Austurland - 15.03.1984, Blaðsíða 3
Árshátíð Norðfírðingafélagsins
NESVlDEÓ
Alltaf eitthvað nýtt
Á hverfanda hveli,
Ástríkur og
Lukku Láki og fl.
Athugið
afsláttarkortin
Videotæki og
s j ónvarpsleiktæki
Þriggja tíma
óáteknar
videospólur
3ípakkaákr. 1790.-
©7432
Til sölu
Sharp VC 7700 VHS
videotæki
Gott tæki
á góðu verði
Upplýsingar © 7378
ULs&VÁlri
VERSLUN — VIDEÓ
©7707
Útsölunni
fer að ljúka
LÍTIÐ INN
Opiðkl. 1-6
Neskaupstað
©7679
Utsalan
heldur áfram
þessa viku
Lítið inn
Árshátíð Norðfirðingafélags-
ins verður haldin að Hótel Loft-
leiðum Víkingasal, laugardag-
inn 17. mars 1984 kl. 193llstund-
víslega.
Matseðill: Blómkálssúpa,
logandi lambalæri og „Jarðar-
berjaís á la Egill rauði“.
Ræðumaður: Jónas Árnason.
Skemmtiatriði:
Söngur, glens og gaman: Jón-
as Árnason og Troels Bendtsen
slá á létta strengi og taka lagið
saman.
Happdrætti: margt góðra
vinninga.
Dans og vínveitingar.
Miðaverð kr. 750.00.
Hátíðargestir okkar að þessu
sinni verða hjónin Guðrún Jóns-
dóttir og Jónas Árnason. Jónas
er Norðfirðingum að góðu
kunnur frá veru sinni sem kenn-
ari við Gagnfræðaskólann í
Norðfirði á sjötta áratugnum.
Á þessum árum skrifaði Jónas
m. a. bækurnar „Veturnótta-
kyrrur" og „Undir Fönn“, þar
sem efniviðurinn er norðfirskrar
ættar. Jónas mun flytja hátíðar-
ræðu kvöldsins og ef að líkum
lætur, þá mun hann minnast ým-
issa skemmtilegra atvika sem
gerðust á Norðfirði á þessum
árum, bæði innan skóla og utan.
Sfðan munu þeir félagar Jónas
og Troels Bendtsen slá á létta
strengi og syngja saman nokkur
lög við ljóð Jónasar.
Nokkrir af velunnurum Norð-
firðingafélagsins hafa verið svo
rausnarlegir að gefa félaginu
margt góðra muna, sem dregið
verður um í happdrætti, sem
efnt verður til á árshátíðinni.
Fjöldasöngur verður undir
borðhaldinu eins og venjulega.
Að sjálfsögðu verða sungin Ijóð
Jónasar við þetta tækifæri og
Nú um helgina mega Norð-
firðingar eiga von á ungurn
Þróttarstúlkum í heimsókn. Er-
indið verður að bjóða spjöld í
blaðabingói Þróttar og verður
vinningurinn helgarferð til
Reykjavíkur. Ágóða af bingó-
inu, ef einhver verður. verður
varið til greiðslu ferðakostnaðar
keppnisferðar 2. flokks kvenna
í handknattleik, en Þróttar-
munu þeir Jónas og Troels leiða
sönginn. væntum við þess að
veislugestir láti sitt ekki eftir
liggja og taki hressilega undir.
Að loknu borðhaldi verður
stiginn dans af miklu fjöri við
undirleik danshljómsveitar Jak-
obs Jónssonar. Ef einhverjir sjá
sér ekki fært að mæta fyrr en að
loknu borðhaldi, þá verður seld-
ur sérstakur aðgangur á ballið
og kostar þá miðinn kr. 300.00.
Við viljum hvetja félaga til
þess að panta miða í tíma hjá:
Jóni Karlss. 41412, Elsu Chr.
36492, Jóni Guðm. 43499 eða
Gígju Guðj. 66283.
Miðarnir verða seldir að Hó-
tel Loftieiðum fimmtud. 15.
mars kl. 17 - 19 og borð tekin
frá á sama tíma.
stelpurnar unnu rétt til þess að
leika í úrslitum 2. flokks og
verður úrslitakeppnin haldin í
Reykjavík. Þaðeru þessarsömu
stúlkur sem bjóða munu spjöld-
in til kaups.
Þróttur vill skora á Norðfirð-
inga að taka nú stúlkunum vel.
Útdregnar tölur verða birtar í
Austurlandi og birtast þær
fyrstu í næstu viku. Þ. J.
Skákáhugamenn
1. alþjóðlega skákmótið á Austurlandi hefst í
Neskaupstað mánudaginn 19. mars kl. 1700.
Teflt verður í Egilsbúð
Allar skákir á sýningarborðum
Skákskýringar í sal
Dagskrá mótsins og þáttakendalisti eru birt í
blaðinu
Þetta er tækifæri sem enginn
skákáhugamaður getur látið fram hjá sér fara
Matur og gisting á vægu verði á staðnum
Taflfélag Norðfjarðar
Blaðabingó Þróttar