Austurland - 03.04.1985, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR, 3. APRÍL 1985.
3
imraæ
□□□□□□□□□!
3
3
EGILSBUÐ
S7322 — Neskaupstað
Fimmtudagur 4. apríl kl. 2100
„GEIMSTRÍÐ II - REIÐI KHANS“
Sunnudagur 7. apríl
PÁSKADANSLEIKUR
Húsið opnað kl. 2400 á páskadagskvöld
Bumburnar leika
Laus staða
Staða skrifstofumanns á Skattstofu
Austurlandsumdæmis (V2 starf) er laus til
umsóknar
Starfið krefst góðrar vélritunarkunnáttu
Laun skv. launakerfi ríkisstarfsmanna
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri
störfum skilist til skattstjóra fyrir 9. apríl nk.
Skattstjóri Austurlandsumdæmis
s
Ur einu
íbúum fjölgar
í Neskaupstað
Á sl. ári fjölgaði íbúum Nes-
kaupstaðar um 42 skv. tölum
frá Hagstofunni og eru nú 1724
talsins. Þetta eru góð tíðindi og
vonandi heldur þessi uppsveifla
áfram enda er hér næg atvinna
fyrir miklu fleiri hendur. Ekki
hef ég séð tölur um, hvaðan
þessi fjölgun kemur. Er þetta
fólk sem flyst úr öðrum lands-
fjórðungum, kemur það frá
öðrum byggðarlögum á Austur-
landi eða voru barneignir
óvenju miklar í bænum?
Gaman væri að hafa svör við
þessum spurningum því sé litið
á Austurland allt er þróunin því
miður uggvænleg. Aðeins í
þremur sveitarfélögum utan
Neskaupstaðar er fjölgunin
tveggja stafa tala; 23 í Hafnar-
hreppi, 19 í Fellahreppi og 10 í
Egilsstaðahreppi. Alls fjölgar í
13 sveitarfélögum, fækkar í 18
en 3 standa í stað. I Austur-
landskjördæmi í heild fækkar
íbúum um 25 og eru þeir nú
13.095 talsins. Hin uggvænlega
þróun síðustu ára heldur áfram,
aðeins Reykjavík og Reykja-
neskjördæmi eru með fjölgun
yfir landsmeðaltali. Straumur-
inn liggur því áfram til suðvest-
• • • • •
urhornsins og þyngist með
hverju árinu.
Umgengni
Þessi dæmalausa veðrátta
hefur m. a. valdið því að ýmis-
legt í umhverfinu stingur meira
í augu enda ekki snjór til að
hylja syndirnar (fyrr en nú í
dymbilviku). Ég hef að vísu
ekki gengið eða ekið um bæinn
gagngert þeirra erinda að leita
að slæmri umgengni en sumt
kemst maður ekki hjá að sjá og
haldi þetta indæla vorveður
áfram vona ég að menn fari að
komast í hreinsunarskap.
Reyndar vil ég gjarnan meiri
snjó, en það er önnur saga.
Bæjaryfirvöld hafa í mörg
horn að líta og vonandi líta þau
fljótlega í hornið austan við Eg-
ilsbúð, íshúsgrunninn. Hvernig
væri að slétta gólfplötuna, fá
unglinga til að mála steinvegg-
ina og setja þarna upp einhvers
konar útimarkað í sumar?
Síldarvinnslan fer vonandi að
afmá ummerki loðnugeymsl-
unnar út við Bjarg og Steypusal-
an (Máni) þarf líka að taka til
hendinni á sínu athafnasvæði.
Fleira mætti telja, en þetta eru
þeir aðilar sem hvað mest hafa
umleikis og blasa við akandi og
gangandi fólki. En eigum við
VILTU SKOÐA NORÐURLOND EÐA SKOTLAND?
í sumar förum við í þriggja vikna rútuferð um
Norðurlöndin, og tveggja vikna Skotlandsferð
Förum frá Seyðisfirði og siglum með n/f Norröna
til Færeyja og þaðan til Danmerkur
Fimm aðalspurningar:
Þar ökum við um Jótland og skoðum markverða staði
Síðan förum við til. . .
