Morgunblaðið - 22.10.2011, Qupperneq 1
íþróttir
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2011
Manchesterslagurinn Mikið í húfi á Old Trafford á morgun þegar toppliðin United og City mætast.
Stærsti grannaslagur í 25 ár. Stöðvar City ótrúlega sigurgöngu United á heimavelli? 3
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sex ár Laufey Ólafsdóttir var síðast í byrjunarliði Íslands í september árið
2005. Hún er á miðjunni í dag þegar Ísland mætir Ungverjalandi.
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Edda ofgerði sér í síðasta leik með
Örebro, spilaði lengur en hún hefði
átt að gera, og hnéð bólgnaði upp. Við
ákváðum því að hvíla hana, allavega
frá því að byrja inn á, en höfum hana
til taks á bekknum,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, við Morgunblaðið í gær.
Ísland mætir Ungverjalandi í und-
ankeppni EM á hádegi í dag en leikið
er í Pápa, 30 þúsund manna bæ í
norðvesturhluta Ungverjalands.
Edda Garðarsdóttir, önnur leikja-
hæsta landsliðskona Íslands, missti af
leikjunum við Noreg og Belgíu vegna
hnjámeiðsla en er komin í hópinn á ný
og til stóð að hún spilaði í dag.
„Edda þarf meiri tíma og ef hún
spilar ekkert hérna eykur það lík-
urnar á að hún geti leikið í Belfast á
miðvikudaginn,“ sagði Sigurður.
Hann gerir tvær breytingar á sínu
byrjunarliði frá 0:0 jafnteflinu við
Belga og óhætt er að segja að þær
séu athyglisverðar.
Laufey Ólafsdóttir og Málfríður
Erna Sigurðardóttir koma inn í byrj-
unarliðið og leika á miðjunni, í staðinn
fyrir Katrínu Ómarsdóttir, sem átti
ekki heimangengt frá Bandaríkj-
unum, og Dóru Maríu Lárusdóttur,
sem er á bekknum.
Laufey var síðast í byrjunarliði Ís-
lands fyrir rúmum sex árum, í leik í
Tékklandi í september 2005, og Mál-
fríður byrjaði síðast inni á í landsleik
fyrir rúmum fimm árum, í leik gegn
Portúgal á Laugardalsvellinum í júní
2006. Málfríður, sem yfirleitt leikur í
stöðu miðvarðar, kom á ný inn í
landsliðið í fyrra eftir fjögurra ára hlé
og Laufey spilaði sinn fyrsta lands-
leik í sex ár þegar Ísland vann Noreg
í síðasta mánuði.
„Laufey hefur átt ágæta innkomu í
tveimur síðustu leikjum og Málfríður
hefur áður komið inn á hjá okkur sem
varnartengiliður og staðið sig vel í
þeirri stöðu,“ sagði Sigurður.
Þóra B. Helgadóttir er í markinu,
Ólína G. Viðarsdóttir, Sif Atladóttir,
Katrín Jónsdóttir og Hallbera Gísla-
dóttir í vörninni, Laufey, Málfríður
og Sara Björk Gunnarsdóttir eru á
miðjunni, Fanndís Friðriksdóttir og
Hólmfríður Magnúsdóttir á könt-
unum og Margrét Lára er fremst.
Ísland er með 7 stig, vann Búlgaríu
6:0 og Noreg 3:1 en gerði 0:0 jafntefli
við Belgíu. Ungverjar eru án stiga
eftir 1:2 tap í Belgíu og 0:6 í Noregi.
Bakslag hjá Eddu
Laufey í byrjun-
arliðinu í fyrsta
sinn í sex ár og
Málfríður í fyrsta
sinn í fimm ár
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er búinn að
jafna sig eftir tvær aðgerðir á hné
í sumar en hann
reif liðþófa í
landsleik Íslands
og Danmerkur í
byrjun júní.
