Austurland - 13.04.1989, Side 3
FIMMTUDAGUR, 13. APRÍL 1989.
3
Síldarvinnslan hf. með 3,3% af
útflutningsverðmæti sjávarafurða
Rætt við Finnboga Jónsson framkvæmdastjóra
Eins og fram kemur í frétt á
forsíðu var aðalfundur Síldar-
vinnslunnar hf. í Neskaupstað
haldinn á laugardaginn. Þar
kom m. a. fram að hreinn hagn-
aður varð af rekstri fyrirtækisins
á síðasta ári og nam hann 11
milljónum króna.
Það þykir heldur betur tíðind-
um sæta í dag að hagnaður verði
af rekstri fyrirtækis f sjávarút-
vegi og til að forvitnast um
hvernig á slíku getur staðið og
fá fregnir af rekstri Síldarvinnsl-
unnar sneri blaðið sér til Finn-
boga Jónssonar framkvæmda-
stjóra. Fyrst var hann spurður
um hverju hann þakkaði það að
hagnaður varð af rekstri fyrir-
tækisins.
„Það eru nokkrar samverk-
andi skýringar á því. í fyrsta lagi
búum við að því að hafa mjög
gott starfsfólk bæði í landi og á
skipunum. í öðru lagi er rekstur
okkar fjölþættari en margra
annarra fyrirtækja í sjávarút-
vegi. Á síðasta ári batnaði af-
koma loðnuvinnslu t. d/veru-
lega frá árinu á undan samhliða
því sem afkoma botnfiskvinnslu
versnaði. í þriðja lagi höfum við
ekki staðið í meiri fjárfestingum
eða viðhaldsverkefnum en við
höfum ráðið við, sem þýðir þó
ekki að slík verkefni séu ekki
fyrir hendi. Þá má nefna að við
höfum ekki orðið fyrir neinum
meiriháttar óhöppum í rekstrin-
um á síðustu árum og þau
stjórnunarlegu markmið sem
við höfum sett okkur hafa í meg-
inatriðum náðst.“
Minni viðhaldsverkefni seg-
irðu. Getur það ekki verið vara-
samt? Er ekki hætta á að Síldar-
vinnslan dragist aftur úr vegna
mikillar aðhaldssemi í nýfjár-
festingum og viðhaldsverkefn-
um?
„Aðhaldssemi í slíkum
rekstri sem þessum er og verður
alltaf nauðsynleg. Stjóm félags-
ins hefur markað þá stefnu að
fjárfesta fyrst og fremst í þeim
hlutum sem gefa okkur öruggar
tekjur á móti. Þessi fjárfesting-
arstefna er að mínu mati ekki
aðeins nauðsynleg í þeirri stöðu
sem við erum í heldur einnig
mjög skynsamleg. Það verður
að viðurkennast að sum verk-
efni hafa orðið að bíða. Dæmi
um það em nauðsynlegar
endurbætur á togaranum Bjarti,
sem verið er að fara út í núna.
Þrátt fyrr allt hefur ýmislegt ver-
ið gert og má þar nefna að
loðnuskipin hafa verið tekin
verulega í gegn og annað þeirra
útbúið sem hálffrystitogari.
Þessar framkvæmdir hafa skilað
því sem við ætluðumst til. Þá
hafa verið gerðar verulegar
endurbætur á loðnuverksmiðj-
unni. Þær voru orðnar mjög
tímabærar þar sem verksmiðjan
skilaði ekki því sem hún átti að
geta skilað. Með umtalsverðum
endurbótum á verksmiðjunni á
síðustu 2-3 árum stöndum við
tiltölulega vel miðað við það
sem almennt gerist í loðnuverk-
smiðjum hér á landi. Þá höfum
við einnig staðið í umtalsverð-
um endurbótum í frystihúsinu
og nú síðast í saltfiskverkun fé-
lagsins.“
Hvenær geta Norðfirðingar
búist við reyklausri bræðslu?
„Það er stefnt að því að ljúka
nauðsynlegum athugunum í
sumar og að framkvæmdir geti
hafist snemma á næsta ári þann-
ig að loðnuvertíð haustið 1990
hefjist með reyklausri loðnu-
verksmiðju. Þetta miðast að
sjálfsögðu við það að við fáum
fjármagn til þessara fram-
kvæmda. Það hefur ekki legið á
lausu hingað til en kostnaður við
þessar breytingar er ekki undir
150 milljónum króna."
En þrátt fyrir litlar fjárfest-
ingar, allavega á mælikvarða
margra annarra sjávarútvegs-
fyrirtækja, er Síldarvinnslan hf.
með fjármagnskostnað upp á
201 milljón króna. Hvaða
skýringar eru á því?
