Austurland


Austurland - 15.12.1991, Side 7

Austurland - 15.12.1991, Side 7
JÓLIN 1991. 7 og farkosturinn dreginn þar á land, vafalaust með hjálp heimamanna nema piltar allir hafi verið rónir til fiskjar. Síðan var haldið á Drangaskarð sem þótti rétt skikkanleg gönguleið, þótt nú þyki bratt uppgöngu, einkum frá Norðfirði, þá talinn slakur tveggja tíma gangur byggða í milli. Ferðastjái var reyndar ekki lokið þótt komið væri suður að Nesi. Gift var í kirkju og kirkjan þá inni á Skorrastað. Hestar voru settir undir ferðalangana og riðu menn svo til kirkjunnar. Man ég að mamma gat þess að hún hefði fengið góðhest til ásetu og að kirkjuferðin öll hefði verið hin ánægjulegasta. Séra Jón Guðmundsson, síðar prófastur, hafði þá verið prestur Norðfirðinga í sex ár - og var það til æviloka 1929. Hann gaf nú brúðhjónin saman eins og vera bar, en svaramenn voru þeir Halldór Sefánsson bóndi á Bakka og trésmiður Vigfús Kjartansson Nesi. Nú er ég, því miður, næsta fáfróður um veisluhaldið, hvar það var og hvernig það fór fram í einstökum atriðum. En í endurminningu mömmu var þetta fögur veisla. Og víst er um það að dansað var alla nóttina og ekki gefið upp fyrr en dagur rann hinn 6. október. Pá var að tygja sit til heimferðar og setja upp gönguskóna, það var ekki til setunnar boðið og ekki bag- aði veðrið. í þá daga var flest eða allt heilbrigt fólk á íslandi þaulvant göngum, svo i byggð sem um fjöll og firnindi. Þó þykir mér trúlegt að veislugestum hafi ver- ið lítið eitt þyngra um gang til baka og eftir dansiballið heldur en daginn áður þegar haldið var að heiman. Að minnsta kosti sagðist móðir mín hafa hugsað um það með nokkurri tilhlökk- un að komast heim og í bólið og hvíla lúin bein eftir lukkulega ferð. Pví heimferðin, yfir fjall og fjörð, gekk ljómandi vel. Margt fer öðruvísi en ætlað er. Heimkoman varð einkar ánægjuleg. Ný manneskja var komin í heiminn, Pórunn Ein- arsdóttir og seinna Svendsen. Hér hafði farið sem oftar að ekki er hægt að fresta því sem fram á að koma. Allt hafði geng- ið vel og konu og barni heilsað- ist ágætlega. En það varð nokk- ur bið á því að yngsta systirin Stefanía, heim komin úr brúð- kaupsveislunni áNorðfirði, gæti tekið á sig náðir. Þess í stað hafði hún nú fataskipti í flýti og fór síðan rakleitt að þvottabal- anum! Það er svo önnur saga, að Jóhanna Sigurðardóttir, sem nú hafði alið fyrsta barn þeirra hjóna, bætti átveimuráratugum fimmtán við. Ég man ekki til þess að Stefanía móðir mín segði frá fleiri eftirminnilegum ferðum milli Mjóafjarðar og Norðfjarð- ar. Pær urðu þeim mun fleiri á Greinarhöfundur ásamt móður sinni. hinn veginn, til Seyðisfjarðar og frá, því þar átti hún æskuslóðir: Fermingarárið róandi með Árna móðurbróður á Hofi og börðu náttlangt undir Bjargi í sunnanstormi og íshröngli uns slegið var undan og lent við Skálanes í dögun. Seinna með Vilhjálmi mági siglandi á „fær- eyingi“ fullhlöðnum kolum í hífandi norðanstormi. Og löngu seinna með es. Sterling til Seyð- isfjarðar í svarta þoku, seinustu ferð þess fagra skips sem þá bar upp á sker við Brimnes. - Sam- an fórum við þá ferð. Og saman fórum við á efri árum hennar ríðandi á Seyðisfjörð, Hesteyr- arskarð og Hánefsstaðakinn, Snjófellsskarð og Hánefsstaða- dal, og tæp og víkjandi hjarn- höft fleyttu hestum okkar yfir holurðirnar innan við Einbú- ann. Það var síðasta fjallferð mömmu. Brúðkaupsferð Hofsverja haustið 1894 væri sjálfsagt með öllu gleymd og grafin ef ekki hefði staðið svona á heima á Hofi þegar komið var úr veisl- unni. Það þótti víst aldrei til- tökumál að skondra yfir Drangaskarð og Miðstrandar- skarð meðan búið var báðu megin við þessa fjallvegi. Það geta þau best borið um systkinin frá Reykjum sem síðast uxu upp norðan skarðanna. Norður- byggjar (í Mjóafirði) fóru sjaldnar þessa leið til gleðimóta seinni árin og bar þó við. Sjálfur fór ég skörðin tvö einkum í póst- ferðum, fyrir eða í umboði Daníels pósts, og varð feginn að hvílast nætursakir hjá Önnu og Sigdóri - eftir að hafa gengið aðra leiðina. En sleppum því. Ferðir milli grannfjarðanna, Mjóafjaröar og