Austurland - 15.02.1979, Page 1
29. árgangur
Nýr skóli á
Breiðdalsvík
Á Breiðdalsvík er hafin bygging
nýs grunnskóla og hefur verið
unnið fyrir um 20 milljónir króna,
aðallega síðustu mánuðina fyrir
áramótin.
Skólinn sem börnin á Breiðdals-
vík sækja er í Staðarborg og að-
eins (tpp í 8. bekk. StaðsetnLng
þess skóla er afar óhentug þar
sem aka þarf öllum börnunum
þangað.
Bygging grunnskólans verður
fjárfrek framkvæmd og sveitar-
stjórinn, Helgi Guðmundsson,
segist ekki vera búinn að reikna
það dæmi til enda, en þeir hafi
reynt að nota hið eindæma góða
tíðarfar fram að áramótum til hins
ýtrasta til að vinna að þessu hags-
munamáli byggðarinnar.
Bræðslan á Breiðdalsvík er nú
tekin til starfa eftir nokkrar end-
urbætur og viðgerðir sem nauð-
synlegar þóttu. Það er Varðarút-
gerðin á Stöðvarfirði sem rekur
bræðsluna, forstjóri er Friðrik Sól-
mundsson. Þar vinna nú 12—14
manns. — lóa
Námsflokkar
Neskaupst.
Námsflokkarnir hafa nú byrj-
að starfsemi st'na. Ekki fékkst
nægilegur fjöldi í allar greinar
sem boðið var upp á. í þeim nám-
skeiðum sem hófust í janúar er
þátttaka þessi: fimmtán f ensku,
níu f frönsku, 25 í leikfimi, 13
f garðyrkju og 12 í skattskýrslu-
gerð. — Krjóh.
NESKAUPSTAÐUR:
Breytt skipan
Á fundi bæjarstjórnar Neskaup-
staðar 6. febrúar var samþykkt ný
reglugerð um skipan félagsmála í
kaupstaðnum í samræmi við sam-
þykkt bæjarstjórnar frá afmælis-
fundinum 7. janúar.
Skv. 1. grein hinnar nýju reglu-
gerðar starfa í Neskaupstað fé-
lagsmálaráð og tómstundaráð, og
hafa þau framkvæmd félagsmála-
starfsemi í kaupstaðnum með
höndum.
Félagsmálaráð fer með stjórn
lýðhjálparmála og er höfuðverk-
efni þess að vinna að eflingu fé-
lagsiegrar þjónustu í Neskaupstað,
skipuleggja fyrirbyggjandi félags-
starf og hjálpa fólki til sjálfsbjarg-
ar með ráðgjöf, upplýsingum og
endurhæfingu.
Tómstundaráð fer með stjórn
tómstundamála að svo miklu leyti
sem bæjarfélagið lætur þau til
sín taka. Höfuðmarkmið þess er
að vinna að eflingu heilbrigðs
tómstundastarfs bæjarbúa og skal
það beita sér fyrir nánu sambandi
óg samstarfi við skóla, félög og
samtök sem tómstundastarf hafa
á stefnuskrá sinni. Skal tómstunda-
ráð hafa forgöngu um að halda
NESKAUPSTAÐUR:
Alþjóðaár barnsins 1979
Neskaupstað, 15. febrúar 1979.
Helgi Seljan
alþingismaður
Aðeins örfá orð útaf allbiturri
grein lngólfs, vinar míns, Arn-
arsonar í Austurlandi síðast.
Mér þykir býsna sárt ef þeir
vinir mínir á Fáskrúðsfirði, sem
ég hef heimsótt jafnoft og raun
ber vitni, ímynda sér að einhver
afturkippur sé þar í kominn vegna
ótta við gerðir mínar eða nánast
afbrot gegn þeim. Ekki kannast
ég þar við. En lítum á málin í
heild.
í fjárveitingamefnd var lögð
höfuðáhersla á sem allra hæsta
fjárveitingu til skólans á Fáskrúðs-
firði og hygg ég að þar hafi vart
verið unnt að ná lengra miðað við
allar aðstæður. Ekki síðri áhersla
var lögð á framlag til heilsugæslu-
stöðvar. sem var úti með 0 krón-
ur allt fram til hins síðasta hjá
undirnefnd, ekki af neinni ill-
girni þar, heldur aðeins af því hve
fjárskortur var mikill í áðurhafin
verk. Allt of lágt er framlagið,
en ef tekst að byrja á þessu ári er
ísinn brotinn og það er fyrir
mestu. Að því er nú stefnt og
ég get fullyrt það nú að fyrir for-
félagsmáia
fundi með þessum aðilum ekki
sjaldnar en tvisvar á ári.