„Fj ármagnskostnaðurinn
stafar fyrst og fremst af upp-
söfnuðum skuldum frá fyrri tíð.
við höfum náð að lækka skuldir
nokkuð miðað við fast verðlag
en þær hafa þó hækkað í krónu-
tölu. Heildarskuldir fyrirtækis-
ins í dag nema 1.250 milljónum
en þar af eru afurðabirgðir og
viðskiptakröfur til frádráttar
upp á 350 milljónir, þannig að
raunskuldir eru um 900 milljón-
ir. Það er um 100 milljónum
hærra en í fyrra í krónum talið
en lækkun á föstu verði, eins og
ég sagði áðan.“
En hvað þarf Síldarvinnslan
hf. mörg ár með 11 milljóna
Finnbogi Jónsson.
króna hagnað á núvirði til að
vera á grænni grein?
„Uppsafnað tap fyrirtækisins
var um síðustu áramót 530 millj-
ónir króna, þannig að með hlið-
sjón af því þurfum við hvorki
meira né minna en 50 svona ár.
Mitt áiit er að hagnaður þurfi
að vera um 5% af veltu ef vel
ætti að vera.“
Um 9 milljónir króna af hagn-
aði Sídlarvinnslunnar á síðasta
ári var vegna vinnslu. Finnbogi
sagði að afkoman væri breytileg
eftir vinnslugreinum, loðnu-
bræðslan skilaði hagnaði sem
næmi um 6% af tekjum, saltfisk-
verkun skilaði 1% af tekjum í
hagnað en tapið af frystingunni
næmi hins vegar um 7% af
tekjum. Útgerðin skilaði í heild
2 milljónum í hagnað og skilaði
Bjartur bestri afkomu, eða 10%
af tekjum, Barði var með 1%
hagnað en 7% tap varð af Birt-
ingi. Loðnuskipið Börkur skil-
aði 5% hagnaði en Beitir var
með 5% tap og má rekja stóran
hluta þess til mikils fjármagns-
kostnaðar af skipinu.
Finnbogi bendir á að útflutn-
ingsverðmæti Sídlarvinnslunnar
hf. á síðasta ári hafi verið einn
og hálfur milljarður. Heildarút-
flutningsframleiðsla íslendinga
á síðasta ári var 62 milljarðar en
útflutningsframleiðsla sjávaraf-
urða nam 46 milljörðum. Hlutur
Síldarvinnslunnar er því 2,4%
af heildarútflutningsframleiðslu
landsmanna og 3,3% af útflutn-
ingsframleiðslu sjávarafurða.
Þetta er nokkuð athyglisverður
hlutur og sérstaklega þar sem
íbúar Neskaupstað eru tæplega
0,7% af landsmönnum.
En hvemig hefur rekstur
fyrirtækisins gengið fyrstu mán-
uði þessa árs?
„Hann hefur gengið ágætlega
fyrstu mánuðina. Það voru
gerðar leiðréttingar á gengi um
og eftir síðustu áramót sem
höfðu sitt að segja ásamt lækkun
vaxta“, segir Finnbogi. Að-
spurður um hvort gengisfelling
geri eitthvert gagn og hvort hún
sé ekki eingöngu til að hækka
skuldir og rekstrarkostnað, seg-
ir hann að gengisfelling sé oftast
nauðsynleg leiðrétting eftir að
verðbólga hér á landi hefur ver-
ið miklu meiri en í okkar við-
skiptalöndum. Vissulega hækki
skuldir en hjá Síldarvinnslunni
verði tekjuaukningin til muna
meiri og mestu skipti hvaða
hliðarráðstafanir séu gerðar
samhliða gengisfellingu.
Um framtíðaráform og hvort
eitthvað sé á döfinni varðandi
stórframkvæmdir segir Finnbogi
að áfram verði haldið með endur-
bætur á skipunum. Barði og Birt-
ingur verði teknir í gegn þegar
lokið verður við endurbætur á
Bjarti. Svo séu það ffamkvæmd-
imar við bræðsluna sem áður em
taldar. Hann segir hins vegar ljóst
að skipakostur fyrirtækisins sé
farinn að eldast og þar þurfí að
huga að endumýjun. „En það hafa
engar ákvarðanir verið teknir um
skipakaup á næstunni“, sagði
Finnbogi Jónsson að lokum. hb
Ferðamenn!
Sparisjóður Norðfjarðar vekur athygli á
að ferðagjaldeyrinn fáið þið afgreiddan hjá okkur.
Ef þið eigið afgang eftir ferðalagið, getur
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR nú ávaxtað
hann á gjaldeyrisreikningi.
Möguleikamir eru í sparisjóðnum
SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR
Neskaupstað @71125