Norðfjarðar, til skemmtana og annarra mann- funda voru hreint ckki einhliða áður fyrr heldur gagnkvæmar. I febrúar 1901 sóttu nokkrir stúkufélagar á Norðfirði rcglu- bræður sína á Mjóafirði í barátt- unni við Bakkus. Sömdu þá meðal annars áskorun til kaupmanna á Nesi um að hætta brennivínssölu sem þeir og gerðu litlu seinna -dropinn hol- ar steininn. Ári síðar, á þrettándanum 1902, fóru nítján saman á tveim- ur árabátum frá Nesi og mættu gunnreifir við álfadans í Mjóa- firði. í þeim hópi voru einkum ungir piltar en líka tvær konur og roskinn maður, Jón fótalausi sem svo var nefndur eftir að hann missti báða fætur í hrakn- ingum. Álfar léku listir og dans Jón Sigurðsson „fótalausi“. dunaði í Templara þeirra Mjó- firðinga. En heimferðin varð sögulegust því þá hvessti illilega og stóð út firðina. Fyrri báturinn sneri aftur við Hafnartanga og barði inn með landi án þess að hinir tækju eftir. Náðu þeir að Krossi þar sem aftur var dansað lengi nætur. Seinni báturinn sigldi ofanaf sér á Geirólfsvík- inni og varð þeirra barningur sýnu verri og náðu þó að Nesi seint um síðir. Frá þessu segir Tómas sálugi Zoéga sparisjóðs- stjóri í hressilegu skrifi í fjölrit- uðu jólablaði Pórs 1954. Ég er nú svo gamall sem á grönum má sjá og hef oft bland- að geði með grönnum mínum á Norðfirði við ýmis tækifæri og raunar báðu megin við Nípu. En ætli mér séu nú ekki eftirminni- legastar tvær ferðir farnar í æsku. Sigdór föðurbróður minn vantaði leikrit fyrir barnastúk- una Vorperlu, en ég átti Skyggnu augun, leikrit sem fylgt hafði barnablaðinu Unga ís- landi, og lánaði það. Fyrir bragðið var mér boðið á frum- sýningu og Hrefnu fóstursystur minni, en við vorum þá níu eða tíu ára gömul. Þetta var fyrsta leikhúsferðin og ég man vel hrifningu mína undir dulúðugri sýningunni. En líka örlítinn leiða á eftir. Þá var nefnilega farið að dansa og það kunni ég ekki. En Hrefna! Fáum árum seinna fórum við krakkarnir með mörnmu á Norðfjörð - og var boðið á bíó. Þar sá ég þá bestu og skemmti- legustu kvikmynd sem ég hef nokkurn tíma séð. í aðalhlut- verkum voru þeir Litli og Stóri og áttu erfitt uppdráttar í sand- stormi á Jótlandsheiðum, ég held þar sem fslendingum var eitt sinn ætlað land tii búsetu og ræktunar. Allt er breytingum undirorp- ið. Áðurfóru menn fjöll og dali, fótgangandi þegar því var að skipta, eins og að drekka vatn, eða „ýttust á með árum á bárum“. Sagter að Norðfirðing- ar og Mjófirðingar ættu sína þjóðbraut eða milli-sveita-veg um Göngurák í miðri Nípu og þendu þar gæðinga sína. En svo spilltist rákin. Mótorbátarnir ollu óskaplegri breytingu, ekki aðeins við sjó- sókn heldur og í samgöngumál- um veglausra sjávarbyggða. Löngu seinna komu vegirnir og það varð önnur bylting og raskaði sums staðar afstöðu byggðarlaga og skipti sköpum fyrir tilveru þeirra. Og nú eru menn teknir að temja sér háttu trölla í ævin- týrum og bora göt á fjöll. í alvöru er talað um eitt okkar í milli, Norðfirðinga og Mjófirðinga, enda fylgi því fleiri göt. Þá verður gaman að lifa! Óneitanlega væri þó tilkomumeira að fylgja dæmi feðranna og fara með framtíðar- veginn fyrir Nípu um Göngurák. En það er varla til þess vinnandi. Vilhjálmur Hjálmarsson. Með alþýðlegum og glettnum hætti segir Vilhjálmur Hjálmarsson frá samferðamönnum, sér og sínum og fjölbreyttri sýslan sem al- þingismaður, ráðherra, kennari, blaðamaður, ritstjóri, bókavörð- ur, oddviti, vegarruðslumaður, rithöfundur og bóndi. Hann hefur gegnt formennsku í útvarpsráði og skólaráði hús- mæðraskóla og átt sæti í fjölda annarra nefnda og ráða. Auk þess hefur hann annast fermingarundirbúning barna og unnið að síldar- söltun, fiskaðgerð og jarðvinnslu. Þá er hann eftirsóttur ræðumaður, ekki síst ef vænst er gaman- yrða. Hátt í hundrað Ijósmynda skreyta skemmtilega frásögn i Viihjáims. „Hann er sagður bóndi“ er skemmtileg bók ! Jólatrésskemmtun Jólatrésskemmtun Kvenfélagsins Nönnu verður haldin í Egilsbúð 28. desember 1991 klukkan 1500 — 1800 Miðaverð kr. 300.- — Eitt verð fyrir alla Miðasala við innganginn Nefndin

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.