Birtingur - 02.01.1954, Blaðsíða 16
utörfum í viðskiptalífinu — svo marghamur er
hann, þessi íslenzki Mæcenas.
Ragnar Jónsson hefur skilið betur en aðrir
kaupsýslumenn, innlendir og erlendir, að ver-
aldleg auðævi umfram nauðþurftir eru af hinu
illa, nema þeim sé varið til að veita sjálfum sér
og öðrum andleg ævarandi verðmæti. Þess
vegna gripu hundruð íslenzkra listamanna tæki-
færið til að sýna honum margvíslegan sóma
á þessum tiltölulega ómerkilegu tímamótum
venjulegrar mannsævi.
Birtingur þakkar Ragnari Jónssyni störf hans
í þágu íslenzkra lista og árnar honum og fjöl-
skyldu hans allra heilla.
En hvar er hinn ungi Ragnar í Smára? Sú
spurning er Birtingi eðlilega efst í huga. *
16
BIRTINGUR