Austurland - 28.06.1979, Blaðsíða 3
Hlupu án Morgunblaðsmiða
Hlaupinu umhverfis landið er
nú lokið. Gekk það í alla staði vel
og tæplega 4000 manns höfðu
hlaupið með keflið er yfir lauk.
U.Í.A. hljóp lengst allra héraðs-
sambanda eða rúma 350 km. —
Eitt leiðindamál hefur sett svip
sinn á hlaupið og er það auglýsing
frá Morgunblaðinu sem á hlaup-
arana hefur verið límt. Hafa mót-
mæli gegn þessu komið víða að
af landinu. Einkum vegna þess að
stjórn F.R.Í. fór með þetta eins
og mannsmorð og félögin ekki
látin vita af því hvers krafist var
af meðlimum þeirra annað en að
hlaupa. Ekki var þó Moggaaug-
lýsingunum dreift af mikilli ná-
kvæmni né með miklum eftir-
rekstri hér eystra. — Engin þeirra
er hljóp fyrir Þrótt suður í Beru-
firði sá ástæðu til að merkja sig
Mogganum og var það látið átölu-
laust og sjálfsagt hefur svo verið
um fleiri. — Þrótturunum og
Minning...
Framhald af 4. síðu.
Hér hæfir ekki mikið meira en
geta þess, sem sameiginlega ein-
kenndi alla þessa menn: karl-
mennskan, dugurinn, drenglund-
in. Það voru eðliskostir, sem þá
alla prýddu. Eiríki kynntist ég
best, hann var einn af mínum
bestu samherjum á Eskifirði, en
svo var um fleiri úr þessum hópi.
Þar fór einstakur mannkosta-
maður, sem allir mátu og báru
traust og hlýhug til. Öll mín kynni
voru þar á einn veg og honum færi
ég sérstakar þakkir í söknuði og
eftirsjá. Eins hlýt ég að minnast
sérstaklega Stefáns Guðmunds-
sonar, þess góða og hjartahreina
drengs, sem ævinlega var hinn
sami, hvað sem á gekk. En eitt
stendur ofar öllu öðru: við erum
lostin sárum trega, djúpum harmi
vegna þessa óvænta og hörmulega
slyss.
Eðlilega reikar hugurinn helst
til þeirra, sem nú eiga um sárt að
binda og blessunar skal þeim öll-
um beðið af einlægum saknaðar-
hug.
Eiginkonum og börnum þeirra
Eiríks og Jóhannesar skulu færð-
ar sérstakar samúðarkveðjur.
Aldraðri móður Stefáns, foreldr-
um þeirra Sveins og Kjartans og
ekki síst góðvini mínum Ingvari í
Dölum og konu hans, foreldrum
Gunnars Hafdals færi ég einlægar
samúðarkveðjur.
Baráttuhetjunni okkar í Nes-
kaupstað, Bjarna Þórðarsyni, sendi
ég hlýjustu kveðjur mínar. Orðs
er eðlilega vant á stundu sem
þessari. Minningin lifir og merkið
stendur, þó maðurinn falli, er með
réttu sagt.
Minning þessara mætu heiðurs-
manna verður öllum syrgjendum
þeirra mikil huggun harmi gegn.
Ég bið allar góðar vættir að
veita þeim styrk í sárri sorg
þeirra. Kveðjur mínar eru yljað-
ar hlýrri þökk og heitri samúð.
Þeim horfnu skal helguð virðing
okkar allra, svo sem þeir áttu
skilið.
Blessuð sé minning þeirra allra.
Helgi Seljan.
Hús til söiu
íbúðarhúsið að Nesgötu 39,
Neskaupstað, er til sölu.
Áskilinn réttur til að taka hvaða
tilboði sem er, eða hafna öllum.
Sigurður Halldórsson
Athugið!
Sótum og stillum kynditæki.
RÖRTÆKNI HF.
Símar 7395 og 7621
Neskaupstað
Austramönnunum sem hlupu í
Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði voru
ekki einu sinni boðnir miðar!
Þróttarar brugðu á leik er þeir
afhentu Austramönnum keflið við
Vattarnes. Meðan undirritaður
skokkaði með keflið um Vattar-
nesskriður keyrðu félagarnir í átt
að Vattarnesi náðu sér í spýtu og
einn hljóp til Eskfirðinganna með
hana. Héldu þeir að þarna væri
keflið fræga komið og tók sýslu-
maður Sunn-Mýlinga við því úr
hendi Sveins Ásgeirssonar og var
atburðurinn myndaður í bak og
fyrir. Eskfirðingar áttuðu sig fljótt
á gríninu og höfðu menn mikið
gaman af. Sýslumaður tók alla-
vega við keflinu af Norðfirðing-
um með bros á vör og athugaði
vel hvort ekki væri nú um rétt
kefli að ræða. — G. B.
Framleiðsla eldsneytis...
