Birtingur - 01.12.1953, Qupperneq 4
4
BIRTINGUR
Nýr fiðluleikari
Ungur fiðluleikari, Ingvar Jónasson að
nafni, hélt hlj ómleika nýlega á vegum Tónlistar-
félagsins hér í bæ. Hann er nýkominn frá námi
erlendis, og bar leikur hans vissulega þess
merki. En þó er svo, að mér eru fáir hljómleik-
ar minnisstæðari fyrir fágun og einlægni þeirra
sem léku.
Efnisskráin var nokkuð einhæf. Til dæmis
þessi sætsúpulega vella Waltons og Prokofieffs
hver á eftir annarri, var heldur mikið af svo
góðu. Meðferð Ingvars á sónatínu Síbeliusar
var mjög góð á köflum, oft frábær. Hins vegar
var leikur hans á tveim fyrstu þáttum g-moll
solo-sónötu Bachs nokkuð í molum, einkum á
fúgunni. í sónötu eftir Leclair, sem var fyrst á
efnisskránni, lék Ingvar bezt þetta kvöld, og var
síðasti þátturinn leikinn af sérlega miklum létt-
leik. Polonaise Brillante var síðast á skránni og
virtist Ingvar vera orðinn nokkuð þreyttur og
því ekki takast sem skyldi. — Undirleikur Jóns
Nordals var með hinurn mestu ágætum.
Hinir alltof fáu áheyrendur klöppuðu vel og
lengi og bárust Ingvari mörg blóm eins og hér
er siður. Annars er grátlegt að sjá, þegar ungur
og efnilegur listamaður heldur héi sína fyrstu
hljómleika, að meðlimir Tónlistarfélagsins
skuli ekki fjölmenna. En þeir þurfa víst Heifetz
til þess.
Leijur Þórariusson.
Sýning ÞORVALDS
'Þorvaldur Skúlason hefur að undanförnu
haft sýningu í Listvinasalnum á rúmlega 20
myndum frá allra síðustu árum. Hörður A-
gústsson, listmálari, kemst svo að orði í dómi
um sýninguna:
„Þorvaldur Skúlason er löngu viðurkenndur
sem einn af gáfuðustu og fremstu listamönnum
íslendinga. Einkum á hann aðdáendur meðal
yngri manna, ekki sízt málara sem standa í ó-
bættri skuld við hann sem mann og málara,
enda verið andlegur leiðtogi þeirra sem og ís-
lenzkrar myndlistar um áratugs bil.“
Af óviðráðanlegum ástæðum var því miður
ekki hægt að fá ítarlega grein um þessa merku
sýningu í fyrsta tölublað Birtings, en hlaðið
vonast til að geta bætt úr því síðar.
MÚSÍKBÚÐIN
nefnist ný hljóðfæraverzlun sem opnuð hefur
verið í Hafnarstræti 8. Eigendur hennar eru
tveir þekktir hljóðfæraleikarar, Kristján Krist-
jánsson og Svavar Gests.
Kristján Davíðsson, listmálari, hefur skipu-
lagt innréttingu búðarinnar, og er hún öll hin
snyrtilegasta. Ættu verzlunarmenn vorir að
gera meira að því en verið hefur að hafa lista-
menn með í ráðum um innréttingu verzlunar-
húsnæðis, útstillingar o. s. frv. Það gæti sett
nýjan og fallegri svip á höfuðborgina.
ELÍAS MAR:
I helgidóminum
Ó, þú
sem býr í landi draums míns,
lygnum augum vakir
yfir farvegi hvers blóðdropa í œðum mér.
Ó, þú
sem í mýkt þíns nakta líkama
brœðir kaf dasta ís,
gœðir líji mitt bros;
þú,
kom þú!
Veit mér ég skynji nálœgð þína.
Gakk inn, lotnu höfði, í ferskum sveigjanleik
hins œskuvaxna blómviðar,
stig ungum fæti skóghjartar í logagylltan sal,
nem staðar, örskotsstund
við pálmasúluna,
að ég fái notið þinnar goðumlíku nálcegðar,
að ég megi sjá hvar þú kemur,
hindin af heiði,
megi hvísla til þín yfir tígulsteina kynslóðanna:
kom!
