Austurland


Austurland - 23.12.1974, Side 9

Austurland - 23.12.1974, Side 9
Neskaupstað 13. desember 1974. AUSTUELiND 9 að þeir fáu menn_ sem stund- uðu verkamannavininu einvörð- ungu, væru atvinnulausir hálft árið. Það var helst að snöp vseru þegar skip komu og þá einkum kola- og saltskip. og þegar taka þurfti ís og snjó handa íshús- unum. Og svo var nokkurra ’mánaða sumarvinna fyrir nokik- um hóp manna i Fóðurmjöis- verksmiðj unni. Og þetta var löngu fyrir tíma atvinnuleysis- trygginganna. Ég held að stærstur hlufi vinnandi m'anna hafi verið hlut- armenn við báta, landmenn og sjómenn, og margir stunduðu róðra á eigin trillum. Árabát- arnir munu hafa verið búnir að syngja sitt sáðasta vers þegar ég kom. Iilutarmenn voru litlu eða engu þetur settir en tímavinnu- ’menn og svipuðu máli gegndi um útgerðarmenn, þó að þeir hefðu að sumu leyti betri að- stöðu. Fiskverðið féll niður úr öllu valdi og ef við sfeppum 'þeim mismun. sem er á verð- gildi peninga nú og þá, var skippundið af fulliverkuðum labra ekki mikið hærra en eitt kíló af þorski slægðum með haus, er nú. Hér við bætist að iiskur varð næstum óseljanlegur og menn urðu kannski að bíða með hann í pakkhúsum árlangt áð- ur en hann aeldist. Allan þenn- an tíma máttu sjómenn bíða eftir Ikaupi sínu. Þeir fleyttu sér áfram á lánsviðskiptum, fengu úttekt gegn því að borga hana þegar fiskurinn fengist greiddur og eitthvað fengu þeir greitt í peningum. Hætt er við að mis- brestur hafi á því orðið, að kaupmenn fengju alillt sitt. Kauptrygginig var þá óþekkt og satt að segja fundust manni það bálfgerðir loftkastalar þeg- ar norðlenskir sjómenn hófu þanáttu fyrir kauptryggingu. Það var algengt að menn kæmu af vertíð með skuld á baki, ef eitthvað fór úrskeiðds með affla- brögð. Það var ekki sársauka- laust fyrir hrausta sjómenn að koma heim til allslausrar fjöl-' skyldu með tvær hendur tórnar eftir ’margra mánaða strit á sjó og landi. Lægsta árskaup, sem ég man til að hafa haft, var 700 krónur. Ef við reynum að gera okkur grein fyrir hvað þetta er mik- ið fé miðað við okkar tíma má kannski hafa í huga að verka- mannakaup hefur um það bil 200 faldast á þessu árabili. Mælt á þá mælistiku svarar þetta til, að ég hafi haft 140 þúsund króna árstekjur. Margir léttu sér lífsbaráttuna með því að reka smábúskap, höfðu kindur og kýr og ræktuðu kartöflur til heimilsnota. Þeir, sem unnu á bátunum og yið þá höfðu miklu 'meira fyrir stafni en tímavinnumenn, því ekki var skilist við aflann fyrr en um borð í skipi, sem flutti 'hann til útlanda. Oftast held ég að 7—8 manns hafi verið hlutar- menn við báta af algengustu stærð. Þeasir menn beittu lín- una, reru. gerðu að, vöskuðu fiskinn, þurrkuðu, pökkuðu og skipuðu út. Auk þess dyttuðu þeir að bát og veiðarfærum, settu upp línu, hnýttu á tauma og svo framvegis. Auk hluta- manna voru oft konur mð línuvinnu og fiskþvott upp á akkorð og fiskþurrkun í tí'ma- vinnu. Börn unnu og mikið að því að stofcka upp og þurrka fisk. Fátækt var auðvitað gífurleg á kreppuárunum og siveitar- þyngsil mjög miikil. Þetta var mjög erfitt tímabil fyrir bæinn, því breiðu bökin til iað bera út- svörin voru fá og alls ekki breið. — En þú mátt ekki gleyma því að segja frá hvernig ykkur