Austurland - 15.03.1984, Síða 5
FIMMTUDAGUR. 15. MARS 1984.
5
IÞROTTIR
Austurlandsmót í
innanhússknattspyrnu
í febrúar fór fram Austur-
landsmót í innanhússknatt-
spyrnu á Reyðarfirði. Keppt var
í meistaraflokki karla og kvenna
og í þriðja flokki karla. Úrslit
urðu þau að Austri sigraði í
meistaraflokki karla, Höttur í
meistaraflokki kvenna og Þrótt-
ur í 3. flokki karla.
Um sl. helgi var keppt í 4., 5.
og 6. flokki á Eskifirði.
G. B.
Blak um
helgina
Á laugardag kl. 15 mun 3.
flokkur Þróttar í blaki keppa við
jafnaldra sína úr H. K. í Kópa-
vogi í íþróttahúsinu í Neskaup-
stað.
Verður hér örugglega um
skemmtilegan leik að ræða, en
Þróttur er talinn eiga góða
möguleika á íslandsmeistaratitli
í þessurn aldursflokki.
Þróttur í
1. deild?
Um síðustu helgi jók meist-
araflokkur Þróttar í blaki veru-
lega líkurnar á því að liðið leiki
í 1. deild á næsta keppnistíma-
bili. Þá lék Þróttur tvo leiki við
Breiðablik í 2. deildinni og fór
með sigur af hólmi í þeim
báðum. Sigruðu Norðfirðing-
arnir í fyrri leiknum 3 : 0 en í
þeim síðari 3:1.
Með þesum sigrum hefur
Þróttarliðið tryggt sér þátttöku-
rétt í úrslitakeppni 2. deildar,
sem fram fer um miðjan apríl.
Um næstu helgi var ráðgert
að ganga skógargöngu á skíðum
í Egilsstaðaskógi en þar sem
snjór er enginn í skóginum verð-
ur að flytja gönguna upp á
Fjarðarheiði.
Gangan hefst kl. 2 á laugar-
dag og er opin öllum, hvaðan-
æva af landinu. Gengið verður
Úrslit í 2. deild íslandsmótsins
í körfuknattleik - Austurlandsriðli
Leikið var í nýja íþróttahús-
inu á Egilsstöðum 2. - 4. mars
’84.
Samvirkjafélag Eiðaþinghár
- Sindri frá Höfn, 79 - 83.
Stigahæstir: SE - Jóhann
Gísli 25 og Magnús Þórarinss.
23, Sindri - Björn Magnússon
25 og Gunnlaugur 16.
Leikur þessi var mjög jafn og
spennandi, en SE seig fram úr
á lokamínútunum og sigraði.
íþróttafélag Menntaskólans
áEgilsstöðum-Sindri, 111-57.
Stigahæstir: ÍME - Hreinn
Ólafsson 36 og Kristinn 22.
Ójafn leikur þar sem Horn-
firðingar virtust algjörlega heill-
ÍÞRÓTTIR
um horfnir. Hreinn átti stórgóð-
an leik fyrir ÍME og skoraði flest
stig sín með glæsilegum lang-
skotum.
ÍME - SE, 60-61.
Stigahæstir: SE - Eiríkur
Ágústsson23 og ÍME - Hreinn
16.
Jafn og hörkuspennandi
leikur og geta leikmenn IME
einungis sjálfum sér um kennt
að tapa Ieiknum því þeir
skoruðu ekki úr dauðafærum
sem þeir fengu þó fjölmörg. SE
varð að vinna leikinn með 13
stiga mun til að komast í úrslit,
þar sem ÍME hafði unnið fyrri
viðureign liðanna með 12 stiga
mun.
IME er því komið í úrslit í 2.
deild í körfuknattleik, en úrslita-
keppnin verður í nýja íþrótta-
húsinu á Egilsstöðum 23. - 25.
mars nk.
Þess má geta að áhorfendur
voru ótrúlega fáir á leikjunum
og er vonandi að þeir fjölmenni
á úrslitakeppnina.
