Austurland - 04.10.1984, Blaðsíða 4
Austurland
Neskaupstað, 4. október 1984.
Auglýsingasími
AUSTURLANDS
er 7756
LÁNIÐ LEIKUR
VIÐ ÞIG í
SPARISJÓÐNUM
Sparisjóður Norðfjarðar
Pátttakendur að leik í Skálavík.
Ljósm. Auðunn Eiríksson
Karlakór Reykjavíkur
á Austurlandi
Pálmason, Óskar Pétursson og
Hilmar Þorleifsson.
Stjórnandi Karlakórs
Reykjavíkur er Páll P. Pálsson
og undirleikari Guðrún A.
Kristinsdóttir.
Karlakór Reykj avíkur er einn
besti og þekktasti karlakór á
landinu. Heimsókn hans er því
merkur listviðburður í mannlíf-
inu hér og ættu söngunnendur
ekki að láta þetta tækifæri
framhjá sér fara, heldur njóta
eina kvöldstund hins Ijúfa
söngvaseiðs með Karlakór
Reykjavíkur. B. S.
í vor var farið að undirbúa
dvöl barna og unglinga frá sund-
deild Þróttar í Neskaupstað og
Vals á Reyðarfirði í æfingabúð-
um í Bolungavík. Par ætluðu
Austfirðingar, Siglfirðingar og
heimamenn að taka þátt í sam-
æfingum.
Hafist var handa unt fjáröfl-
unarleiðir ýmiss konar s. s.
kökubasar, áheitasöfnun vegna
maraþonsunds, flöskusöfnun
o. fl. Tók almenningur mjög vel
í þetta.
Hópurinn, samtals 49 manns,
börn og forráðamenn, fór með
flugvél frá Neskaupstað til ísa-
fjarðar mánudaginn 20. ágúst.
Ákveðið hafði verið að taka
sólina og góða veðrið, sem hefur
verið hér austanlands í sumar,
með í þetta ferðalag. Pað var
eins og við manninn mælt, sólin
birtist örfáum mínútum eftir
lendingu á ísafjarðarflugvelli.
Eins og sagt var frá í síðasta
blaði er Karlakór Reykjavíkur
nú í söngferð á Austurlandi. í
kvöld syngur kórinn á Höfn og
annað kvöld, föstudaginn 5.
okt. kl. 21°° syngur kórinn í Eg-
ilsbúð í Neskaupstað, í Herðu-
breið á Seyðisfirði laugardaginn
6. okt. kl. 15°°ogaðkvöldisama
dags kl. 2100 í kirkjunni á Egils-
stöðum.
Á efnisskránni eru létt og sí-
gild karlakórslög bæði innlend
____ og erlend.
Sundbúðir í Bolungavík Bn,ðnsvlra, eru Hreiðar
Par tók rúta á móti okkur og
flutti út í Bolungavík. Biðu þar
eftir okkur kræsingar og hlýjar
móttökur. Gistum við í grunn-
skólanum ásamt Siglfirðingum,
og snæddum morgunverð þar,
en hádegis- og kvöldverð borð-
uðum við í heimahúsum. Var
okkur skipt niður á heimili for-
eldra sundbarna í Bolungavík.
En tilgangur ferðarinnar var
ekki einungis að sofa og snæða.
Strax á þriðjudagsmorgun
hófust strangar æfingar í sundi
og leikfimi undir leiðsögn þjálf-
ara allra hópanna. Stóðu þær
fram eftir degi og stóð sú
dagskrá út vikuna. Lauk henni
með sundmóti á laugardags-
morgun.
Ýmislegt fleira var til gamans
gert. Ein stúlkan úr hópnum átti
afmæli og var haldin 100 manna
veisla með kökum, kakó og
ýmsum uppákomum.
Á föstudagskvöldið héldu
Bolvíkingar okkur kvöld-
skemmtun og að því loknu vai
diskótek. Að afloknu sundmóti
á laugardagsmorgun var okkui
boðið í rútuferð tif Skálavíkur.
voru þar grillaðar pylsur og farié
í leiki. Sunnudeginum vai
mönnum frjálst að eyða eftii
eigin geðþótta.
Haldið var heimleiðis mánu-
daginn 27. ágúst eftir mjög vel
heppnaða dvöl.
Að lokum viljum við þakka
sunddeild UMFB og öðrum
gestgjöfum okkar frábærar mót-
tökur.
Einnig þökkum við bæjaryfir-
völdum ókeypis aðgang að
sundlauginni þennan tíma.
Kveðjur,
Sunddeild Próttar, Neskaupstað,
Sunddeild Vals, Reyðarfirði.
Hannes Már, 13 ára sundkappi í Bolungavík, tekinn hörðum tökum
af veikara kyninu. Ljósm. Auðunn Eiríksson.
Hvílst eftir pylsuveislu í Skálavík. Ljósm. Auðunn Eiríksson.
Stöðvarfjörður:
Tvenn fram-
kvæmda-
stjóraskipti
Á Stöðvarfirði hafa nýlega
orðið tvenn framkvæmdastjóra-
skipti. Guðjón Smári Agnars-
son hætti sem framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Stöðvar-
fjarðar og við tók Helgi Þóris-
son útgerðartæknir. Einnig
hætti Guðmundur Gíslason
framkvæmdastjórastörfum við
Kaupfélag Stöðfirðinga og við
tók Friðrik Guðmundsson.
AUSTURLAND óskar hin-
um nýráðnu framkvæmda-
stjórum alls góðs í störfum
sínum. Á. J. / S. G.
Tryggvi
Málverkasýning Tryggva
er í safnaðarheimilinu í
Neskaupstað. Henni lýkur
á sunnudagskvöld.
Basar
Kvenfélagið Nanna í Nes-
kaupstað heldur kökubasar á
planinu neðan við kaupfélagið
á morgun, föstudaginn 5. okt-
óber.
Ef veðrið verður vont, verður
basarinn í anddyri Egilsbúðar.
Peir sem gefa brauð, skili því
milli kl. 10 og 12.
Fréttatilkynning.