Framhald af 1. síðu.
vetni og kolefnissamböndum (kol-
sýrlingi eða koltvísýringi). Meta-
nól væri að líkindum um 30%
dýrara í framleiðslu en hreint
vetni, en það hefur þann mikla
kost, að dreifing þess og geymsla
er ekki erfiðleikum bundin og
blanda má því saman við bensín
á bensínhreyfla í nokkrum mæli
án teljandi breytinga og tækni-
lega er auðvelt að framleiða vél-
ar, sem eingöngu gengju fyrir
metanól. Unnt væri raunar að
ganga lengra og fá út „tilbúið“
bensín en það yrði líklega um
þriðjungi dýrara en metanól.
Mörgum spurningum
ósvarað
Mikið er vissulega því háð með
hvaða verði við reiknum á raf-
orkunni til vetnisframleiðslu en
einnig er mörgum spurningum
ósvarað um kolefnisöflunina og
tilkostnað í því sambandi. Þar
gæti meðal annar komið til álita,
að nýta íslenskan mó eða flytja
inn kol til kolsýrlingsvinnslu.
Athugun hófst á þessum mál-
um í Iðnaðarráðuneytinu sl. vet-
ur undir forystu ungs verkfræð-
ings, Finnboga Jónssonar, sem
skrifaði raunar lokaprófsverkefni
við háskólann í Lundi um hugsan-
lega metanólvinnslu á íslandi.
Leitað verður til annarra innlendra
vísindamanna við undirbúning
málsins og aflað gagna og þekk-
ingar erlendis frá eftir því sem
ástæða þykir til. í sumar mun
starfshópur á vegum ráðuneytis-
ins kanna þessi mál frekar með
tilliti til rannsókna og hugsanlegr-
ar tilraunavinnslu. Vert er að
leggja áherslu á þá óvissu, sem
mál af þessu tagi er háð og þá
ekki síst með tilliti til hagkvæmni,
en alþjóðleg þróun orkuverðs
skiptir hvað mestu máli.
Innlend stóriðja
Eldsneytisvinnsla er að sjálf-
sögðu orkufrekur iðnaður, þar sem
talið er t. d., að eitt megavatt
þurfi til að framleiða hvert eitt
þúsund tonn af metanóli. Ef meta-
nól yrði ofan á, sem eldsneyti,
hlyti notkun þess að aukast smátt
og smátt á meðan vélakostur og
dreifikerfi væri lagað að breyttu
eldsneyti og gæti notkunin þannig
vaxið úr 25 þúsund tonnum á ári
í byrjun í 250 þúsund tonn á u. þ.
b. 10 árum, en það magn gæti
svarað til bensínnotkunar á bíla
eftir svo sem 15 ár. Er þó ótalið
það magn, sem þyrfti til að knýja
skipaflotann. Aflþörfin yxi að
sama skapi í áföngum og mætti
þannig laga uppbyggingu elds-
neytisverksmiðju að virkjunar-
þrepum í stórvirkjun. Ákvörðun
um slíka framleiðslu hérlendis
myndi þannig kalla á hraðari upp-
byggingu virkjana, sem þessu
næmi, og yrðu slíkar framkvæmd-
ir að vera samfelldar.
Austfirðingar fylgist
með
Eðlilegt er, að spurningar vakni
um hvar æskilegt sé að iðnaður af
þessu tagi yrði staðsettur útfrá
þjóðhagslegum og byggðarlegum
forsendum. Varðandi staðsetningu
koma auk þess almenn atriði inn
í myndina, svo sem fjarlægð frá
virkjun og lagningu stofnlínu,
hafnaraðstaða og umhverfismál.
Ekki er talið, að nein þau meng-
unarvandamál myndu fylgja þess-
ari framleiðslu, sem ekki væri auð-
velt að finna lausn á, og er þó
vert að hafa í huga þá röskun,
er fylgja myndi mótekju í stórum
stíl, ef innlendur mór kæmi inn
í myndina sem kolefnisgjafi.
Ég tel eðlilegt, að við Austfirð-
ingar fylgjumst náið með þróun
í þessum efni, þar eð hér væri um
að ræða orkufrekan iðnað, sem
vel gæti hæft okkar aðstæðum
og þeim fyrirvörum sem Alþýðu-
bandalagið og fleiri hafa gert um
slíkan iðnað, ef rétt er á haldið.
Þar á ég meðal annars við þá
forsendu, að um innlendan at-
vinnurekstur væri að ræða, svo
sem sjálfsagt væri og viðráðanlegt
í þessu tilviki, ef hagrænar for-
sendur reynast á annað borð fyrir
framleiðslu af þessu tagi.