vegnaði. — Nú, er ég ekki al’ltaf að því. Okkur hefur sjálfsagt ekki vegnað betur eða verr en al- mennt gerðist. Við systkinin vorum samhent um að fleyta heimilinu áfram. Tveir eQdri bræður mínir, Sigursveinn og Ingólfur, fóru strax að vinna við sjóinn og urðu mjög ungir fullgildir hlutai'menn. Óljóst man ég hvað Sigga gerði, en áreiðanlega hefur hún ekki ver- ið iðjulaus og í hennar hlut hef- ur komið að hjálpa móður sinni við heimilshaldið. Þar hefur oft þurft að taka til hendi með fjóra jarðvöðla á heimilinu. Þórður. yngsita systkinið, var ekki hár í loftinu þegar hann fór að stokka upp og beita. Gekk hann að þeim verkum með þeim ærslum. sem enn í dag einkenna öll hans vinnu- brögð. Aðal keppikeflið var að kom- ast hjá sveit. Það var skrambi erfitt um tíma og stundu'm var búið að áfcveða að segja sig til sveitar daginn eftir. Önnur úr- ræði voru þá ekki sjáanleg. En einhvernveginn fórst þetta alit- af fyrir og .a'ldrei voru þessi þungu spor s'tigin. Ekki held ég að við höfum nokkru sinni liðið skort. En við- urværið þætti ákaflega fábreytt nú á dögum. Uppistaðan í fæð- unni var auðvitað fiskur, sem aldrei var keyptur. Smjör sást ekki, smjörlíki var aðailfeitmet- ið. Kjöt var sjaldan á borðum. Jafnan var þó reynt að hafa það á sunnudögum, en tros var oft- ast á borðum sex daga vikunn- ar, stundum sjö. Við komum með kú sunnan af Strönd og áttum hana utn tíma. Við vorum því sæmilega sett með mjólk fyrst í stað. Eft- ir að kúnni var fargað, var sá mjólkurdreitill. sem ekki varð hjá fcomist að kaupa. fenginn hér í bænum, en þá voru hér á anmað hundrað kýr en er nú engin. Eins og ég vék að áðan voru tryggingabætur vegna ástæðna, sem móðir mín var í, ekki upp teknar. Hefðu þær þá verið eitthvað í liKÍngu við það sem nú er að kaupmætti, hefðum við verið ’mjög vel sett, því kröf urnar voru svo litlar og tæki- færin til að eyða pemngunum í vitleysu svo fá. þó að tilhneig- img hafi verið í þá átt. En við urðum að bjargast af aflafé mo'kkurra krakka. Þegar líða tók á fjórða ára- tug aldarimnar fór hagur okkar að skána. bæði vegna þess, að við komumst til þroska og svo tók hin þunga mara kreppunnar ögn að víkja. Þessi ár, kreppuárin, voru sá tími, sem ég fyrst og fremst mótaðist á. Af eigin raun kynnt ist ég þegar í æsku lífskjörum öreiga manna. Það var því í fyllsta máta eðlilegt og kom eins og af sjálfu sér, að ég þegar í upphafi tæki mér stöðu í fylkingu vinstri manna. þeirra, sem igerðu sér ljósa undirrót þjóðfélagsran'glætisins og ’mis- réttisins og vildu fjarlægja meinið með skurðaðgerð. ef önn ur ráð ekki dygðu. Og skoðana- lega stend ég enn í sömu spor- um að því er grundvaillaratriði snertir. Veit lítið um margt — En var skólagöngu þinni lokið með unglingaskólanum? — Já. nema ef telja skal mótorniáms'keið, sem óg fór á 1932. — Stóð hugur þinn ekki til I frekari mennta? — Efcki er fyrir það að synja. — En þér hafa verið allar leið ir lokaðar. — Ekki segi ég það nú kann- ski. Ég hefði líklega, eins og margir aðrir snauðir unglingar, getað brotist áfram til einhverr- ar menntunar. En kringumisitæð- urnar voru þær, að frá barns- aldri varð ég að teljast aðalfyr- irvinna og ábyrgðarmaður heim ilisins þótt bræður mínir ættu það eftir að skjóta mér ref fyrir