Austurland - 15.02.1979, Síða 2
SKÍÐARÁÐ ÞRÓTTAR
__________lUSTURLAND_________________________
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Blaðncfnd: Ágúst Jónsson, Árni Þormóðsson, Bjarni Þórðar-
son, Guðmundur Bjarnason og Kristinn V. Jóbannsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir s. 7571 — h. s. 7374.
Auglýsingar og dreifing: Birna Geirsdóttir s. 7571 og 7454.
Pósthólf 31 — 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
sími 7571.
Prentun: Nesprent
Útgefandi kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Um skattheimtu
Vart greinir menn á um það, að í þjóðfélagi sem okkar
er skattheimta nauðsynleg. Hún er ekki einungis nauðsynleg
fyrir hinn sameiginlega sióð landsmanna allra, ríkissjóð, held-
ur einnig fyrir hinar smærri stjómunareiningar í landinu.
sveitarfélögin. Hvers konar opinberar framkvæmdir og allar
tegundir opinberrar þjónustu byggjast á því, að þegnamir séu
skattlagðir í einhverri mynd.
Eina ráðið til að komast hjá skattlagningu eða a. m. k.
draga verulega úr henni er f>að, að ríki og sveitarfélög fengju
pann ágóða, sem hvers konar rekstur skapaði, og gætu á þann
hátt staðið undir framkvæmdum og jjjónustu á vegum þessara
opinberu aðila.
Þessi lausn er vissulega sanngjörnust, enda hreinn sósíal-
ismi. En við eigum því miður langt í land, að þessi tilhögun
verði ofan á í okkar þjóðfélagi, og afturhaldið í landinu tryllist
jafnan, þegar á hana er minnst.
Það er því ekki um annað að gera en skattleggja lands-
lýðinn. Og pá koma upp ótal spumingar svo sem: Er skatt-
lagningin of mikil? Er skattlagningin réttlát? Eru skattamir
teknir í réttlátu formi?
Um það, hvort skattlagningin sé of mikil, má endalaust
deila og skal ekki fjölyrt um það að sinni. f þeim efnum verður
að meta hverju sinni j>örfina á nýjum framkvæmdum og auk-
inni jjjónustu annars vegar og skattþol einstaklinga og reksturs
hins vegar.
En hvað er pá að segja um réttlætið í skattskiptingunni
og það, í hvaða formi skattarnir eru af mönnum teknir?
Ríkisvaldið hefur í síauknum mæli farið meir og meir inn
á pá braut að auka óbeinu skattheimtuna svo sem söluskatt,
vörugjöld o. fl. Hlutur beins tekjuskatts hefur því orðið æ
veigaminni þáttur í tekjuöflun ríkissjóðs. í þessu felst mikið
óréttlæti, sem bitnar fyrst og fremst á bammörgum og stómm
heimilum,. Með þessu fyrirkomulagi eru barnmörgu fjölskyld-
umar að greiða mikiu meira til opinberra aðila en eðlilegt er.
Meira óréttlæti er þó fólgið í því, að fyrirtæki og einstak-
lingar, sem einhvem rekstur hafa með höndum, geta á hægan
hátt bæði löglegan og ólöglegan komist hjá því að greiða af
launum sínum og hagnaði hlutfallslega jafnháan tekjuskatt og
hinn almenni launþegi.
Mest er þó kannski óréttlætið og brotalömin alvarlegust,
þar sem eru hin gífurlegu vanskil á söluskatti, og ekki síst
þegar ætla má, að oft sé söluskatturinn lagður oftar en einu
sinni á hverja vöru- eða þjónustueiningu.
Nokkuð hefur núverandi ríkisstjóm gert til að draga úr
því óréttlæti skattheimtunnar, sem hér hefur verið drepið á.
Má þar nefna álagningu hátekjuskattsins svonefnda og lækkun
söluskatts á matvörum. Áfram þarf að haida á þeirri braut og
Áhuginn fer mjög vaxandi
fyrir skíðaíþróttinni
Greinilegt er að áhugi almenn-
ings fyrir skíðaíþróttum fer mjög
vaxandi hér í bæ sem annars stað-
ar.
I því sambandi reynir Þróttur
að gera það sem hann getur til
þess að mæta aukinni þörf fyrir
bætta aðstöðu vegna skíðaíþrótt-
arinnar. Má í því sambandi nefna
nýju skíðalyftuna, sem er mesta
fjárfesting, sem félagið hefur lagt
í til þessa, en hún kostaði milli 6
og 7 milljónir króna.
Það sem helst háir félaginu í
þessari viðleitni er vöntun á full-
orðnu fólki til starfa við skíða-
mannvirkin þ. e. skíðalyftur og
skíðaskálann.
Það er því einlæg ósk skíða-
ráðsins að áhugafólk um þessa
ágætu íþrótt veiti félaginu liðsinni
og gefi sig fram við formann
skíðaráðsins Ólaf Sigurðsson,
íþróttakennara.
VeJ heppnað
skíðanámskeið
Fyrir stuttu lauk hér mjög vel
heppnuðu skíðanámskeiði, sem
haldið var fyrir barnaskólanem-
endur, aldursskeiðið 9—12 ára.
Kennarar á námskeiðinu voru
Sigríður Jónasdóttir frá Akureyri
og Ólafur Sigurðsson, Neskaup-
stað.