Ólafur var þá
nýbúinn að
semja við Zulte-
Waregem í Belg-
íu. Hann kemur
inn í leik-
mannahópinn í
fyrsta sinn fyrir útileik gegn
Standard Liege annað kvöld.
„Ég vonast eftir því að fá tæki-
færi í liðinu sem fyrst. Mér gekk
vel í fyrsta leiknum mínum með
varaliðinu á mánudaginn og þjálf-
arinn virðist æstur í að fá mig í
liðið. Þá þarf ég bara að æfa vel
og sjá svo til,“ sagði Ólafur við
Morgunblaðið í gær.
Hann kom til belgíska félagsins
frá SönderjyskE í Danmörku og er
ánægður með flutninginn.
„Já, það er gaman hérna og fjöl-
skyldan er mjög sátt. Mér líst vel á
belgísku deildina, sem er aðeins
sterkari en í Danmörku. Liðinu
mætti ganga aðeins betur, mark-
miðið var að komast í hóp sex
efstu liðanna en það hefur ekki
gengið enn sem komið er,“ sagði
Ólafur Ingi.
Zulte-Waregem er í 12. sæti af
16 liðum með 10 stig eftir 10 leiki
en er þó aðeins fimm stigum á eft-
ir Standard Liege sem er í 6. sæt-
inu.
Ólafur
Ingi fer af
stað á ný
Ólafur Ingi
Skúlason
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Flest bendir til þess að Bárður Ey-
þórsson verði næsti þjálfari úrvals-
deildarliðs Tindastóls í körfuknatt-
leik. Borce
Ilievski sagði upp
störfum eftir
ósigur Sauð-
krækinga gegn
Fjölni í fyrra-
kvöld en hann
hafði stýrt liðinu í
rúmlega eitt ár.
Samkvæmt
heimildum Morg-
unblaðsins settu
Tindastólsmenn
sig í samband við Bárð í gær og von-
ast til þess að hann stýri liðinu gegn
Grindavík í næstu umferð deild-
arinnar, jafnvel gegn Stjörnunni í
Lengjubikarnum annað kvöld.
Bárður er 43 ára gamall og þjálf-
aði síðast lið Fjölnis. Hann var með
það í hálft fjórða ár en hætti fyrir
hálfu öðru ári. Þar á undan var hann
um skeið þjálfari ÍR og áður þjálfari
Snæfells um árabil.
Sem leikmaður spilaði Bárður
með Snæfelli og Val, frá 1986 til
2000, samtals 191 leik í úrvalsdeild-
inni, og skoraði 14,6 stig að meðaltali
í leik á ferlinum.
Bárður í stað
Ilievskis hjá
Tindastóli?
Bárður
Eyþórsson
HANDBOLTI KARLA 2011
32JA LIÐA ÚRSLIT
Sunnudagurinn 23. október
13.30
14.00
16.00
17.00
Strandgötu
Húsavík
Víkinni
Mýrinni
Haukar 2
Völsungur
Víkingur 2
Stjarnan 2
Fram
Grótta
Afturelding
Fylkir
–
–
–
–
Mánudagurinn 24. október
19.30 SelfossiSelfoss ÍR–
Þriðjudagurinn 25. október
19.00 MýrinniHamrarnir Stjarnan–
Miðvikudagurinn 26. október
19.00
19.30
ÍM Grafarvogi
Víkinni
Fjölnir
Víkingur
HK
ÍBV
–
–
Fimmtudagurinn 27. október
19.15 VodafonehöllinniValur 2 HKR–
Emil Hallfreðsson skoraði mark
Verona í gærkvöld þegar liðið
gerði jafntefli, 1:1, við Nocerina á
heimavelli í ítölsku B-deildinni í
knattspyrnu. Emil jafnaði á 77.
mínútu og skoraði þar sitt þriðja
mark á tímabilinu. Hann skoraði
líka í síðasta leik, gegn Vicenza.
vs@mbl.is
Emil skoraði