Lokastaða í Austurlandsriðli:
ÍME 6, SE 6, Sindri 0.
(Hörður frá Patreksfirði gaf
sína leiki í seinni umferðinni og
verða stig þeirra strikuð út).
Emil Björnsson.
Maraþonganga
á skíðum
Um síðustu helgi var gengin
„Maraþonganga" á skíðum á
íþróttavellinum í Neskaupstað
til fjáröflunar fyrir keppnisfólk-
ið okkar á skíðum.
Um 20 manns gengu til skiptis
frá kl. 15°° á laugardag til kl.
15(KI á sunnudag og náðu að
ganga 200 km leið.
Aðstæður voru slæmar snjór
var nánast enginn á vellinum og
þurfti að moka í brautina, einn-
ig á meðan á göngunni stóð. Um
nóttina gerði vont veður en samt
var gengið sleitulaust og vona
aðstandendur göngunnar sem
var á vegum Þróttar og ÚÍA að
þetta verði ekki aðeins til fjár-
öflunar heldur líka til aukins
áhuga á skíðagöngu sem íþrótt.
Úrslit í svigi
Gúnda Vigfúsdóttir tekur á af almennum krafti í Maraþongöng-
unni. Ljósm. L. K.
Skógargangan upp á heiði
í 2 flokkum kvenna, 2.5 km og
7.5 km og 2 flokkum karla 5 km
og 10 km.
Þeir sem huga á þátttöku láti
skrá sig á skrifstofu ÚÍA í síma
1353 í kvöld, fimmtudagskvöld
frá kl. 20 til 22. Vonast er til að
fólk af öllu Austurlandi fjöl-
menni í gönguna.
8 ára og yngri
Stúlkur
1. Jóhanna Malmquist . . .
2. Sigrún Haraldsdóttir . .
3. Hugrún Hjálmarsdóttir
Drengir
1. Grétar Jóhannsson . . .
2. Elías Þ Elíasson ....
3. Davíð Kristjánsson . . .
9-10 ára
Stúlkur
1. Vilhelmína Smáradóttir
2. Adda B. Hjálmarsdóttir
3. Hjördís Ólafsdóttir . . .
Drengir
1. Karl Róbertsson . . . .
2. Birgir K. Ólafsson . . .
3. Dagfinnur Ómarsson . .
11 - 12 ára
Stúlkur
1. Halldóra Blöndal ....
2. Hildur Þorsteinsdóttir . .
3. Jóna Lind Sævarsdóttir .
Drengir
1. Guttormur Brynjólfsson
2. Kári Hrafnkelsson . . .
3. Þráinn Haraldsson . . .
13 - 14 ára
Stúlkur
1. Gerður Guðmundsdóttir
2. María Elíasdóttir ....
3. Benný ísleifsdóttir . . .
Drengir
1. Kristján Örn Kristjánsson
2. Bogi Bogason...........
3. Óskar Jónsson .........
15 - 16 ára
Stúlkur
1. Gúnda Vigfúsdóttir . . .
2. Hrefna Tómasdóttir . . .
3. Edda Jónsdóttir........
Piltar
1. Birkir Sveinsson . . . .
2. Þorsteinn Lindbergsson .
3. Óskar Garðarsson . . .
N 65.92 sek.
N 68.13 sek.
Eg 69.86 sek.
N 64.62 sek.
N 71.47 sek.
S 74.91 sek.
N 115.50 sek.
Eg 149.22 sek.
Fá 153.16sek.
N 87.85 sek.
S 88.75 sek.
N 89.72 sek.
S 87.94 sek.
Fá 97.29 sek.
N 97.89 sek.
Eg 85.43 sek.
Eg 91.11 sek.
N 91.82 sek.
N 106.18sek.
N 138.98 sek.
Esk 139.17 sek.
N 108.46 sek.
Esk 119.26 sek.
Esk 130.38 sek.
N 115.97 sek.
N 129.74 sek.
Eg 134.06 sek.
N 98.16sek.
N 106.13sek.
Esk 121.75 sek.
ÍÞRÓTTIR
.