Efling þéttbýlis við
Reyðarfjörð æskileg
Reyðarfjörður hefur oft verið
til umræðu í sambandi við stóriðju
á Austurlandi og þá einkum er-
lenda stóriðju fram að þessu. Það
er vissulega engin tilviljun, að
horft hefur verið til Reyðarfjarðar
í tengslum við hugsanlegan orku-
frekan iðnað, því valda hafnar-
skilyrði og nálægð við umtalaða
stórvirkjun í Fljótsdal.
Út frá byggðaþróun á Austur-
landi hef ég lengi talið æskilegt,
að þéttbýli á Reyðarfirði og Eski-
firði næði að styrkjast, ekki á
kostnað nálægra þéttbýlisstaða
heldur þeim til örvunar og stuðn-
ings. Þetta getur öðru fremur gerst
með tilkomu innlends iðnaðar af
heppilegri stærð og sem unnt væri
að byggja upp á lengri tíma og
ekki yrði í samkeppni við atvinnu-
líf á nálægum stöðum. Þótt at-
huganir varðandi eldsneytisfram-
leiðslu hérlendis séu á frumstigi,
og margt óvissu háð um fram-
hald þess máls, tel ég nauðsynlegt
að gaumgæfa, hvort slíkur at-
vinnurekstur gæti ekki átt erindi
til Austurlands. Af óbeinum þátt-
um sem myiidu mæla með slíku
er sá afgangsvarmi, sem slíkri
framleiðslu myndi fylgja og gerði
það eðlilegt að horfa með stað-
setningu til byggða, sem ekki njóta
jarðvarma.
Árvekni og gát í senn
Hugleiðingar af þessu tagi gefa
ekki tilefni til, að rokið sé upp
til handa og fóta hvorki með eða
á móti fyrirtæki af. því tagi sem
hér um ræðir og enn er á algeru
hugmyndastigi og mikilli óvissu
háð, hvort hagkvæmt verður talið
að reisa í landinu á næstu árum.
En Austfirðingar, sem aðrir, þurfa
að halda vöku sinni í atvinnumál-
um, bæði varðandi okkar hefð-
bundnu atvinnuvegi og æskilega
iðnþróun til að skjóta fleiri stoð-
um undir atvinnurekstur í fjórð-
ungnum og auka fjölbreytni og
farsæld.
EGILSBÚÐ jKðddööúööqi
Sími 7322 Neskaupstað □□□□□□
ÍNDÍÁNASTÚLKAN
Bandarísk kvikmynd frá BRUT Productions. Sýnd
fimmtudag kl. 9. Bönnuð bömum innan 14 ára.
G R E A S E
Sýnd laugardag kl. 5. — Bamasýning. — Síðasta sinn.
Snyrtisérfrœðingur
Ágústína Jónsdóttir leiðbeinir um rétt val á snyrtivörum
frá kl. 1—6 næstu daga.
Verið velkomin.
N E S
A POT E K
NESKAUPSTAÐ
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á v/s Háborgu NK 77, sem frestað var
12. júní sl., fer fram við skipið sjálft í Norðfjarðarhöfn
þriðjudaginn 10. júlí 1979, kl. 16.30.
Bæjarfógetnn í Neskaupstaö
Kvöldndmsheið I snyrtinp
Kennd verður húðhreinsun, andlitsförðun og handsnyrt-
ing. Námskeiðin taka 3 kvöld og f>að fyrra hefst 10. júlí
og er ætlað ungu fólki (15—20 ára). hið síðara hefst 17.
júlí og er ætlað 20 ára og eldri.
Upplýsingar og innritun fer fram í Nesapóteki frá
kl. 1—6 e. h.
Ágústína Jónsdóttir,
snyrlisérfræöingur.
Einbýlishús til sölu
Fasteignin Blómsturvellir 15 er til sölu ef viðunandi til-
boð fæst. — Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er, eða hafna öllum.
Upplýsingar í símum 7114 og 7119 milli kl. 13.00 og
17.00 næstu daga.
Frá Sundlaug Neskaupst.
Foreldrar athugið. Óheimilt er að senda ósynt böm í
sundlaugina í gæslu barna undir 13 ára aldri.
Athugið. Kvennatímar eru á miðvikudagskvöldum frá
kl. 21.00 til 22.00 fyrir 14 ára og eldri.
SUNDLAUGARVÖRÐUR
Hús til sölu
Til síöIu er íbúðarhúsið Nesgata 36, Neskaupstað. Upp-
lýsingar gefur Viðskiptapjónusta Guðmundar Ásgeirs-
sonar, síma 7677, Neskaupstað.
i-uMvuin di ainug auosynaa samuð og
IlUg
fráfall
EIRÍKS SÆVARS BJARNASONAR
sem fórst með v/b Hrönn SH 149 30. apríl 1979.
Erna Guðjónsdóttir
Guðjón Ing, Eiríksson Anna Herdis Eiríksdóttir
Bjarn. Þorðarson H,if Bjarnadóttir
Guðjon Einarsson HaIldóra Guðnadóttir
Bergsvcnn Bjarnason___________________Ingólfur Einarsson