Nei, það er alltof langt mál að fara í að telja það
allt upp, fáið senda ferðaáætlunina
Nr. Spurning Svar
1 Hvað kostar N orðurlandaf erðin? 39.500 (Gengi 15.3. ’85)
2 Hvað fæ ég fyrir peningana? Allar ferðir (sigling, rúta, ferjur), gistingu allan tímann, 17 morguverði og 17 kvöldverði, íslenskan fararstjóra
3 Hvað er ekki innifalið? Aðgangur að skemmtistöðum, söfnumo. s. frv.
4 Er boðið upp á eitthvað fleira? Samsvarandi ferðir um Skotland, bara ódýrari
5 Hvar fé ég svona ferð? Hjá Ferðamiðstöð Austurlands og Benna & Svenna
samband og fáðu frekari upplýsingar
Ferðamiðstöð Austurlands S 1510
Benni & Svenni © 6399
Toppmyndir - og tækin á kr. 300 INddfAlH Til sölu
OPIÐ ALLA DAGA 1 - 10 | VIDEO —S7707 Datsun Cherry ’79 Upplýsingar S7168
í annað
ekki öll að bretta upp ermar og
hefjast handa hvert á sínum
stað?
Móttaka ferðamanna
Áhugi á móttöku ferðamanna
fer nú vaxandi á Austurlandi. í
vetur hafa víða verið stofnuð
ferðamálafélög og fyrirhugað er
að þau bindist saman í fjórð-
ungssamtök síðar. í sameiningu
geta þessi félög m. a. staðið að
kynningu á Austurlandi og
möguleikum ferðamanna í
fjórðungnum, en þeir eru nán-
ast ónýttir enn sem komið er.
Því má búast við að á næstu
árum verði verulegur vöxtur í
þessari atvinnugrein og ýmiss
konar ný þjónusta skjóti upp
kollinum.
Nefna má að til þessa hafa
flestir þeir farþegar sem koma
með ferjunni Norröna til Seyð-
isfjarðar haft stuttan stans á
Austurlandi. Skýringin á því er
ekki síst sú að þeir vita af ferða-
möguleikum bæði norðanlands
og sunnan, en sáralítið um
möguleika á að ferðast hér inn-
an fjórðungsins. Verkefnin eru
því næg framundan og vonandi
drífa duglegir og hugkvæmir
menn í því að nýta þá fjölmörgu
möguleika, sem austfirsk nátt-
úra og austfirskt mannlíf býður
upp á.
Rás 2
Nú hafa þeir sem beðið hafa
í ofvæni eftir rás 2 fengið sína
ósk uppfyllta að nokkru leyti.
Það heyrist í henni víðast hvar
á Austurlandi, en samt mjög
misvel og á Reyðarfirði er mér
tjáð að betur heyrist á rás 2 en
gamla gufuradíóinu, rás 1.
I Neskaupstað heyrist fremur
illa í rás 2 innanhúss a. m. k.
nema menn hafi því betri
loftnet, en þetta stendur til bóta
í sumar eða haust. Ég hringdi í
Hans Þormar tæknifræðing hjá
Pósti og síma og hann sagði mér
að til stæði breyting á rás 1 í
Neskaupstaðð. Sendir sá sem
nú er á pósthúsinu (lOw) verður
tekinn niður en í staðinn kemur
lOOw sendir í Skuggahlíð og þar
verður einnig settur annar lOOw
sendir fyrir rás 2. Hans telur að
þetta eigi að gefa góða útkomu
og að við megum eiga von á
þessum endurbótum í ágúst eða
september. Vonandi er þetta
nægur sendistyrkur, því sjálf-
sagt ertækni- og verkfræðingun-
um Ijóst að mest öll hlustun er
á ferðatæki og aðeins örfáir hafa
vönduð loftnet, enda hlýtur að
vera ódýrara að kaupa einn góð-
an sendi en 5 - 6 hundruð
loftnet.
Krjóh.