Meiningin er að fljótlega hefjist
námskeið fyrir yngri bekki bama-
skólans og einnig fyrir nemendur
Gagnfræðaskólans. Kennari verð-
ur Ólafur Sigurðsson.
Skíðalyftur
Undanfarnar tvær helgar hefur
nýja skíðalyftan í Oddsdal verið
í gangi. Aðsókn hefur verið geysi-
lega mikil.
1 sambandi við það, að fólki
finnst fremur dýrt að þurfa að
greiða 1000 kr. fyrir daginn í
Oddsdalslyftunni og kr. 500 fyrir
börn, þá hvetur skíðaráð fólk til
þess að kaupa árskortin, sem er
tvímælalaust miklu hagkvæmara,
en þau fást bæði hjá Ólafi Sig-
urðssyni, Sverristúni 1 og í Apó-
tekinu og kosta fyrir fullorðna
kr. 10-þúsund og fyrir böm kr.
5-þúsund og gilda fyrir báðar
lyfturnar. Annars kostar dagkort-
ið í „Hjallalyftuna" kr. 400 fyrir
fullorðna og kr. 200 fyrir börn.
Skíðatrimm
Á sunnudaginn kemur, efnir
Skíðasamband íslands til allsherj-
ar skíðatrimms og er skíðatrimm-
ið upphaf að kerfisbundnu starfi,
sem Í.S.f. er að setja á laggirnar,
til eflingar almenningsíþróttum.
Á morgun gefur Skíðaráð Þrótt-
ar út dreifibréf þar sem skíða-
trimm vetrarins verður kynnt nán-
ar.
Skíðamiðlun
Skíðaráðið hefur grun um að
ýmsir liggi heima með nothæfan
skíðaútbúnað þ. e, skíði, skíða-
skó o. fl. sem þeir af einhverjum
ástæðum nota ekki og vildu gjarn-
an losna við. Einnig er það grun-
ur okkar, að ýmsir, sem áhuga
hafa þó fyrir íþróttinni, en telja
sig ekki hafa efni á að kaupa
nýjan útbúnað, myndu slá til, ef
á boðstólnum væri ódýr útbúnað-
ur, sem hægt væri í það minnsta
að byrja með.
í þessu sambandi hefur skíða-
ráð ákveðið að koma upp skíða-
miðlun þar sem fólk geti losað
sig við eldri útbúnað og aðrir
leitað eftir ódýrum búnaði, að
sjálfsögðu bæði fyrir börn og full-
orðna.
Þeir sem áhuga hafa fyrir þessu,
eru beðnir um að koma með skíða-
útbúnað, sem þeir vilja losna við
(verðmerktan) að Sverristúni 1
(Ólafur Sigurðsson, íþróttakenn-
ari) n. k. mánudag og þriðjudag
kl. 18—20 og þeir sem áhuga
hefðu á að fá sér ódýran skíða-
útbúnað athugið það mál á sama
stað og sama tíma miðvikudag
og fimmtudag.
Að lokum vill skíðaráð hvetja
alla, sem eiga skíði, að draga þau
nú fram og nota snjóinn meðan
hann er. — S. Þ.
KIRKJA
Messa í Norðfjarðarkirkju n.
k. sunnudag, 18. febr., kl. 2.
Barnastund í kirkjunni laugar-
dag kl. 10.30.
Sóknarprestur
EFNALAUGIN
Neskaupstað
verður opin 19.—23. febrúar.
NESKAUPSTAÐUR
RARNAÁR
Barnabókmenntir
eru á dagskrá í fundarsal Egilsbúðar sunnudaginn 18
febrúar.
Silja Aðalsteinsdóttir fjallar um íslenskar barna-
bækur.
Lesið verður upp úr nokkrum jteirra.
* Sýnishorn íslenskra barnabóka liggur frammi.
Umræður og kaffi.
Barnagœslci verður fyrir börn eldri en 2ja ára í Sjó-
mannastofunni á meðan fundurinn stendur yfir. Þar
verður væntanlega glatt á hjalla.
MENNINGARNEFND
Æðallundur
Aðalfundur Kvennadeildar SVFÍ, Norðfirði verður
haldinn í Egilsbúð mánudaginn 19. febrúar kl. 21.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kaffiveitingar. — Nýjar félagskonur velkomnar.
S T J Ó R N I N
búa svo um hnúta, að fyrirtæki og einstaklingar, sem atvinnu-
rekstur stunda, greiði einnig sinn skatt.
Viðbrögð íhaldsins við þessum tilraunum í réttlætisátt
eru besta sönnunin fyrir j'ví, að í rétta átt er stefnt.
Auka ber hlut beinna skatta í tekjum ríkisins og umfram
allt herða mjög allt skattaeftirlit, svo að komist verði fyrir
skattsvik. Skattalög pari að gera þannig úr garði, að þau heimili
ekki óeðlileg undanskot frá skatti, sem nú eru leyfileg. Draga
ber úr innheimtu óbeinna skatta, en jafnframt }>arf að tryggja
að söluskatti verði skilað að fullu.
Náist }>essi atriði fram, er nokkur von til j>ess, að skatt-
heimtan færist til réttlátari vegar. — B. S.
Gistið
í hjarta
borgarinnar
Bjóðum mjög hagstæn
vetrarvcrð. Biört og rúmgóð
herbergi og viöurkenndan
öergstadasthæti 37 veisluatat. Sérstakt aísláttar-
SIMi 21011 verð tyrir hópa.