Austurland - 09.03.1978, Blaðsíða 4
4
AUSTtJRLAND
Neskaupstað, 9. mars 1978.
Frambjóðendur bafa orðið:
Eiríkur Sigurðsson
Hvað veldur vali
okkar í kosning-
unum í vor?
Hvað veldur vali okkar í kosn-
ingunum í vor. Það hljóta að vera
stefnuskrár flokkanna og svo hvern-
ig þeir hafa staðið við stefnu sína.
Sósíalismi er víðtækt hugtak, en
íslenskir sósíalistar hafa ekki fengið
lækifæri til að sýna stefnu sína í
verki, nema að mjög litlu leyti og á
takmörkuðum sviðum. Þar hafa
borgaraflokkarnir staðið í vegi.
í dag er aðeins einn flokkur með
sósíalíska stefnuskrá á íslandi og
pó tveir aðrir flokkar kenni sig við
samvinnu og alpýðu hafa Jæir aldrei
náð þeim markmiðum sínum, sem
upprunaleg hugsjón byggðist á, j>ar
sem borgaraleg öfl náðu yfirhönd-
inni í }>eim. Þess vegna getur íslensk
alþýða ekki treyst á neinn flokk
nema Alþýðubandalagið.
Borgaraflokkarnir hafa sýnt }?að,
að þeir eru jafn ófærir að stjórna
pessu landi í dag og J>eir hafa verið
undanfarna áratugi. Enginn sósíal-
isti efast um að allir landsmenn
gætu lifað hér á landi án þess fjár-
málamisréttis og öngþveitis sem
hór ríkir og allt er sprottið af
sömu rótum, p. e. hins kapítalíska
þjóðfélags. fslensk alþýða verður
að gera Alpýðubandalagið sem
sterkast, því þeim mun meiri verða
áhrif }>ess á stjórnmála)>róun hér-
lendis.
Eftir síðustu efnahagskollsteypu
og hina gömlu íhaldshrossalækn-
ingu hafa launpegasamtökin risið
upp til varnar og almenningur mun
standa saman um þær aðgerðir sem
ákveðnar verða til sóknar og
Jægar kosningar verða í vor vona ég
að launafólk muni hverjir }>að voru
sem gerðu pá sókn nauðsynlega.
Framsóknarflokkurinn hefur löng-
um haft mikil ítök í bændastétt
landsins og ráðherra landbúnaðar-
mála sl. sjö ár hefur verið úr hon-
um. Þrátt fyrir |>etta er bóndinn á
meðalbúinu lægst launaði launþeg-
inn á landinu. Erfiðleikar á ýmsum
sviðum landbúnaðar hafa gert J>að
að verkum að hann hefur legið und-
ir stöðugri gagnrýni óprúttinna rit-
stjóra og meðreiðarsveina þeirra.
Samt hefur framsóknarráðherrann
ekki gert neinar pær aðgerðir sem
bætt hafa stöðu landbúnaðarins,
nema síður væri.
Ég held að bændur verði að gera
sér ljóst að peir standa í sömu spor-
um og launþegar og verða að berj-
ast með J>eim gegn ranglátu stjóm-
arfari og þar með bættri eigin stöðu.
Sameinumst í að bæta þjóðfélag
okkar og styðjum }>ann eina flokk
sem hefur sósíalíska stefnuskrá.
Vopnafirði í lok febrúar.
Eiríkur Sigurðsson
Hafnargarðurinn ó Vopnafirði
tekinn í notkun
Nú er búið að taka nýja stálpils-
garðinn á Vopnafirði í notkun. Mun
hann gjörbreyta allri aðstöðu við
höfnina á staðnum og aðstaða sjó-
manna mun breytast mikið til bóta.
Þó svo að farið sé að nota garðinn
er ýmsu enn ólokið við þetta mann-
virki. Eftir er að steypa ]>ekju og
ganga frá honum endanlega, en
skipin eru farin að leggjast upp að.
Sem dæmi um )>að hversu nauðsyn-
leg }>essi framkvæmd var má nefna
að nú getur togarinn Brettingur
legið við garðinn }>egar eitthvað er
að veðri en áður þurfti hann að
liggja úti á firði.
Nú standa yfir framkvæmdir við
smábátabryggju, sem byggð er við
nýja garðinn. Mun tilkoma bryggj-
unnar bæta mjög aðstöðu við smá-
bátaútgerð á Vopnafirði.
Gera Vopnfirðingar sér nú vonir
um að fá annan togara, en }>að er
alger forsenda J>ess að jöfn vinna
geti orðið allt árið við fiskvinnslu
á staðnum.
— E.S./S.G.
WVWWWWWWWVWWWWWWWVWWWVV'V'
TIL SÖLU
Borðstofuskenkur — Sjónvarp
H.M.V. — Veggskápur.
Upplýsingar í síma 7583, Neskaupst.
WVW YWWVW VWWWVWVWWVWVVWVYWWv>
VWWWYYWWV WWYWWWWW W VW VWW V YV\
TIL SÖLU
Cortina XL 1600 árgerð 1974
ekinn 24 þúsund km, vel með far-
inn. Útvarp fylgir.
Upplýsingar í síma 7198, Neskaupst.
