Birtingur - 01.12.1953, Side 8
8
BIRTINGUR
BOKAFLOKKUR NÁLS OG MENNINGAR
ei
bólimeimtaoiðíuiðui
(
Mál og menning leggur áherzlu á aff
kynna árlega a. m. k. einn ungan höfund.
AGNAR ÞÓRÐARSON
er fulltrúi ungu kynslóSarinnar aS þessu
sinni. Hann er tvímælalaust í hópi allra
efnilegustu ungra rithöfunda á íslandi
nú á dögum, fjölhæfur og fágaSur, frá-
sögn hans er lifandi og létt, höfundurinn
hefur jafnan góSa sýn yfir sögusvið sitt án þess aS missa við
það sjónar á blæbrigðum hinna smærri atvika, persónulýsingar
hans eru heilsteyptar og eftirminnilegar.
Agnar Þórðarson gaf fyrst út skáldsöguna Haninn galar tvisv-
ar 1949. Þá hefur hann ritað leikritið Þeir koma í haust, og
hefur Þjóðleikhúsið samið við höfundinn um sýningarrétt á
því. Mál og menning gefur út eftir hann skáldsögu er nefnist
EF SVERÐ ÞITT ER STUTT ...
Sagan gerist í Reykjavik nú á dögum og fjallar um fjármála-
hneyksli, brask og svindilmennsku af því tagi, er höfuSborgin
hefur orðiS fræg fyrir á síSari árum. Mun mörgum verSa hugs-
að til leikritanna Topaze og Skóli fyrir skattgreiðendur, þegar
Agnar hefur sýnt þeim inn í heim borgaranna í höfuðstaðnum.
í stuttum eftirmála farast höfundinum orð á þessa leiS: „Höf.
vill taka það sérstaklega fram til að koma í veg fyrir hugsan-
legan misskilning, að hvorki atburðir sögunnar né einstakar
persónur eiga sér ákveðnar fyrirmyndir."
EF SVERÐ ÞITT ER STUTT er bók, sem ungir jafnt sem gamlir munu lesa sér til óblandinnar ónægju um jólin.
alsins I
Þegar aðrir bókaútgefendur byrjuðu að rifa seglin, vegna
þess að bókaútgáfa var orðin minni gróðavegur en á stríðs-
árunum, fjórfaldaði Mál og menning útgáfu sína og gefur
nú félagsmönnum kost á að velja milli 12 úrvalsbóka um
fjarskyldustu efni eða kaupa bækurnar allar fyrir aðeins 33
krónur hverja bók að meðaltali.
Ekkí bara bók
heldur
HELGAFELLSBÓK