Austurland


Austurland - 06.03.1980, Qupperneq 1

Austurland - 06.03.1980, Qupperneq 1
ÆJSTURLAND 30. árgangur. Neskaupstað, 6. mars 1980. 10. tölublað Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins Tryggt verði að stjórnarsamstarfið hafi sem mestan árangur 1 för með sér fyrir launafólk, sjálfstæði þjóðarinnar og framtíðarheill Flokksráðsfundur Aipýðubanda- lags.ns var haldinn í Reykjavík hefgjna 22.—24. febrúar sl. og sóttu hann 136 aðalmenn frá 43 flokksdeildum. Ný miðstjóm var kjörin og mörg málin voru rædd og ályktanir samdar. í stjómmála- ályktun fundarins segir m. a. um efnahagsmál. „Alþýðubandalagið hefur m. a. bent á eftirfarandi staðreyndir um ástand íslenskra efnahagsmála: 1. Að hlutfall launa og samneyslu af þjóðarframleiðslu er lægra hér á landi en í nágrannalönd- um. 2. Að yfirbyggingiarkostnaður í þjóðarhúskapnum, t .d. kostn- aður viið banka, vátrygginga- félög, olíuverslun og innflutn- ingsverslun er hér miklu meiri en þörf er á. 3. AS þjóðartekjum er nú mjög misskipt milli þjóðfélagshópa. 4. Að atvinnufyrirtæki em mörg mjög illa rekin og unnt að auka hagræðingu og hag- kvæmni, þannig að rekstraraf- koman verði hagstæðari fyrir þjóðarbúið, án þess að til auk- ins vinnuálags þurfi a3 koma. 5. Að sannað er, að vörur eru fluttar inn á óhagstæðara verði en gert er í nálægum löndum og verðlagi þannig haldið hér hærra en þörf er á. 6. Að ýmsum efnahagsráðstöfun- um hefur verið beitt hér, sem hækka verðlag umfram það sem eðlilegt er, t d.. m»3 hækk- unum óbeinna skatta, vaxta- hækkunum og ráðstöfunum í gengismálum. í öllum þessum málum þarf að koma fram breytingum, sem eru í þágu þjóðarheildarinnar. Hins vegar ber að hafna því að leysa eigi verðbólguvandann á kostnað almennra launa. í tvö ár hafa Alþýðubandalagið og samtök launafólks glímt við kauplækkun- aröflin í Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Alþýðu- flokknum sem noti5 hafa fulltingis atvinnurekendavaldsins“. Verkefni flokksins Af verkefnum flokksins á næstu mánuðum og misserum var lögð áhersla á eftirfarandi atriði: 1. Skapa þarf víðtæka samstöðu um þjóðlega stefnu og um nýt- ingu auðlinda okkar, sem bygg- ist á ræktun en hafnar rányrkju og umhverfisspjöllum. 2. kegyja ber áherslu á félagsleg úrræði við nýtingu auðlinda og féiagslegt eignarhaid á lramieiöslutækjum. Famenn þjóð heíur ekki efni á því að ey;ða mrlljarðatugum i bákn emkagróöans, óþarfa milliliði og hundruð heildsala. 3. Flokkur.nn mun leggja aukinn þunga á kröfur sínar um lýð- ræði, um virkari samráðsrétt starfsmanna á vinnustöðum og þátttöku sem flestra í ákvörð- unum. Flokkurinn leggur ríka áherslu á að lýðræði og sósíal- ismi eru óaðskiljanleg stefnu- mið. 4. Aiþýðubandalagið telur veru- lega vanta á raunverulega jafn- stöðu kynjanna, bæði í starfslífi og félagslífi. Gera þarf ráðstaf- anir til að gefa konum í reynd kleift að nýta rétt sinn til þátt- töku og áhrifa til jafns við karla á öllum sviðum þjóð- lífsins. 5. Vinnutími íslensks launafólks er óheyrilega langjur. í sam- starfi við verkalýðshreyfinguna mun Alþýðubandalagið leggja þunga áherslu á verulega stytt- ingu vinnutíma og aðrar að- gerðir til að draga úr óeðlilegu vinnuálagi og bæta aðbúnað á vinnustöðum 6. Flokkurinn mun herða barátt- una fyrir jafnrétti á öllum sviðum, m. a. með því að skatt- ar og skyldur séu í samræmi við raunverulega afkomu fólks. Er hér og átt við jafnrétti til menntunar og jafnrétti til þjónustu, þrátt fyrir búsetu í afskektum byggðum. Flokkur- Pramh. i 3. riðu Bókmenntakynning á Seyöisfirði Nú í vikunni höfðu Seyðfirð- ingar kynningu á verkum Péturs Gunnarssonar, rithöfimdar. Pétur kom og heimsótti Gagn- fræðaskólann og las þar upp og síðan var fundur í Félagsheimilinu þar sem unglingar lásu úr verkum hans og hann kynnti verk sín og á efitr var boði|5 upp á um- ræður. Það var bamaársnefnd Seyðis- fjarðar sem stóð fyrir þessari kynn'nigu og var þetta endapunkt- ur á góðu starfi á bamaári. M.B/Ó.Þ. Afreksmannasjódur UÍA hefur ekki enn orðið svo digur að hægt hafi verið að veita úr honum fé til afreksmanna U.