Austurland - 30.12.1987, Page 3
FIMMTUDAGUR, 30. DESEMBER 1987.
3
Hilmar Viggósson.
Neskaupstadur
Nýr útibússtjóri
Landsbankans
Nýr útibússtjóri hefur verið
ráðinn að Landsbanka Islands í
Neskaupstað. Hann heitir
Hilmar Viggósson og tekur
hann við starfinu af Árna
Sveinssyni sem fyrir nokkru tók
við starfi útibússtjóra Lands-
bankans á Húsavík.
Hilmar er 48 ára gamall og
hefur starfað hjá Landsbankan-
um síðan 1959. Lengst af í hin-
um ýmsu deildum bankans í
Reykjavík en frá árinu 1978 hef-
ur hann verið forstöðumaður af-
greiðslu bankans á Hellissandi.
Eiginkona Hilmars er Auður
Guðmundsdóttir og eiga þau 19
ára gamlan son sem stundar
nám við Menntaskólann á Ak-
ureyri.
í samtali við AUSTUR-
LAND sagði Hilmar að sér litist
vel á að flytja til Neskaupstaðar,
þó svo að enn hafi hann haft lítil
kynni af Austfjörðum. Tvisvar
hefði hann þó komið hingað til
þátttöku í skákmótum en skák
hefur verið hans aðaláhugamál
í langan tíma og áður fyrr var
Hilmar í landsliðsflokki í skák.
Hilmar er ráðinn til Neskaup-
staðar frá 1. janúar nk. en sagð-
ist reikna með að flytja um miðj-
an mánuðinn. hb
NESKAUPSTAÐUR
Hver sá maður
sem ógreidd á gjöld sín til Bæjarsjóðs
Neskaupstaðar, eldri og nýrri, hverju nafni
sem nefnast, áminnist alvarlega um að greiða
þau til undirritaðs fyrir áramót
Neskaupstað 28.12. ’87
Sveinn Árnason
fjármálastjóri
NESKAUPSTAÐUR
Tónleikar!
Daníel Þorsteinsson píanó
og Sigurður Halldórsson selló,
verða með tónleika í safnaðarheimilinu
• þriðjudaginn 5. janúar kl. 2100
Framlengjum hátíðarstemmninguna
Velkomin
Menningarnefnd Neskaupstaðar
Jólin
undir-
búin
Ungir sem aldnir undirbjuggu
jólahaldið síðustu dagana fyrir
jól nú sem cndranær.
Á dagheimilinu Sólvöllum í
Neskaupstað er piparkökubakst-
ur fastur liður í undirbúningnum
og þar tekur fólk vel til hendinni.
Á Breiðabliki, íbúðum aldraðra
í Neskaupstað hélt Kvennadeild
Slysavarnafélagsins skemmtun
fyrir heimilisfólk og eru
meðfylgjandi myndir teknar á
þessum tveimur stöðum. hb
Smávœgileg aðstoð frá pabba er
ekki verri. Myndir hb
Fáskrúðsfjörður
Nýr
sjúkrabíll
Rauða kross deild Fáskrúðs-
fjarðar hefur nú fest kaup á
nýrri sjúkrabifreið. Bíllinn er af
gerðinni Ford Eeonoline og er
fjórhjóladrifinn og vel búinn
tækjum til sjúkraflutninga og
kemur þannig búinn til landsins.
Bíllinn mun koma til Fá-
skrúðsfjarðar um miðjan janúar
en á sunnudaginn fór fram söfn-
un á meðal Fáskrúðsfirðinga til
að fjármagna kaupin og söfn-
uðust þá um 300 þúsund krónur
og þessa dagana er unnið að
söfnun hjá fyrirtækjum á
staðnum. Heildarverð bílsins er
um 2 milljónir króna en auk
framlags heimamanna veitir sér-
verkefnasjóður Rauða kross Is-
lands fé til kaupanna.
Á Fáskrúðsfirði eru nú til
staðar tveir sjúkrabílar, annar
af Citroén gerð og hinn er Scout
jeppi og mun sá síðarnefndi
verða seldur þegar nýi bíllinn
kemur. MSIhb
Lalli á Skorrastað söng gamanvísur á Breiðabliki og ekki er annað
að sjá en fólk skemmti sér konunglega.
NESKAUPSTAÐUR
Atvinna
Fóstrur og ófaglært starfsfólk vantar á
Dagvistarheimilið Sólvelli Neskaupstað nú
þegar eða eftir nánara samkomulagi
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
97-7 14 85
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ!
Vegna lagfæringa verður verkstæðið lokað
til 10. janúar næstkomandi
Gleðilegt nýár
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs
Fellabæ S 11329
Gleðilegt nýár
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
Raftækjavinnustofa
Sveins O Elíassonar
Urðarteigi 15, Neskaupstað
S 71660 og 71720
Smáfólkið er greinilega þungt hugsi yfir piparkökunum.