Austurland - 15.02.1979, Síða 4
Auglýsið í Austurlandi
Símar 7571 og 7454
Neskaupstað, 15. febrúar 1979. Gerfst ásklÍfendUr
Innlánsviðskipti er leiðin til lánsviðskipta.
' SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR &
— Ljósm. L. K.
FRÁ BŒJARSTJÓRN
NESKAUPSTAÐAR:
Frá bygginga-
nefnd
Erlingur Ólafsson lagði fram
og kynnti skýrslu sína um bygg-
ingar í Neskaupstað á sl. ári. Þar
kemur fram m. a„ að flutt var
inn í 11 íbúðir á árinu, 15 aðrar
urðu fokheldar og enn aðrar 9
voru í smíðum. Auk pess voru
teknar í notkun 4 viðbyggingar og
5 aðrar voru í smíðum.
Af öðrum byggingum, sem eru
á ýmsum byggingarstigum, má
nefna birgðahús olíufélaganna,
fjölbrautaskóla og nýbyggingu
við F.S.N.
Skýrsla VST
Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddsen hefur sent hingað skýrslu
um ástand í steinsteypufram-
leiðslu í Neskaupstað, byggingar-
efnavinnslu o. fl. Skýrslan var
rædd og sampykkt að fá hingað
eins fljótt og unnt er dæluskip
til að leita að og dæla steypuefni
og fyllingarefni úr sjó. Þá var
einnig sampykkt að fara þess á
leit við VST að þeir geri tillögur
til úrbóta varðandi framleiðslu
steinsteypu í bænum.
Að lokum lýsum við fyllsta
þakklæti til þeirra í Neskaupstað
sem aðstoðuðu okkur og sóttu
námskeiðið".
Almannavarnir ríkisins hafi
þökk fyrir þetta framtak. Fræðsla
um þessi mál hefur legið of lengi
í láginni af hálfu yfirvalda. Það
að Almannavarnir taka aðra þætti
en þá, sem þeim var ætlað, með
í námskeiðahaldið undirstrikar
einungis vanrækslu annarra og
að þessir þættir verða ekki sund-
urslitnir ef árangur á að nást.
— lóa
Námskeið
Nokkrir þátttakenda á námskeiðinu.
aðvörunum og miðlar þeim til
annarra staða?
Hafþór: „í öllu skipuiagi al-
mannavarna er kveðið á um
skyldu vissra aðila til að tilkynna
almannavörnum ríkisins eða al-
mannavarnanefnd sveitarfélags um
allar þær hættur sem ógnað geta
öryggi fólks og byggðar. Tengsl
almannavarnanefndanna verður að
auka. Þær eru eini aðilinn sem
virkur er í þessa veru á hinum
ýmsu stöðum og sá aðili sem ber
ábyrgð á öryggi íbúanna“.
— Er einhver nefnd eða stofn-
un sem starfar markvisst að að-
gcrðum á snjóflóðamálum? Vinna
inenn hver í sínu horni eða er
þarna samstarf?
Helgi: „Eftir snjóflóðin ’74 var
sett á stofn á vegum rannsóknar-
ráðs ríkisins nefnd sem gerði til-
lögur og skilaði til forsætisráðu-
neytisins um fyrirkomulag snjó-
flóðarannsókna og skipan snjó-
flóðamála. Þessi skýrsla var síðan
send almannavörnum sem lögðu
áherslu á að komið yrði upp at-
hugunarstöð snjóflóða á a. m. k.
4—5 stöðuni t. d. Siglufirði og
ísaf:rði í líkingu við þá stöð sem
þá þegar var starfrækt í Neskaup-
stað.
Eftir að almannavarnir sendu
þessar tillögur frá sér er málið í
nokkurri þoku. Eini þáttur til-
lögu nefndarinnar sem hefur hlot-
ið endanlega skipan er þáttur al-
mannavarna. Þættir sem ekki eru
komnir á hreint eru: snjóflóða-
varnir, mat á hættusvæðum og
gerð varanlegra varnarvirkja, þ.
e. viðbrögð við yfirvofandi snjó-
flóðahættu ásamt málum sem
varða björgun úr snjóflóðum.
Þáttur veðurstofu er einnig
óljós“.
Hafþór: „Ég vona að þetta skýr-
ist og að samstaða náist með þeim
aðilum sem faldir verða aðrir
þættir snjóflóðamála, svo að um
samræmt átak verði að ræða.
Ég vil ítreka að af hálfu al-
mannavarna er hér um markvissa
fræðslu að ræða sem ekki verður
afgreidd í eitt skipti fyrir öll held-
ur endurtekin með vissu árabili.
Barnaár:
Barnabókmenntir
um snióflóð
Um síðustu helgi var haldið i
Neskaupstað námskeið í snjó-
flóðavörnum á vegum almanna-
varnanefndar Neskaupstaðar og
Almannavarnaráðs.
Blaðinu lék forvitni á að vita
hvernig unnið væri að þessum
málum yfirleitt og fékk áheyrn
hjá tveimur leiðbeinendanna, þeim
Helga Björnssyni, jöklafræðingi og
Hafþóri Jónssyni frá Almanna-
vörnum ríkisins. Þriðji leiðbein-
andinn var Ingvar Valdimarsson,
frá Flugbjörgunarsveitinni.
Hafþór varð fyrst fyrir svörum:
„Neskaupstaður er fyrsti staður-
inn af mörgum sem heimsækja á.
Markmið námskeiðsins er að
miðla sem víðast þeirri þekkingu
sem menn hafa aflað sér á þessu
sviði, þekkingu sem best er kom-
in hjá þeim mönnum sem helst
þurfa að búa við snjó og kunna
að umgangast hann.