Ó, þú,
hversu bjart þitt hár,
svo sem fyrstu kornöxin í vorgróðrinum,
og spegill augna þinna tœr,
skyggn sem alvís vitund guðs,
hve mjúkt þitt eyra
sem rósarblað,
hve leyndur tónninn í hvelfingum brúna þinna,
eða þœr sœtu lindir ilmríkra vara,
heillandi sem vín ...
Ó, þú!
Sökum þess eins, að ég elska allt sem líkist þér,
hef ég fest ást við sól dagsins
og tungl nœturinnar.
Pa& ienna soaitii lcelzk
Framh. af 1. síðu.
En þetta veizt þú ekki, blástakkur, né þínir
kívískór.
Né veiztu ánnað, að Egill Skallagrímsson var
víkingur, þótt hann sé kominn í flösku nú og
orðinn fúll, né að nóttin hefur þúsund augu er
stara á þig, er þú sefur, né að stúlkurnar í bláa
dallinum hafa sagt sig úr Klu Klux Klan og eru
nú að hella úr kaffipottinum yfir hausinn á
dólgnum úti í horninu.
Þú hlærð þitt helvíti.
Andartak, láttu ekki brjóst þitt springa, því
í nótt voru þeir að drepa þig suður í Afríku. Þú
komst hlaupandi yfir rjóðrið í tunglskininu og
það glampaði á svarta húð þína og lendaklæðið
slóst til. Það glampaði einnig á hvítar og fram-
stæðar tennur þínar af því þú gaptir og varst
móður og varst hræddur og vissir að þeir voru
að elta þig með byssurnar. Þú heyrðir aldrei
hvellinn.
Seldu mér annan bjór, jcona.
Ertu farin að brosa gamla skútukerling, eða
veiztu ekki að ég er þyrstur? Varðar þig máske
nokkru að Egill Skallagrímsson er kominn í
flösku, eða hefur þú aldrei opnað augun í nótt-
inni frekar en þessi blástakkur, er var skotinn
suður í Afríku í nótt.
Þú hlærð að því, kona.
Og þeir drepa hann aftur, kona. Vökulaus
augu þín munu opnast skyndilega í nóttinni og
þú rnunt finna vot iður hans í hvílu þinni, er
þeir hafa rist hann eftir endilöngu. Þú munt
taka á þeim í myrkrinu, er þau flæða upp að
þér fram úr ristunni og þú undrast þann ó-
skapnað.
Seldu mér Egil, kona og vertu góð, því ég
aetlaði ekki að skelfa þig af því skelfing þín
verður nógu nístandi og bitur og beisk og gall-
súr. Og hundarnir munu snuðra að þér, blá-
stakkur, þar sem þú liggur ristur í þúsundasta
sinn, eins og enginn geti drepið þig né gefið þér
líf, og þú munt þvo blóðið úr laki þínu kona,
eins og enginn hefði nokkru sinni brýnt þér
vökuna.
Og hundrað þúsund morgnar munu renna.
En við skulum ekki tala um þá. Og við skul-
um ekki hugsa um þá, af því forspáin gengur
ekki á kívískóm, né í gulum sokkum, né í þröng-
um buxum, né heldur færir hún mér Egil á
bakka, eins og höfuð Jóhannesar skírara.
Hér eru þínir peningar fyrir Egil, kona.
Og á meðan ég man og áður en hurðin lok-
ast, þá hafið þið dampinn uppi á bláa dallinum
og þegar ég er farinn þá takið kaffipottinn af
lífi án dóms og laga.
Málverkasýning Höskuldar
Höskuldur Björnsson hefur að undanförnu
haft sýningu á nýjustu myndum sínum í vinnu-
stofu sinni í Hveragerði. Birtingur væntir þess
að geta skýrt nánar frá sýningunni í næsta
blaði.