Austurland


Austurland - 03.05.1968, Side 4

Austurland - 03.05.1968, Side 4
i r AUSTURLAND Neskaupstað, 3. maí 1968. Hvaö er í fréttum? Frá Reyðarfirði Reyðarfirði, 30. apríl — ÞG/HG Aflabrögð Hér er aðeins einn bátur gerð- ur út, Snæfugl. Hann er nú búinn að fá tæpar 800 lestir á vertíð- inni, þar af hefur 116 lestum ver- ið landað annars staðar. Aflinn hefur fafið í frystingu og salt, ufsinn allur í frystingu og þorsk- urinn flattur og saltaður. Síðast- liðinn sunnudag kom Snæfuglinn með tæp 40 tonn. Félagslíf Félagslíf hefur verið allgott. Auk félagsvista á vegum kvenfé- lagsins og reglulegra kvikmynda- sýninga hefur allgott líf verið í sumum félögum. Þann 30. marz sl. hélt slysavarnardeildin Ársól fjölsótta skemmtun til fjáröflún- ar. Meðal annars las Jóhann Ög- mundsson hluta úr Gullna hlið- inu, og var því vel tekið. Nýstár- leg fegurðarsamkeppni lífgaði upp á skemmtunina, leikþættir og fleira. Á eftir var stiginn dans. Slysavarnardeildin Ársól verður 30 ára á þessu ári í desember. Formaður hennar er Fljalti Gunn- a.rsson, Þá eigum við hér Lions-klúbb, er hélt sameiginlega árshátíð með Eskfirðingum og Fáskrúðsfirðing- um 6. apríl sl. Sátu um 80 manns hófið, er hófst með borðhaldi, en til skemmtunar var upplestur, al- mennur söngur og fleira. Dansinn fylgdi svo auðvitað í kjölfarið. Fór hófið hið bezta fram. For- maður klúbbsins hér þetta árið er Hjalti Gunnarsson. Nemendur Barna- og unglinga- skóla Reyðarfjarðar héldu árs- hátíð sína 21. apríl og tókst hún hið bezta. Til skemmtunar voru fjórir leikþættir, er unglingar önnuðust, upplestur og söngur allra bekkja Barnaskólans undir stjórn Sigurðar Ármannssonar, er kennt hefur söng í vetur við skól- ann. Auk þess var sýnd kvik- myndin Syngjandi Ukraína, er skólinn fékk að gjöi' í vetur. Þá ber að telja síðast en ekki sízt frumsýningu Leikfélags Reyð- arfjarðar á gamanleiknum Þrír eiginmenn, er Jóhann Ögmunds- son frá Akureyri stjórnaði. Leík- tjöld málaði Steinþór Eiríksson á Egilsstöðum. Sýningin var fjöl- sótt og þótti góð. og var frum- sýningin á sumardaginn fyrsta. Leikendur voru sex. Það liggur mikil vinna að baki slíkra sýn- inga áhugamanna, og ber að styðja slíka starfsemi eftir föng- um, Núverandi formaður fclags- ins er Björn Jónsson. Itúnaður búpeningi bænda hér í vetur. Snjór hefur ekki verið ýkja mik- ill, en svellalög ærin á láglendi. Heybirgðir munu þó vera all sæmilegar enn sem komið er, en bændur horfa með kvíða til kom- andi tíma, því að fóðurbætir hef- ur stórhækkað í verði og nú á stórkostleg hækkun að koma á á- burð í vor. Er það í góðu sam- ræmi við þá stefnu ríkisstjórnar- innar að drepa niður innlenda at- vinnuvegi og gera okkur þar með háð erlendu atvinnuvaldi. Óánægja með SR Atvinnuástand hefur verið þol- anlegt en vinna stopul. Mikil vinna var við skipaafgreiðslu að loknu verkfalli, og var fóðurbæti þá ekið til bænda á Héraði. Aðal atvinna önnur hefur verið í sam- bandi við fiskinn, en nokkuð hef- ur borið