Birtingur - 01.12.1953, Blaðsíða 3

Birtingur - 01.12.1953, Blaðsíða 3
BIRTINGUR 3 -------------------------------------- BIRTINGUR Rit um bókmenntir og listir. Kemur út tvisvar í mánuði. Ritstjóri: Einar Bragi SigurSsson. Utanáskrift: Birtingur, Þingholtsstræti 27, Reykjavík. Verð: kr. 60 árg., í lausasölu kr. 3. Askriftarsími 5055. PRENTSMI8JAN HÓLAR H-F V._____________________________________> Fylgt úr hlaði dauða: Þetta kann að reynast kokhreysti, þegar til alvörunnar kemur — bezt að tala varlega. Afbragðsgott finnst mér hins vegar næsta Ijóð: Það verður seint klukkurnar munu hafa stanzað þó legg ég af stað. Nóttin mun anda haegar nótt svefn nótt alkyrr mið nótt Þó hverf ég loksins burt loksins þá það mun verða mjög seint þá mun ég fara frá ykkur. Bjartsýni mun það talin að ráðast í útgáfu blaðs um bókmenntir og listir, þegar enginn sér lengur útyfir val þvílíkra rita er faUið hafa í bernsku eða frumbernsku. Því er heldur ekki að neita: bjartsýnin er hinn eini farareyrir sem blaðið hefur með sér úr föðurhúsum. Þess vegna þótti hlýða að gefa því nafnið Birtingur. Birtingur vill einkum verða vettvangur ungs fólks, er leggur stund á listir ýmiss konar, en mun þiggja þarfsamlega liðsinni sérhvers sem vill veita honum brautargengi, hvort sem hann er tíu ára eða tírœður. Blaðið treystir því, að almenningur afsanni þá skoðun, sem orðin er cerið útbreidd, að ekki þýði lengur að bjóða Ijóða- og söguþjóðinni annað en glœpa- og gleðisögur af allra verstu gerð. Birtingur mun leitast við að vera svo frjáls- lyvdur og víðsýnv sem nnðið er. Hann mun forðasl að láta menn njóta eða gjalda pólilískra skoðana, ekki spyrja um það hvort Ijóð sé hefð- bundið eða nýtízkt, heldur aðeins hvort það sé gott, hvorki setja abstrakt myndlist skör hærra né lægra en púra natúralisma að öðru jöfnu, ekki láta persónuleg sjónarmið ráða dómum um leiklist, tónlist, bækur né málverkasýningar. Þetta ber þó ekki að skilja sem fyrirheit um fullkomið hlutleysi í hvívetna. Birtingur mun leitast við að vera vel vakandi í menningarmál- um og ekki hika við að taka afstöðu, en hann mun forðast fordóma. Eigi hlýðir að fylgja svo litlu blaði með fleiri orðum úr hlaði. Hér með er það falið umsjá alménnings. ° RITSTJ. séu öðrum bölsýnni. Hið gagnstæða er sönnu nær. Þau eru flest rómantísk í þeirri merkingu, sem Eliot notar orðið: líta á manninn sem upp- sprettu fulla af möguleikum. Sjálfur segist Eliot ekki gera það og kallar sig klassískan. Ljóð nr: XVIII er mér ógeðfellt, þótt það sé vel gert: „Það hæfir manni ágætlega að deyja í skæru Ijósi og horfa á sjálfs sín blóð“ og síðan nosturleg lýsing á því, hvernig manni hæfi að deyja. Ljóðið leiðir hugann að hug- leiðingum Rilke um persónulega dauðann og verksmiðjudauðann í „Die Aufzeichnungen des Malte Laurids Brigge.“ Ég kann ekki að meta svona tilraunir til að yrkja sér persónulegan Ljóðin Sakamaður og Andlit vitna um kynni Sigfúsar af surrealismanum. f hinu síðara er þetta: „Þetta var mannslíf, ótrúlegt eins og hendur og herbergi í gististað ...“ Orðin minna allmjög á Lautrémont: „Hann er fallegur ... eins og óvæntur fundur sauma- vélar og regnhlífar á skurðarborði“. Vera má að það sé tilviljun, og mér þykir það trúlegt, því yfirleitt er ekki annað hægt en dást að þroska og vandvirkni þessa unga skálds: Sigfús gefur aðeins út strangt úrval æskuljóða sinna — eða svo verður maður að ætla: 20 ljóð ort á 5 árum — hvert ljóð er þaulunnið, og hann hefur valið af glöggskyggni úr þeim bók- menntastefnum, sem hann hefur kynnt sér, það sem hann þarfnast til að valda sínu verki. Falleg eru ástarljóðin nr. XI, Septemberbæn, og ekki sízt þetta: Þessi langi morguim allra og aS baki honum nóttin og að baki henni þú og í þúsund hvíta morgna þúsund daga hef ég beðið eftir kvöldinu eftir þér. Og þá komst þú ein frá öllum inn í eilífð þá er síðan hlaut að verða hér og nú: samt í öryggð þinna nátta hef ég óttast komu dagsins óttast för þína frá mér. Og á þessum langa morgni langa hvíta er för þinni aftur heitið troðnar brautir burt út til allra og nú mun bið mín fánýt verða eftir kvöldi eftir nóttu eftir þér. Það sem ég sakna einna helzt í þessari bók, eins og verkum annarra nútímaskálda okkar, er dálítið glaðlegri lífstónn — meira brosandi alvara. Ungur menntamaður, Einar K. Laxness, benti réttilega á það ekki alls fyrir löngu, að verið sé að ræna æskuna lífsgleðinni. Ungu skáldin þyrftu að gera sitt til að gefa henni lífs- gleðina aftur. P. s. Grein þessi var rituð í meginatriðum skömmu eftir að Ljóð Sigfúsar komu út og átti að birtast í riti, sem andaðist áður en til þess kæmi. Ég get þessa bæði til skýringar og afsökunar. — E. B. Kcwáu ftú að IzOe&ast á Hr. rithöfundur, Þórir Bergsson! I ritdómi, sem þér skrifið í næstsíðasta hefti Eimreiðarinnar, stendur m. a.: „Ég held að þessi órímuðu ljóð ... stafi af vanmætti á að ná Ijóðrænu formi eftir hefðbundnum hætti.“ Tómas Guðmundsson, skáld, lét mjög svipuð orð falla á stúdentafundinum í fyrra um ís- lenzka nútímaljóðlist. Er ekki rétt að láta reynsluna skera úr því, hvort þetta séu sleggjudómar eða ekki? Ég vil gefa ykkur Tómasi kost á því að kveðast á við tvö atómskáld hérna í blaðinu og sting upp á svofelldum leikreglum: 1. Keppendur skuldbindi sig til að yrkja undir einhverjum þeirra 450 bragarhátta sem taldir eru í Bragfræði Sveinbj. Benteinssonar. 2. Keppnin verði háð í fjórum næstu blöð- um Birtings. Að henni lokinni verði efnt til at- kvæðagreiðslu meðal lesenda um hvorir hafi betur kveðið „á foman móð“, rímgoðar vorir eður atómskáld. Ef þið þekkizt boðið, er ég reiðubúinn til nánari viðræðna um tilhögun keppninnar. Ritstj.

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/822

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.