Austurland - 04.09.1991, Page 5
MIÐVIKUDAGUR, 4. SEPTEMBER 1991.
5
Minning
Jón Guðmundsson
Neskaupstað
Fæddur 13. janúar 1905 - dáinn 14. júní 1991.
Og dauðinn þig leiddi í höll sína heim
þar sem hvelfingin víð og blá
reis úr húmi hnígandi ncetur
með hœkkandi dag yfir brá.
Par stigu draumar þíns liðna lífs
í loftinu mjúkan dans.
Og drottinn brosti, hver bœnþín varorðin
að blómum við fótskör hans.
Hann tók þig ífang sér og himnarnir hófu
í hjarta þér fagnandi söng.
Og sólkerfið dagana svifu þar
um sál þína í tónanna þröng.
En þú varst sem barnið, er beygir kné
til bœnar í fyrsta sinn.
Það á enginn orð nógu auðmjúk til,
en andvarpar. Faðir minn. (T. G.)
Hinn 14. júní síðastliðinn lést að
heimili sínu, kær vinur okkar, Jón
Guðmundsson ættaður frá Þrasastöðum
í Stíflu í Skagafirði.
Foreldrar hans voru hjónin Guð-
mundur Bergsson bóndi þar og kona
hans Guðný Jóhannsdóttir. Var Jón
fimmti í röðinni af þrettán systkinum,
en átta þeirra komust upp til fullorðins-
ára. Allir sem urðu samferða þeim
ágætu hjónum fundu samheldni þeirra
og var umhyggjan fyrir bömunum í
fyrirrúmi, var það því mikill harmur
kveðinn að Þrasastaðarheimilinu 1917,
er móðir Jóns, Guðný féll frá, þá 40 ára
gömul. Þessu mikla mótlæti tók Guð-
mundur með þreki og stillingu, hélt
hann börnum sínum hjá sér og ól þau
upp í miklu ástríki ásamt ráðskonu sinni
Kristínu Bjarnadóttur, er reyndist þeim
sem besta móðir. Prasastaðaheimilið
var mannmargt og vöndust bömin því
snemma mikilli vinnu, enda vinnudagur
þar oft langur og strangur.
Þann 28. maí 1928 giftist Jón heitkonu
sinni Guðrúnu Sigurhönnu Pétursdóttur
frá Hrólfsstöðum, Skagafirði. Stofnuðu
þau heimili sitt að Kleifum Ólafsfirði og
gerðist Jón bóndi þar. Eignuðust þau
hjón fjórar dætur en þær em:
Hólmfríður fædd 31. maí 1930 leik-
skólastjóri að Sólvöllum í Neskaupstað
gift Sigurði Jónssyni starfsmanni við
loðnuverksmiðju Síldarvinnslunnar hf.
í Neskaupstað, eiga þau fjóra syni.
Katrín sjúkraliði fædd 6. júlí 1932 gift
Magnúsi Ásmundssyni yfirlækni við
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað,
eiga þau fimm börn.
Jóhanna Sigrfður fædd 8. apríl 1934
sjúkraþjálfari gift Stefáni Antonssyni
vélstjóra, búsett í Bandaríkjunum, þau
eiga fjögur börn.
Yngst er Hulda fædd 3. apríl 1937
dagmóðir gift Hilmi Jóhannessyni
bæjarfulltrúa á Sauðárkróki, eiga þau
þrjú börn.
Um 1937 fluttist fjölskyldan frá Kleif-
um til Húsavíkur, gerðist Jón þá sjó-
maður en var jafnframt með sauðfé. Þar
bjuggu þau í nokkur ár þar til Guðrún
og Jón slitu samvistir. Um tíma var Jón
verkstjóri á Suðureyri við Súgandafjörð
og víðar. Einn son eignaðist Jón, heitir
hann Hreinn fæddur 16. desember 1946
verkstjóri og fiskmatsmaður á Húsavík,
á hann tvo syni.
1956 giftist Jón Helgu Biskopstö ætt-
aðri frá Klakksvík í Færeyjum fæddri 12.
júlí 1916. Bjuggu þau allan sinn búskap
í Neskaupstað en hún lést 5. nóvember
1980. Jón og Helga eignuðust eina kjör-
dóttur, er það Sólrún Hervör fædd 2. ág-
úst 1944 húsfreyja að Eyrarlandi í Deild-
ardal gift Páli Þorgilssyni bónda þar, þau
eiga fimm böm. 1949 - 1962 að einu ári
undanskyldu var Jón yfirverkstjóri hjá
fiskvinnslustöð SÚN í Neskaupstað.
Hann var einn af þeim er sátu stofnfund
Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað þann
11. desember 1957. Hann var varamaður
bæði í stjóm Síldarvinnslunnar hf. og
Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað.
Útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Sigríðar B. Tómasdóttur,
fer fram í Norðfjarðarkirkju
laugardaginn 7. september kl. 1030
Ingibjörg Símonardóttir Þorbergur Sveinsson
Hilmar Símonarson Pálína Imsland
Tómas Símonarson Anna Sigurbergsdóttir
Börn, barnabörn og barnabarnabörn
Einnig starfaði hann á bæjarskrifstof-
unni í Neskaupstað í tíð Bjarna heitins
Þórðarsonar bæjarstjóra. Seinna vann
Jón á skrifstofu og viðverslunarstörf hjá
SÚN eða til 1981 er hann lét af störfum.
Alla tíð reyndist hann traustur og sam-
viskusamur starfskraftur, hann var mik-
ill félagshyggjumaðurog hafði ákveðnar
skoðanir, en var ávallt félagi, sem öllum
þótti vænt um, er honum kynntust. Alla
tíð átti Jón sauðfé og eignaðist hann
fjölda vina í kringum það. Það var ekki
ósjaldan að foreldrar hér í bæ kæmu
með börn sín til að fylgjast með á vorin
er iömbin voru að fæðast, og átti hann
þá stundum til að gefa börnum nágranna
sinna lömb, þannig var Jón ávallt veit-
andi fremur en þiggjandi.
Mikill kunningsskapur var á milli for-
eldra minna og Jóns Guðmundssonar
því að í mörg ár rak hann sauðfé sitt
ásamt öðrum fjáreigendum hér, frá
Neskaupstað til beitar í Mjóafjörð og
var jafnan komið við á Keykjum og var
þá oft glatt á hjalla.
Þegar ég fluttist til Neskaupstaðar var
heimili þeirra Helgu, sem mitt annað
heimili og reyndust þau mér og mínum
ákaflega vel.
Ræktarsemi Jóns var einstök og skipti
þá ekki máli hvort í hlut áttu nánir ætt-
ingjar hans eða vinir og kunningjar,
vinahópur hans var mjög stór, hann var
skemmíilegur í vinahópi, höfðingi í lund
og veitti jafnan stórmannlega.
Með þessum línum viljum við þakka
honum samfylgdina og alla á ástúð og
hlýju, sem hann sýndi okkur.
Ættingjum hans og vinum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Jóns Guðmunds-
sonar.
Sigríður Wíum og fjölskylda
Neskaupstað.
Um útivistartíma
barna og ungmenna
Að gefnu tilefni er vakin athygli á eftirfarandi útdraetti
úr 44. gr. reglugerðar um vernd barna og ungmenna:
„I kaupstöðum, kauptúnum og öðru slíku þéttbýli með
400 íbúa og fleiri, mega börn yngri en 12 ára ekki vera á
almannafæri eftir kl. 20, og eftir kl. 22 tímabilið 1. maí til
1. september, nema í fylgd með fullorðnum, aðstandend-
um sínum eða umsjónarmönnum.
Unglingar yngri en 15 ára mega á slíkum stöðum ekki
vera á almannafæri eftir kl. 22 tímabilið 1. september til
1. maí og eftir kl. 23 1. maí til 1. september, nema í fylgd
með fullorðnum, eða um sé að ræða beina heimferð frá
skólaskemmtunum, íþróttasamkomu eða frá annarri
viðurkenndri æskulýðsstarfsemi.
Hvers konar þjónusta við börn og ungmenni eftir lögleg-
an útivistartíma, önnur en heimflutningur, er bönnuð að
viðlagðri ábyrgð þess, er þjónustu veitir. Handhöfum
þjónustuleyfa er skylt að fylgjast með því, að ákvæði þessi
séu haldin.
Ungmennum yngri en 16 ára er óheimill aðgangur og
dvöl á almennum dansleikjum eftir kl. 20, öðrum en sér-
stökum unglingaskemmtunum, sem haldnar eru af
skólum, æskulýðsfélögum eða öðrum aðilum, sem til þess
hafa leyfi og háðar eru sérstöku eftirliti. Forstöðumönnum
dansleikja er skylt að fylgjast með því að ákvæði þessi
séu haldin, að viðlögðum sektum og/eða missi leyfis til
veitingahalds eða skemmtanahalds um lengri eða
skemmri tíma.
Þeir sem hafa forsjá eða foreldraráð barna og ungmenna
skulu að viðlögðum sektum gæta þess, að ákvæði þessar-
ar greinar séu ekki brotin. Þá má einnig beita sakhæf
ungmenni viðurlögum fyrir brot á þessum ákvæðum.
Utdráttur úr ákvæðum þessarar greinar skal hanga á
áberandi stað í öllum skólum skyldunáms, almennum
veitingahúsum og samkomustöðum í lögsagnarumdæm-
inu og sér viðkomandi barnaverndarnefnd um það ásamt
lögreglu."
Bæjarfógetinn í Neskaupstað,
3. september 1991,
Ólafur K. Ólafsson.
Skólaskórnir komnir
Rucanor/á/'
Smash Pro
Stærðir: 25 - 46
verð frá kr.
2.995.
SpikerST
Stærðir: 35 - 46
Verð frá kr. 3.990,-'
Frábærip innanhússskóp fpá ðSjCS**2"
VIÐ LÆKINN
NESKAUPSTAÐ S 71288