Talið er eðlilegt að hin beina
framkvæmd tómstundamála verði
að mestu £ höndum starfandi fé-
laga og skóla sem njóta styrks
bæjarfélagsins beint eða óbeint,
þ. e. fjármagns eða aðstöðu nema
hvorttveggja sé.
Skal ráðið m. a. hafa umsjón
með rekstri mannvirkja og að-
stöðu til almennrar tómstunda-
starfsemi í eigu eða á vegum bæj-
arfélagsins, leggja fram tillögur
um aðgerðir á sviði tómstunda-
mála, hvetja til nýjunga og gera
tillögur um uppbyggingu á að-
stöðu og stuðning við tómstunda-
starf í skólum, félögum og sam-
tökum.
Félagsmálaráð leysir af hólmi
framfærslunefnd, barnavemdar-
nefnd, áfengisvarnarnefnd og leik-
vallanefnd. Tómstundaráð kemur
í stað íþróttanefndar, sundlaugar-
stjórnar, stjórnar sjómannastofu
og æskulýðsráðs.
Hér er um reglugerð að ræða
og þarf því samþykki félagsmála-
ráðuneytis. Má ætla að reglugerð-
in komi til framkvæmda í júrtí
í sumar. — Krjóh.
7. tölublað.
Eins og flestum mun kunnugt,
hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveð-
ið, að beina þeirri áskorun til
Helgi Seljan:
Framlagið er
mikil mistök
Svar við grein Ingólfs Arnars
göngu formanns fjárveitingar-
nefndar, Geirs Gunnarssonar, í
samstarfsnefnd, mun verkið hafið
nú og reiknað með heilsugæslu-
stöðinni fokheldri á miðju ári
1980. Ávinningur sem ég met
mikils eftir aðgerðarleysi síðustu
fjögurra ára.
Hafnarframlagið flokkast undir
mikil mistök, sem meðal annars
byggjast á röngum upplýsingum
frá Vita- og hafnamálaskrifstof-
unni um milljóna ónotað geymslu-
fé á lokastigi afgreiðslunnar. Full-
trúar Fáskrúðsfirðinga hafa verið
hér síðustu daga og úr hefur verið
og mun verða bætt á næstunni svo
sem unnt er. Hins vegar berast
frá nær öllum stöðum á Austur-
landi kvartanir og ásakanir um of
lítið í hafnarframkvæmdir, og þær
ásakanir eru réttar. Allt of lítið
fé er til þessa málaflokks til skipta.
Framhald á 3. sfðu
uðildarríkja sinna, að 'árið 1979
verði helgað málefhi barna í heim-
inuni. í franihuldi af því hefur
Menntamálaráð skipað undirbún-
ingsnefnd til að hvetja þá aðila,
sem á einhvern hátt láta sig mál-
cfni barna varða, til aðgerða á
barnaárinu.
Barnaverndarnefnd Neskaup-
staðar fór þess á leit nú nýlega
við ýmsar nefndir og félög í
bænum, að þær hefðu samvinnu
um að vekja athygli á kjörum og
málefnum barna í byggðarlaginu
nú á þessu ári. Var stungið upp
á því, að komið yrði á fót eins
konar framkvæmdarráði sem ynni
að þessu máli. Auk fulltrúa úr
barnaverndarnefnd, eiga eftirtald-
ir aðilar fulltrúa í þessu fram-
kvæmdaráði: Jafnréttisnefnd,
menningarnefnd, bókasafnsnefnd,
æskulýðsráð, foreldrafélag grunn-
skóla, dagheimilið og nemenda-
Undur og stórmerki
V:, " ■■■-. ■ ■■ " ■:•■■
,,Svo trúa menn ekki lengur á drauga“.
Ljósm. lóa
í froststillu og vatnsleysi síðast-
liðinnar viku sá ég dag einn mann
vappa um lóðina fyrir utan hús-
ið. Hann hélt báðum höndum
fram svo að þær mynduðu vinkil
og í hvorri hendi var teinn líka
beygður í vinkil og lék teinninn
laus í hendinni.