á því, að menn leituðu t:l Eskifjarðar í vinnu, en þar hefur verið mikil atvinna við fiskverkun. Á tímabili lönduðu Eskifjarðarbátar hér, og var fisk- inum ekið til Eskifjarðar, sem þá var lokaður vegna íss. Almenn óánægja ríkir með starfsemi SR hér, enda ekki að undra, þar sem verksmiðjan hef- ur staða óhreyfð í vetur, ekki einu sinni reynt að taka við loðnu, og er þetta eflaust í samræmi við fögur fyrirheit stjórnarvalda um atvinnuaukningu, ekki sízt úti á landsbyggðinni. Einungis þrír menn auk verksmiðjustjóra hafa starfað í verksmiðjunni, og kom í Ijós í verkfallinu, að þeirra verksvið allra var eitt og hið sama, — verkstjórn. Þessi frammistaða ríkisverksmiðju vek- ur að vonum athygli og spurn- ingar. Ó\iss embættí Læknishéraðið hefur nú verið auglýst laust til umsóknar, en Jónas Oddsson héraðslæknir hefur sagt starfi sínu lausu, og er í honum mikil eftirsjá. Menn vona í lengstu lög, að Þorvarður Brynj- ólfsson, er þjónar nú héraðinu, taki við, því að hér er um ungan röskleikamann að ræða. Menn fagna hér almennt fram- boði Kristjáns Eldjárns þjóðminja- varðar til forsetakjörs, og er mik- ill áhugi hjá Reyðfirðingum um að tryggja sem bezt kjör lians, er væri til sæmdar íslenzkri þjóð. Frá Hallormsstað Ilallormsstað, 30. apríl. — Sibl. Kúnaðarfélag sjötugt Búnaðarfélag Austur-Valla varð sjötugt hinn 24. þ. m. (en þess verður að geta, að í Vallahreppi eru tvö búuaðarfélög). Það var stofnað þennan dag árið 1898. Fé- lagið hélt upp á afmælio með myndarlegu hófi á Iðavöllum á sumardagmn fyrsta og bauð öll- um sveitungum þangað, en einnig stjórn Búnaðarsambands Austur- lands og Þorsteini Jónssyni, fyrr- verandi kaupfélagsstjóra á Reyð- arfirði, sem er gamall Austur- Vallamaður. Var fyrst kaffi- drykkja og annar glaðningur, en að lokum stiginn dans til kl. 4 um nóttina. Var veizla þessi hin ánægjulegasta. Fyrstu stjórn Búnaðarfélags Austur-Valla skipuðu þessir bænd- ur: Gunnar Pálsson á Ketilsstöð- um formaður, Vigfús Þórðarson á Eyjólfsstöðum skrifari og Jón Bergsson á Egilsstöðum féhirðir. Félagið hafði alltaf búfróða menn í þjónustu sinni fram um 1940 og hafði frumkvæði í ræktun á fé- lagssvæðinu. Árið 1903 var keypt- ur plógur og tvenn aktygi. Árið 1906 var keypt herff, en siðan ekki fleiri jarðvinnsluverkfæri í 20 ár. Árið 1926 var stofnað ræktunarsamband Vallafélaganna og Skriðdælinga og kallað „Litla sambandið". Það stóð í 3 ár, til 1929. Það ár var samþykkt að kaupa dráttarvél, sem kom árið 1930 með jarðvinnslutækjum. Ekki var unnið mik:ð með drátt- arvél þessari og var hún seld árið 1933. Árið 1946 keyptu Vallabún- aðarfélögin fyrstu jarðýtuna sem kom til Austurlands. Var það International TD 6, sem þótti hið Það vakti athygli manna, er mikið lestaður norskur fiskibátur sigldi inn Norðfjörð 1. maí. Var því líkast, sem þar færi drekk- hlaðið síldveiðiskip, með síldar- hleðslu eins og sagt er. Þetta var norska selveiðiskipið Ásbjörn. Hafði skipið viðkomu hér á leið sinni til Noregs frá Ný- fundnalandi, til að bæta við olíu- forða sinn. Við Nýfundnaland stundaði skipið selveiðar um mán- aðartíma, en siglingin hvora leið tekur 10 til 12 daga. Mörg norsk selveiðiskip eru nú á heimleið frá Nýfundnalandi. Er afli þeirra misjafn og mun afli Ásbjörns vera beztur að þessu sinni, um 10 þúsund dýr, sem er fullfermi skipsins. 