dal, undir stjórn Birgis Stefáns-
sonar, bæjargjaldkera og tókst
sýningin ágætlega. Ennfremur
var söngur, upplestur og gaman-
vísnasöngur (flím um kennara),
og að lokum var stiginn dans.
Nemendur önnuðust sjálfir öll
skemmtiatriði.
Formaður árshátíðarnefndar
var Ágúst Þorláksson, Skorra-
stað og sá lét nú ekki g’nn hlut
eftir liggja, því hann var virkur
þátttakandi í flestum skemmti-
atriðum, og ég held öllum, þar
sem fleiri komu við sögu en einn.
Árshátíðin fór mjög vel fram
og var skólanum til sóma.
Áformað er að endurtaka
skemmtiatriði árshátíðarinnar á
Eskifirói á miðvikudaginn. Blaðið
vill benda Eskfirðingum á, að
skemmtunin er þess virði að liún
sé sétt. .
' • ' 4