Austurland - 30.12.1987, Page 2
2
FIMMTUDAGUR, 30. DESEMBER 1987.
Austurland
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Útgefandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson og Smári Geirsson
Ritatjóri: Haraldur Bjarnason (ábm.) ® 71750 og 71756
Auglýsingar og dreifing:
Áshildur Sigurðardóttir S 71571 og 71629
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Egilsbraut 11 -Pósthólf 31 • 740 Neskaupstaður ■ S 71750 og 71571
Prentun: Nesprent
Fiskveiðistefnan
Ríkisstjórn Porsteins Pálssonar hefur nú
verið við völd í hálft ár. Hún hefur sannað
það á þessum stutta tíma að vera ein harðasta
hægri stjóm sem ríkt hefur á íslandi frá því
lýðveldi var stofnað. Aðild Alþýðuflokksins
að ríkisstjórninni hefur ekki breytt neinu og
formaður þess flokks í embætti fjármálaráð-
herra hamast nú við að þyngja skattbyrðar á
almenningi með neyslusköttum á nauðþurftir.
Landsbyggðin fer verr út úr samskiptunum við ríkisvaldið en
höfuðborgarsvæðið og ójöfnuður fer hraðvaxandi. Þetta birtist
mönnum í opinberum hækkunum fyrir rafmagn, síma og aðra
þjónustu. Rafhitunartaxtar hafa hækkað um 45% á þessu ári og
hækka enn eftir áramótin vegna minnkandi niðurgreiðslna á raf-
orku. Almennur heimilistaxti raforku til ljósa og eldunar er nú
36% hærri hjá Rarik en hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og er
bilið stöðugt að gleikka. Prátt fyrir þessa háu taxta er gert ráð
fyrir 400 milljón króna rekstrarhalia hjá Rafmagnsveitum ríkisins
á næsta ári, þannig að mikill þrýstingur verður á viðbótarhækkanir,
sem bitna á landsbyggðarfólki.
' ’y- •' ■' f n*-,.,, x
Fiskveidistefna og smábátar
Sjávarútvegsráðherra kvartar sáran yfir að fá ekki samþykkt
lög um fiskveiðistjórnun fyrir áramót. Frumvarp ráðherrans kom
ekki fram á Alþingi fyrr en 4. desember um svipað leyti og fjölmörg
skattafrumvörp Jóns Baldvins. Þó er ljóst að það hefði hlotið
samþykki þingsins fyrir jól, ef ekki væru í því ákvæði sem vega
sérstaklega að smábátaútgerð. Ráðherrann vill setja kvóta á neta-
veiðar smábáta og fjölga banndögum á handfæraveiðum. Pessu
hefur stjórnarandstaðan mótmælt kröftuglega svo og nokkrir þing-
menn úr stuðningsliði ríkisstjórnarinnar. Nokkur byggðarlög á
Austurlandi og Norðurlandi eiga allt sitt undir smábátaútgerð.
Pað er tilræði við þau og marga aðra að veikja til muna grundvöll
trilluútgerðar. Vonandi tekst að ná fram einhverjum lagfæringum,
áður en þetta frumvarp sem gilda á næstu þrjú ár verður lögfest.
Aðvörun til sveitarfélaga
Ríkisstjórnin ætlaði sér að lögfesta frumvarp um breytta verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga nú fyrir áramótin. Stjórnarandstað-
an kom í veg fyrir það fljótræði. Byrjað er á öfugum enda í þessu
máli. Sveitarfélögum og Jöfnunarsjóði þeirra eru ekki tryggðar
tekjur til að standa undir auknum verkefnum eða til að ljúka við
hálfkláruð verkefni. Frumvarpið hefur ekki verið borið undir eina
einustu sveitarstjórn enn sem komið er. Þessu verklagi ættu sveit-
arstjórnarmenn að mótmæla og varast að ganga í gildru ríkisvalds-
ins eina ferðina enn. Hjörleifur Guttormsson.
Óskum Eskifjörður
viðskiptavinum okkar og starfsfólki Egilsstaðabær
Búðahreppur
Gleðilegs Hafnarhreppur
nýárs Reyðarfjarðarhreppur
Vopnafjarðarhreppur
Verkalýðsfélag
Norðfirðin ga
óskar félögum sínum
og annarri austfirskri alþýðu
gleðilegs nýárs
Gleðilegt nýár
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
Saltsalan hf.
Hjarðarhaga 17
Reykjavík
S 91-11120