1 ár höfðu norsku selveiðiskipin veiðiheimikl aðeins einn mánuð, tímabilið frá 24. marz til 24. apr- íl, er það 10 dögum styttri veiði- tími en á sl. ári. Að sögn Norð- manna er nú minni þátttaka í þessum veiðu'm en áður hefur ver- ið vegna mikils verðfalls á sel- spjki. -Er seh'eiðiskipin í'oru til Ný- mesta kostaverkfæri. Jarðýta þessi var seld árið 1953, en hafði þá unnið mjög mikið í hreppnum. Búnaðarfélagið lét búfjárkyn- bætur til sín taka. Þannig var á fundi árið 1929 rætt um naut- griparækt og komið á reglubundn- um fitumælingum mjólkur. Árið 1934 var rætt um stofnun mjólk- urbús, sem ekki varð að veru- leika fyrr en eftir meira en 20 ár. Formenn Búnaðarfélags Aust- ur-Valla hafa auk Gunnars á Ket- ilsstöðum verið þessir: Hallgrímur Þórarinsson á Ket- ilsstöðum, Pétur Jónsson á Egils- stöðum, Benedikt Guðnason í Ás- garði, Axel Sigurðsson á Gísla- stöðum og Magnús Sigurðsson á Ulfsstöðum. Allmargar ræður voru fiuttar yfir borðum og komu þar fram ýmsar merkar upplýsingar um búskap hér í sveit og á Héraði. Ekki verður neitt rakið hér af innihaldi í ræðum manna, nema hvað geta verður eins góðs orð- tækis, sem Snæþór á Gilsárteigi notaði í sinni ræðu. Þetta orðtæki er haft eftir Jóhanni á Brenni- stöðum í Eiðaþinghá. Hann sagði: „Þegar guð er kjötlau’s“ um það, þegar fellt var úr hor! Skólaslit Húsmæðraskólans á Hallormsstað Húsmæðraskólanum var slitið laugardaginn 27. apríl. Séra Ágúst Sigurðsson messaði í upp- hafi athafnarinnar, en síðan skýrði Ingveldur Anna Pálsdótt- Framh. á 3. síðu. fundnalands í marz sl., lá leið þeirra fyrir norðan Island, hrepptu skipin þá hið yersta veð- ur, mikil ísing hlóðst á þau og sum urðu fyrir áföllum. Gefur að skilja að veiðar þess- ar eru all slarksamar, þar sem þær eru stundaðar um hávetur og liggja skipin langt inni í rek- ísnum um veiðitímann. Eru áhafn- irnar, sem á stóru skipunum eru 20 til 24 menn, sendar út á ísinn til fanga, brjótast svo skipin í gegnum ísinn milli kasanna og hirða upp fenginn. Bera selveiði- mennirnir það með sér, að þeír eru harðneskjumenn. Minnist ég þess, að liér lágu einu sinni nokk- ur norsk selveiðiskip, sem stund- uðu þá síldveiðar. Þeirra á meðal var um 500 lesta skip, scm hét ITnrmoni, hafði það skip verið aflahæsta selveiðiskipið þá um árabil. Skipstjórinn var roskinn maður, heljarmenni í útliti með hörkulegan svip, minnti hann mig óneitanlega á Skugga-Svein þeg- ar ég sá hann fyrst. Sögðu Norð- ménn að meðal selveiðimanna Framh, k 3. tíðu, Norskur selveidari kom til Neskaupstaðar 1. maí líiklai’ úuiiatöðu* kufa veri’ö á

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.