rass hvað tekjur snerti. Ef ég hefði reynt að halda áfram niámi, hefði ég brugðist þeim siðferðilegu skyldum sem mér fannst á mér hvíla. Ég hlaut að skilja móður mína og systkini eftir í súpunni. Það kom aldrei til greina. Ég held að samá- byrgðin hafi alltaf verið rík í fjölskyldunni og yfirleitt held ég að fjölskyldubönd hafi ver- ið traustari þá en nú, og að börn hafi talið sig sfculdbundnari sínum nánustu. Ég veit ekki hvort harma skal ihv-e stutt varð í minni skóla- göngu. Ég held ég ihefði ekki viljað verða embættismaður ék'ki sýslumaður, ekki læknir og jsíst af öllu prestur, enda gæti ég ekki tónað! Ekki held- ur kennari. Ég hef jafnan lagt mikla stund á lestur og hann verið^ mín helsta tómstunda- iðja. Ég tel mig því ebki ómenn-t aðan þótt ekki sé ég langskóla- genginn. En þessi sjálfsmennt- u-n hefur verið alveg óskipufeig og ekki beinst meðvitað að neinu sérs'töku, þótt ósjálifrátt hafi ég lagt meiri rækt við eina greiin en aðra. Sérstaka ánægju hef ég haflt af sö'gulegum efn- um. jarðfræði, fornfræði og 'mannfræði ef lesitrarefnið er það alþýðlega framsett, að ó- lærður maður fái notið þess. Um sérfræðinga he-fur verið sagt, að þeir viti margt u-m fátt, en um mig má kannski segja að ég viti flátt um margt. Sjómennskan — En hvernig var atvinnu þinni háttað? — Hún var eingiöngu bundin við sjói-nn. Best gæti ég t-niað, að þangað til í fyrra sumar hafi ég samanlagt ekki unnið lengur en tvær vikur í tíma- vin-nu, þar af eiina vifcu í hálf- gerðri aitvinnubótavinnu við að safna möl í steypuna í steypta gejnninn utaihi við fiskvinnsiu- stöðina. Ég var hjá Níelsi við Snorra sumarið 1930 landmað-ur en reri þó allmikið. Sjálfur var Níefe formaðuir og va-r þe-ttia síðasta sumarið. sem hann -gferði út. Næsta sumar var ég ein-nig á Snorr-a, en þá var hann gerður út af fjórum -mönnum, Birni Ingvarsisyni, sem va-r formaður, Sigurjóni Kristjánssyni, Jó- hanni Eyjólfsisyni og Kristni Guðnia-syni frá Hafranesi. Það -mun hafa verið veturinn 1932 að óg brá á það ráð að fara á Hornafjarðarvertíð. Réði ég mig á Höfrunginn til Jakobs á Strönd. Sjálfsagt hefur vinskap- ur okkar Ásmúindar sjonar Jakobs og góð kynni mín af Strandarbeimilinu orðið til þess að ég fór á Höfrun'ginn en ekki einhvern bát annan. Hjá Jakobi var ég í nokkur ár. bæði á Hornafirði og hér hei’rna á sumr- um. Ég nenni ekki að rekja þessa sögu n-ákvæmfe-gia. e-n ég var enn nokkui’ ár með Bimi Ingvarsisyni á Snorra og Gauta. Kunni ég mjög vel við þessa menn báða, þótt þeir væru eins ólíkir o-g verða mátti, annar ró- lyndur og skipti sjaldan skapi, en hinn eins og funi og brást við heiftarle-ga, ef honum þótti gen-gið á rétt sinn. Síðast var ég á . Hoirnafirði 1945 og þá á Þráni Ölv-ers Guð- mundssonar, sem skömmu seinna var seldur til Færeyja. Fáeina vetu-r á stríðisárunum var ég ekki á Hornafirði. var þá á dragnótabáti. Ég hef ekki tölu á Hornafjarðarvertíðunum mínum. Sennileg-a hef ég verið þar 10 eða 11 vertíðir. Jakob á Strönd hél-t þeim sið, að fara tneð sjóferðabæn fyrir íhvern róður. Þega-r komið var út að Uxav-ogstaniga tók bann niðu-r húfupottliokið siitt og fóir með bænina með sjálfum sér. Einskis krafðist hann af ofcbur.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.