Þegar maðurinn gekk áfram
gerðust þarna undur og stórmerki,
teinarnir fóru skyndilega að hreyf-
ast, nálgast hvorn annan, lögðust
síðan í kross og loks alveg sam-
síða hvor öðrum. Þá stoppaði
maðurin og sagði: „Lögnin er
hérna“.
Vatnslögnin, sem árangurslaust
hafði verið leitað að í marga dága
með gröfu, loftbor og mannafla,
fannst nú með aðstoð tveggja
venjulegra víra sem krakkarnir
mínir notuðu f kricettleik. Engin
nútímatækni, enginn seguli aðeins
venjulegir teinar úr jámi. Mann-
inum varð líka að orði „Og svö
trúa menn ekki lengur á drauga*.
Þeir sem þarna notuðu járn-
teinana í fyrsta skipti voru pípu-
lagningamennirnir, Sigurþór
Valdimarsson og Jón Svanbjörns-
son. Báðir höfðu þeir verið á nám-
skeiðinu um snjóflóð, sem frá er
sagt annars staðar í blaðinu. Sig-
urþór sem slökkviliðsstjóri bæjar-
ins og Jón sem meðlimur slysa-
varnadeildarinnar.
Á námskeiðinu sem þeir létu
mjög vel af var þeim m. a. kennd
notkun víra til leitar. Vírarnir sem
éiga áð vera 2—-3 mm í þvermál
eru beygðir í vinkil með annán
endann ca 15 cm langan og hinn
endann 35—40 cm. Síðan eru þeir
lagðir í sitt hvora hönd, þannig
að þeir leiki lausir og ef síðan er
gengið yfir t. d. vatn eða mann
undir snjó eða jörð krossast vfr-
arnir. Svo einfalt er það. Eina
skilyrðið er að logn sé annars
fjúka vírarnir til. Hins vegar er
mönnum misjafnlega lagið að
handleika vírana og geta ekki all-
ir. Þó er talið að um 8 af hverjum
10 geti lært þessá kúnst.
— lóa
ráð G. í N. Auk þess er í ráði að
kalla til aðra aðila við framkvæmd
einstakra málaflokka, s. s. Sjálfs-
björgu ög starfsfólk spítalans.
Á fundi sem þessir aðilar héldu
nýlega, voru lögð drög að dagskrá
fyrir árið. Var ákveðið, að hafa
kynningar- og umræðufundi einu
sinni í mánuði fram á sumar og
taka upp þráðinn að nýju í haust.
Meðal málaflokka sem kynntir
verða sérstaklega eru:
1. Bókmenntir fyrir börn og um
börn.
2. Samvern foreldra og barna.
3. Áhrif skipulags bæja á lífs-
hætti og leikmöguleika barna.
4. Börn og tómstundir þeirra.
5. Barnið og atvinnulífið.
6. Heilsugæsla barna og heil-
brigðisþjónusta fyrir börn.
Fyrsti fundurinn verður haldinn
nú á sunnudaginn og er hann
kynntur nánar annars staðar í
blaðinu. Önnur atriði verða kynnt
nánar síðar.
Það er Ijóst, að þó margt sé
hér vel gert fyrir börn nú á tím-
um þá er líka margt ógert og
margt mætti betur fara. Barna-
árinu er einmitt ætlað að vekja
fólk til umhugsunar um stöðu
barna ( samfélaginu og finna leið-
ir til úrbóta. Það er von þeirra
sem í þessu framkvæmdaráði sitja,
að Norðfirðingar fjölmenni á
þessa dagskrárliði og sýni þannig
í verki að okkur er ekki sama um
velferð barnanna.
Þá er barnaverndarnefnd Nes-
kaupstaðar fús til samstarfs við
barnaverndarnefndir og aðra aðila
á Austurlandi um þessi mál.
— S. S.
Loðnuafli
Á þriðjudagskvöld hafði verið
landað rúmlega 150 þús. tonnum
sem skiptist þannig milli staða:
Vopnafjörður 19.000 tonn
Seyðisfjörður 42.000 tonn
Neskaupstaður 22.000 tonn
Eskifjörður 38.000 tönn
Reyðarfjörður 14.000 tonn
Fáskrúðsfjörður 9.500 tonn
Stöðvarfjörður 3.500 tonn
Breiðdalsvík 2.000 tonn
Djúpavogur 3.500 tonn
Höfn í Hornafirði l.ÖÖO tonn
Samt. 154.5000 tonn