Í.A. Hér er þó um þarft verkefni að ræða, ef menn eru sammála um það að gefa okkar fremsta íþrótta- fólki kost á því að keppa áfram innan okkar samtaka. Það er nefnilega staðreynd að ef einstak- lingur ákveður að komast hátt upp á stjömuhimininn, eftir að hafa sýnt að hann hefur til þess hæfi- leika, þá kostar það bæði mikla fyrirhöfn og ekki lítið fé, bæði beint og óbeint. Önnur staðreynd er sri að á bak við möng íþróttafélög þéttbýlis standa fjárhagslega sterkir einstak- lingar, sem ekki munar mikið um að kupa eitt stykki íþróttamann til sín með alls konar gylliboð- um. Það er á valdi þeirra sem leitað hefur verið til með fjárframlög, hvort áfram keppi frambærilegir íþróttamenn fyrir hönd Austfirð- inga, því ekki þarf nema tvo til þrjá burtkeypta til að þeir sem eftir verði missi móðinn. Og þá er hinu fjölskrúðuga unglingastarfi hætta búin. Það er megmtilgang- ur með stofnun sjóðsins að tryggja það að íþróttastarfið innan U.Í.A. haldi sinni stærð, bæði að reisn og breidd. Það yrði stórum erfiðara alði vinna að þessum málum, ef í ljós kæmi að hér væri aðeins um uppeldisstarf fyrir önnur félög að ræða. — SB Lofar ekki góöu Línuvertíð hófst hjá flestum Hornafjarðarbátum rétt eftir ára- mót. Þrátt fyrir sæmilegar gæftir framan af varð afli lítill eða um rúmu tonni minni á bát en í fyrra um sama leyti. Nú eru flestir bátar komnir á net en lítií hefur verið hægt að sækja og sú litla reynsla sem fengin er af netavertíðinni nú lof- ar ekki góðu. Síldarbirgðirnar eru að mestu farnar enda eins gott því að vaxta- gjöldin af þeim voru orðin um 10 milljónir á mánuði hjá annarri söltunarstöðinni. — H.Þ.G./Ó.Þ. Þeir hugsa hátt Ungmennafélagar á Borgarfirði hugsa hátt þessa dagana og eru jafnvel að ráíjera boðhlaup eftir hringvegi íslands. Er það vissu- lega frásagnarvert er eitt af fá- mennari félögunum innan UMFÍ tekst á hendur slíkt áræði. Leikfélagsfólk er farið að hugsa sér til hreyfings en undanfarin 9 ár hefur leikfélagið Vaka á Borg- arfirði sett á svið eitt til tvö leik- rit á ári og hefur verið eitt virk- asta leikfélagið hér austanlands. Síðasta verkefni leikfélagsins var Pétur og Rúna eftir Birgi Sig- urðsson undir leikstjórn Magnús- ar Guðmundssonar. — P. E. 8. mars - alþjóðlegur baráttudagur kvenna dagskrá á Egilsstöðum og í Neskaupstað myndlistarsýning í Neskaupstað uð inálverkasýning í fundarsaln- um. Þar sýna þær Þorbjörg Höskuldsdóttir og Guðrún Svava Svavarsdóttir málverk og teikning- ar sem verða til sölu. Þær eru báð- ar í broddi fylkingar íslenskra myndlistarmanna 03 eru að auki báðar kunnar fyrir leikmyndir sem hlotið hafa mikið lof. Þorbjörg hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum. Guðrún hefur haldiiS eina einkasýningu auk þátttöku í samsýningum. Þær stunduðu báðar nám við Mynd- l'starskólann í Reykjavík. Þor- björg stundaði síðan nám við Kunstakademíuna í Kaupmanna- höfn en Guðrún í Moskvu. Sýningin verður aðeins opin í þrjá daga frá kl. 15.00—22.00. Bæjarbúar eru hvattir til að láta ekki þennan menningarviðburð fram hjá sér fara. Barnagæsla verður á dagheim- ilinu frá kl. 15.30 í umsjá nem- enda úr Gagnfræðaskólanum. Egilsstaðir: l.augardaginn 8. mars verður haldinn í Menntaskólanum á Egilsstöum fundur um jafnréttis- mál og réttindabaráttu kvenna í tilefni af alþjÓSlega baráttudeg- inum. Fundurinn hefst kl. 16.00. Á dagskrá verður upplestur 03 söngur í léttum dúr ásamt stutt- um ávörpum sem konur flytja. Jafnframt verður sýning á ýmsum verkum kvenna af Héraði. Þeir sem standa að fundinum vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og benda á að barna- gæsla verður á meðan á fundi stendur. Neskaupstadur: Jafnréttisnefnd og Menningar- nefnd Neskaupstaðar standa að dagskrá 8. mars n. k. kl. 16.00 til 18.00 í fundarsal Egilsbúðar. Helga Kress bókmenntafræðing- ur flytur erindi um konur og bók- menntir, en hún er brautryðjandi í rannsóknum á hlut íslenskra kvenrithöfunda og kvenlýsingum í íslenskum bókmenntum. Guðríðúr Kristjánsdóttir kennari les upp. Sama dag kl. 15.00 verður opn- Guðrún Svava Svavarsdóttir Þorbjörg Höskuldsdóttir Helga Kress

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.