Við höfum reynt að byggja það
upp á þann hátt.að veitt sé bæði
fræðileg og verkleg þjálfun sem
unnt er að veita á 2 dögum. Nám-
skeiðið er ætlað þeim aðilum sem
stjórna almannavörnum á hverjum
stað ásamt björgunarsveit lögreglu
og slökkviliðsmönnum, sem óhjá-
kvæmilega verða fyrstu aðilar sem
kallaðir verða til starfa ef óhöpp
dynja yfir.
Aðalefni námskeiðsins er mat á
snjóflóðahættu, gagnasöfnun, yfir-
lit um hættu, virkjun almanna-
varna, rýmingaráætlanir, fræðileg-
ir þættir snjóflóðabjörgunar og
verkleg kennsla úti, f snjóflóða-
björgun.
Ferð þessi er sú fyrsta sem far-
in er til kynningar á verkefnum
almannavarna sem tengjast snjó-
flóðum. Þekking heimamanna hér
kemur jafnvel sérfræðingum að
miklum notum“.
Helgi: „Við erum í og með
komnir hingað til að Iæra áður
en við höldum áfram".
á dagskrá í Egilsbúð n. k. sunnudag
Þeir hrúgast upp og þyrma yfir
okkur pættirnir sem við í algleymi
lífsgæðakapphlaupsins höfum van-
Næg vinna á
Breiðdalsvík
Á Breiðdalsvík er nú næg at-
vinna en um sama leyti í fyrra
var atvinnuleysi þar eða um 20
manns á atvinnuleysisskrá. Afli
línubáta sem gerðir hafa verið út
frá Breiðdalsvík hefur verið mjög
góður frá áramótum. Þeir hafa
verið með þetta 5—11 tonn í róðri.
Útflutningsverðmæti aflans nemur
yfir 60 milljónum króna þegar bú-
ið er að vinna úr honum.
Starfsemi Hraðfrystihúss Breið-
dælinga hf. er í fullum gangi.
Nauðsynlegar endurbætur til að ná
fram auknum afköstum er þar í
undirbúningi, þar á meðal undir-
búningur að ákvæðisvinnukerfi.
í frystihúsinu vinna nú um 46
manns þar af 9 í y2 dags starfi.
10 manns hafa verið fengnir til
starfa frá Ástralíu.
— H.G./lóa
rækt að leiða hugann að. Einn
þeirra er val þeirra bóka sem
börn. okkar eiga kost á að lesa.
Eða hversu margir hafa brotið
heilann um það hvers konar
barnabækur eru gefnar út, hvers
konar bækur bömin þeirra eiga
kost á að lesa, hvernig bækur þau
lesa eða hvort þau á annað borð
lesa.
Ætli okkur og börnum okkar
væri ekki bara hollt að velta dá-
lítið vöngum yfir barnabókum?
Á sunnudaginn kemur gefst okk
ur tækifæri til að fræðast dálítið
og skiptast á skoðunum um barna-
bækur. Á vegum Menningarnefnd-
ar Neskaupstaðar mun Silja Að-
alsteinsdóttir cand. mag. fræða
okkur um íslenskar barnabækur,
bækur úr bókasafninu munu liggja
frammi, lesið verður úr nokkrum
þeirra, boðið verður upp á mola-
kaffi og vonandi munu skapast
fjörugar umræður.
Á meðan fullorðna fólkið hlust-
ar og skeggræðir geta bömin unað
sér í Sjómannastofunni f umsjá
góðs fólks. Þar verða ekki undir-
búin skemmtiatriði til þess að
sitja og horfa á, heldur er þess
Silja Aðalsteinsdóttir
cand. inag.
vænst að allir geti unað sér saman
við söng, dans og leik.
— lóa
FÉLAGSVIST A. B. N.
föstudagskvöld kl. 9.
Fjórða kvöldið í 5
kvölda kepjminni.
Gunnar Ólafsson
veðurathugunannaður
Hafþór: „Hér hefur verið imn-
ið skipulegt starf á mati á snjó-
flóðahættu og það er alveg ein-
stakt, það mættu aðrir staðir taka
sér til fyrirmyndar, starf Gunnars
Ólafssonar hefur sannað að veðr-
átta er faktor í snjóflóði og það
verður ekki unnið nema með at-
hucunum á staðnum sjálfum".
Helgi: „Það er bráðnauðsynlegt
að koma upp mati á hverjum stað.
Þó að veðurathugunarstofan komi
með spá fyrir heila landshluta þá
þurfa heimamenn að vinna þetta
líka, það þarf hvorttveggja að
vera‘‘.
— Hvernig er samstarf milli
staða? Er einhver sem tekur við
Ekki er mark að draumum
í liorrabyrjun dreymdi einn af frammámönnum Al-
pýðubandalagsins í Neskaupstað undarlegan draum.
Honum ]>ótti hann vera staddur á leiksviði og var verið
að leika Skugga Svein. Þótti manninum sem hann sjálf-
ur færi með hlutverk Ketils en Jósep gamli Djúgasvílí
léki Skugga. Þeir félagar sátu fyrir framan hellinn og
brýndu hnífa sína og sungu við raust:
Flokkurinn setn fór i stjórn (les: stjóddn)
og fólksins von á þingið bar
gargar nú eins og grammófónn
göinlu kratalummurnar.
Maðurinn vaknaði við svo búið og strauk sér fast um
ennið og mælti eins og Sighvatur Þórðarson á morgni
síns banadags: Ekki er mark að draumum.