Stefnnmark - frnmMir
Alpýðubandalagið í Neskaupstað
hefur frá upphafi haft pann hátt á
fyrir kosningar til bæjarstjómar að
gefa út stefnuskrá. Með )>ví hefur
Al]>ýðubandalagið viljað gera bæjar-
búum ljósa grein fyrir stefnumiðum
sínum svo að þeir, sem vilja veita
}>ví brautargengi í kosningum, þurfi
ekki að vera í minnsta vafa um
hvaða stefnu )>eir eru að velja.
Stefnuskrá Al)>ýðubandalagsins
hefur ekki verið einskorðuð við
bæjarstjórnarmál í þröngum skiln-
ingi, enda gera Alþýðubandalags-
menn sér Ijóst, að bæjarmálin eru
ekki einangrað fyrirbrigði, slitið úr
tengslum við aðra )>ætti bæjarlífsins.
Stefnuskrá og kosningaloforð eru
sitt hvað. Stefnuskráin er leiðarljós
]>eirra, sem veljast til setu í bæjar-
stjórn fyrir Alþýðubandalagið og
|>eir taka mið af hermi í störfum
sínum á kjörtímabilinu. Innantóm
kosningaloforð eru allt annað og á
)>eim hefur AI}>ýðubandalagið eng-
an áhuga.
Að venju gaf Alþýðubandalagið
út stefnuskrá sína fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar. Vegna
prentaraverkfalls var ekki unnt að
gefa hana út í bæklingsformi, eins
og tíðkast hefur, heldur kom hún
út sem tveir fjórblöðungar. Nú er
tími fyrir pá, sem hana eiga að taka
hana fram, fletta henni og kanna
hvernig til hefur tekist.
f inngangi stefnuskrárinnar 1974
segir:
„Hér er um cið rœða stejnuskrú
Alþýðubandalagsins í málefnum
Neskaupstaðar fram setta í stuttu
mcili, en ekki kosningaloforð. Að
þessum málum verður unnið eftir
því sem styrkur flokksins og aðstœð-
nr franuist leyfa. Önnur kosninga-
loforð gefur Alþýðubandalagið
ekki“.
Þegar nú í lok kjörtímabilsins er
litið til baka, sýnist mér full ástæða
til að gleðjast yfir árangrinum. Þrátt
fyrir }>ung áföll í byrjun kjörtíma-
bilsins, sem leiddu af sér mikinn
kostnaðarauka annars vegar og
tekjumissi hins vegar, og prátt fyrir
verðbólgubál íhaldsstjórnarinnar,
hefur mörgu verið hrundið í fram-
kvæmd, öðru komið langt á veg, en
vissulega hefur sumt orðið að sitja
á hakanum.
í næstu blöðum er ætlunin að
gera bæjarbúum nokkra grein fyrir
]>eim málefnum. sem unnið hefur
verið að á kjörtímabilinu. Rifjað
verður upp að hverju var stefnt og
sýnt hvað hefur áunnist í hinum
ýmsu málaflokkum svo sem fræðslu-
málum, félagsmálum, atvinnumál-
um, heilbrigðismálum og gatnagerð
svo dæmi séu tekin.
— Krjóh.
„Og hér ríkir
kyrrð í dögun"
Þriðjudagskvöldið 14. mars verð-
ur sovéska kvikmyndin „Og hér
ríkir kyrrð í dögun“ sýnd í Egilsbúð
í Neskaupstað. Er kvikmynd )>essi
fengin til Neskaupstaðar frá MÍR,
en hún var sýnd á sovéskri kvik-
myndakynningu í Laugarásbíói
haustið 1977 og hlaut pá mjög góða
dóma gagnrýnenda.
Kvikmyndin er gerð á árinu 1972
og er byggð á samnefndri skáldsögu
eftir Boris Vasiljéf. Er myndin með
ensku tali og er leikstjóri hennar
einn af viðurkenndustu leikstjórum
Sovétríkjanna.
Efni myndarinnar eru atburðir úr
seinni heimsstyrjöldinni, en í )>eim
hildarleik færði sovéska þjóðin
miklar fómir.
Sovétmenn }>ykja standa mjög
framarlega í kvikmyndaiðnaði og er
}>að kvikmyndaunnendum örugg-
lega mjög hollt að kynna sér kvik-
mvndagerð þeirra.
i WWWWWYYWVWWW WW\ VVWWVWW \ \ \ \ V
Ibúð óskast
Óskum eftir að taka á leigu 2—3
herbergja íbúð.
Upplýsingar gefa Hörður og Ásta
í síma 7325, Neskaupstað.
AVVW W W WW YW\ VYYVYYYW VYYYYYV WYWVWV
WWWYVWWWWWWYWWWWWYWYWWWWWWWA VWWVYVWYWYWYVWWYYWWWYVWWY V>
Árshátíð
Mjófirðingafélagsins verður haldin í Egilsbúð laugardaginn 11.
rnars og hefst kl. 20.00. — Félagsmenn komi með trogin kl.
17.00—18.00.
Miðasala verðr föustudaginn 10. mars kl. 16.00—18.00 í Egils-
búð.
| NEFNDIN
^'^/'^^/WYVY'VVW/VVVVVVWV\WYYVWVVVVVY\VWVVVVVVYVWVVVYYVYVYlVVVVVWV\YWVVVWY\\V>
WWVWWVVWWWWWVVWVWVWWWWWVWV