Austurland - 04.09.1991, Page 6
Auglýsinga- og
Sáskriftarsímar Austurlands
715 71 -717 50
Farskólinn á Austurlandi
Tæplega 200 manns
í námskeiðum á
síðasta skólaári
Áskólaárinu 1990-1991 voru
haldin 16 námskeið á vegum
Farskólans á Austurlandi og
voru þau haldin á 9 stöðum í
fjórðungnum. Nemendafjöldi
var tæplega 200 og fjöldi
kennslustunda um 700.
Farskólinn heldur námskeið-
in í samstarfi við ýmsa aðila,
bæði austfirska ogJá höfuðborg-
arsvæðinu. Allir eru þessir aðil-
ar færir til að veita fræðslu á sér-
hæfðu sviði og er samstarfið við
þá skólanum einkar mikilvægt.
Þau námskeið sem haldin
voru mega flest teljast til endur-
menntunar og voru þau ætluð
fólki í ýmsum starfsgreinum
eins og t. d. iðnaðarmönnum,
skrifstofufólki, stjórnendum
fyrirtækja o. fl. Einnig voru
haldin fræðslunámskeið fyrir
ýmsa hópa eins og t. d. fyrir
nefndarntenn sem sitja í nefnd-
um á vegum sveitarfélaga. Þá
fór fram á vegum Farskólans ís-
lenskunám fyrir útlendinga sem
störfuðu í Neskaupstað og gafst
það mjög vel.
Þess má geta að eitt þeirra
námskeiða sem Farskólinn stóð
fyrir veitti nemendum formleg
réttindi en það var nám í skip-
stjórn sem gaf réttindi til að
stýra 30 tonna bátum. Slík
námskeið voru bæði haldin í
Neskaupstað og á Borgarfirði.
Á komandi vetri verður starf-
semi Farskólans með svipuðum
hætti og verið hefur en þó er
alltaf reynt að gera starfsemina
fjölbreyttari og laga hana að
óskum. Það er einmitt einkar
mikilvægt að koma á framfæri
óskum og hugmyndum um
námskeið sem þörf er fyrir og
Farskólinn gæti staðið að. Höf-
uðstöðvar Farskólans eru í
Verkmenntaskóla Austurlands
í Neskaupstað.
Á fimmta þúsund manns hafa farið á Vatnajökul í sumar á vegum
Jöklaferða hf. Ljósm. hb
Siglingar á Jökulsárlóni hafa náð geysilegum vinsœldum.
Ljósm. hb
Austur-Skaftafellssýsla
Aöalfundur SSA
Mikil uppbygging á sviði
Ályktanir um samgöngumál fórðamannaþjónustu
Aðalfundur Sambands sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi
var haldinn á Seyðisfirði dagana
23. og 24. ágúst sl. Samkvæmt
venju var mikið fjallað um sam-
göngumál á fundinum og verður
hér gerð grein fyrir því helsta
sem fram kom í ályktun um
fundarins um þann málaflokk.
Áður hefur birst í blaðinu álykt-
un fundarins um jarðgangamál
þar sem fyrri stefna í þeim efn-
Síldveiðar
Síldveiðar máttu hefjast sl.
sunnudag eða 1. september og
má vertíðin standa fram í mars-
mánuð. Sjvaraútvegsráðuneyt-
ið hefur heimilað veiðar á allt
að 110 þúsund tonnum af síld
og verður fjöldi síldarbáta sá
sami og í fyrra eða 98.
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðið hefur aflað sér hefur lítið
orðíð vart við síld í Austfjörð-
um og er ekki gert ráð fyrir að
vertíöin hefjist í reynd fyrr en
komið veröur fram í október.
um var staðfest og verður henni
því engin skil gerð hér. Helstu
efnisatriði ályktana fundarins
um samgöngumál eru eftirfar-
andi:
- Skorað var á þingmenn kjör-
dæmisins að beita sér fyrir því
að við endurskoðun næstu vega-
áætiunar fái vegurinn um Heið-
arenda sérstakan forgang.
- Fundurinn hvatti til að áfram
verði unnið að því að koma á
heilsárstengingu milli Norður-
lands og Austurlands.
- Fundurinn beindi því til ríkis-
valdsins að staðið verði við þau
fyrirheit og samninga sem gerðir
hafa verið um samgöngubætur
innan sveitarfélaga eftir að þau
hafa sameinast.
- Fndurinn lýsti áhyggjum sín-
um vegna landbrots við Jökulsá
á Breiðamerkursandi og beindi
því til samgönguráðuneytisins
að vel yröi fylgst með þróun
mála þar.
- Þeirri áskorun var beint til
þingmanna Austurlands og
Vegagerðar ríkisins að Þríhyrn-
ingsleið að Brú og frá Aðalbóli
að Snæfellsskála verði gerð að
aðalfjallvegi. Jafnframt verði
vegurinn um Öxi gerður að
aðalfjallvegi.
- Fundurinn beindi því til
Vegagerðar ríkisins að þjónusta
við snjómokstur verði ekki skert
og leitast verði við að auka
sveigjanleika varðandi mokst-
urinn.
- Fundurinn lagði áherslu á
nauðsyn þess að bæta viðhald
malarvega.
- Aðalfundurinn fagnaði yfir-
standandi framkvæmdum við
veg um Hellisheiði til Vopna-
fjarðar.
Ferðamannaiðnaður vex skemmri ferðir á jökulinn. í síð-
hröðum skrefum í Austur-
Skaftafellssýslu og sem dæmi
um ferðamannastrauminn má
nefna að í sumar hafa á fimmta
þúsund manns farið á Vatnajök-
ul á vegum Jöklaferða hf. og um
sextán þúsund hafa farið í báts-
ferðir á Jökulsárlóni á Breiða-
merkursandi.
Hlutafélagið Jöklaferðir var
stofnað 1985 og fór tiltölulega
hægt af stað en í fyrra og í ár
hefur oðið gífurleg aukning í
starfseminni. Félagið á nú og
rekur tuttugu snjósleða og einn
snjóbíl og býður upp á lengri og
asta mánuði var tekinn í notkun
skáli í eigu Jöklaferða sem er á
Hálsaskeri við Skálafellsjökul. í
skálanum er veitingasalur og
gistiaðstaða fyrir 40 ferðamenn
auk húsrýmis fyrir starfsfólk
Jöklaferða. Hefurskálinn hlotið
nafnið Jöklasel.
Nýlega var fyrsti áfangi þjón-
ustu- og upplýsingamiðstövar í
tengslum við tjaldstæðið á Höfn
tekinn formlega í notkun.
Bæjarfélagið kostaði byggingu
stöðvarinnar en Jöklaferðir hf.
hafa leigt hana til þriggja ára og
munu annast rekstur hennar.
Verkmenntaskóli Austurlands
Grímur Magnússon
aðstoðarskólameistari
Grímur Magnússon hefur
nýlega verið ráðinn aðstoðar-
skólameistari Verkmenntaskóla
Austurlands.
Grímur er Norðfirðingur,
kennari að mennt og hefur starf-
að sem kennari og yfirkennari í
Neskaupstað frá árinu 1973. Á
síðasta skólaári stundaði Grím-
ur nám í Danmörku.
Grímur Magnússon.