Austurland - 15.12.1991, Blaðsíða 17
JÓLIN 1991.
17
að segja, árstíðirnar og jafnvel
hvenær dagsins þú finnur til.
Nálarstungurnar miða að því að
jafna orkuflæðið í líkamanum
og losa um stíflur. Allt byggist
þetta á ying og yang fræðun-
um.“
Er nálarstunguaðferðin
raunveruleg læknisaðferð?
„Að mínu mati er nálar-
stunguaðferðin raunveruleg
læknisaðferð, alveg tvímæla-
laust og eins og ég sagði hér áður
er þetta aðferð sem þú ert að
læra svo lengi sem þú stundar
hana. Fyrir mig sem hef aðeins
stundað þetta í rúmlega eitt ár
er þetta aðeins upphafið. Von-
andi gefst mér tækifæri til að
vinna við þetta og iæra meira í
þessum fræðum. Eg hef séð á
þessum skamma tíma alltof
margt til þess að hægt sé að segj a
að þetta sé rugl. Öll röskun á
líkamsstarfsemi stafar alltaf af
einhverskonar röskun, ójafn-
vægi í líkamanum og það getur
oft verið erfitt að finna út hvað
er að, en ég hef ekki ennþá séð
nokkurn fara frá þessum lækn-
um sem ekki hefur fengið bót
sinna meina.
Hverjum gagnast meðferðin
Ef nálarstungulæknar eru
spurðir að því hvaða sjúkdóma
eða einkenni þeir meðhöndli
helst, svara þeir því til að þeir
meðhöndli ekki sjúkdóma held-
ur fólk. Flestir munu þó viður-
kenna að til séu þeir sjúkdómar
sem sérstakur árangur hafi
náðst gegn með nálarstungum
og það eru einmitt þeir sjúk-
dómar sem hvað minnstur
árangur hefur náðst gegn með
hefðbundnum aðferðum.
Nýlega sendi alþjóðaheil-
brigðisráðið í Peking frá sér
skýrslu þar sem teknar eru sam-
an niðurstöður rannsókna á nál-
arstungum um allan heim.
Niðurstöðurnar byggjast meira
á reynslu nálarstungulækna en
beinum samanburðarrannsókn-
um og ekki er lagt mat á það
hversu vel nálarstungur verki
gegn einstökum sjúkdómum.
Samt sem áður eru gefnar gagn-
legar vísbendingar um það sem
nálarstungulæknar treysta sér
yfirleitt til að meðhöndla. Með-
al annars eru þar taldir sjúk-
dómar í öndunarfærum, augn-
sjúkdómar, sjúkdómar í munni,
meltingasjúkdómar, taugasjúk-
dómar og sjúkdómar í beinum
og vöðvum.
Nálarstungulæknar segja
flesta sjúklinga leita til sín með
„blöndu margra einkenna" sem
læknar á Vesturlöndum mundu
meöhöndla hvert í sínu lagi með
því að vísa á sérfræðinga, en í
augum nálarstungulækna geta
verið augljós tengsl þarna á milli
og nálarstungulæknar með-
höndla slíkt í einu lagi.
Nálarstungur
við alkóhólisma
„í Bandaríkjunum hafamenn
beitt nálarstungum við alkóhól-
isma og að því að talið er með
nokkuð góðum árangri. Fyrstog
fremst hefur þessu verið beitt
við eiturlyfjaneytendur og mið-
Tveir nálarstungulœknar á háskólasjúkrahúsinu, dr. Leu Mey og
dr. Li Hui.
ast meðferðin þá við að koma í
veg fyrir þau hrikalegu frá-
hvarfseinkenni sem afeitruninni
fylgir. Nálarstunga er einnig
notuð í Kína gegn alkóhólisma
en alkóhólismi er mjög fágætur
þar í landi, en þeir viðurkenna
þetta sem sjúkdóm og í þeirra
fræðum er þetta sjúkdómur þótt
skiptar skoðanir séu um það á
Vesturlöndum.“
Hvað er framundan?
„Ég fer út til Svíþjóðar eftir
áramót og fyrst um sinn verð ég
í hlutastarfi á næturvöktum og
ætla að nota þann frítíma sem
gefst til að vinna við nálarstung-
ur. Það koma líka oft kínverskir
nálarstungulæknar með nám-
skeið og það ætla ég að notafæra
mér, þá er yfirleitt um að ræða
viku til 10 daga námskeið þar
sem boðið er upp á að taka fyrir
eitthvert ákveðið svið innan nál-
arstungunnar.
Ef til vill verður þessi reglu-
gerð sem ég minntist á í upphafi
komin til framkvæmda á næsta
ári og þá kem ég kannski heim
til að vinna við nálarstungu-
lækningar. Ég er viss um að fólk
mun notfæra sér þessa lækn-
ingaaðferð í æ ríkari mæli, því
það er svo margt sem mælir með
því og bendir til þess. T. d.
áhugi fólks fyrir að hugsa betur
um líkama sinn og þá er ekki
sama hvað þú setur ofan í þig
og eru ýmis lyf þar meðtalin.
Annars er ég bara bjartsýn á
framtíðina og hlakka til að læra
meira um nálarstungulækning-
ar.“
Ferðamenn á Kínamúrnum.
margir punktar eru á hverri línu,
9 punktar eru á hjartalínunni
hvorum megin en línan sem
kennd er við blöðruna hefur 67
punkta.
Púlsarnir á orkubrautunum.
Pegar nálarstungur eru gerðar
skiptir meginmáli að taka púls-
ana. Hver orkubraut hefur sinn
púls, og þeir eru teknir hver á
eftir öðrum. Á hvorum úlnlið
eru 6 púlsar, 3 við yfirborðið og
3 sem liggja dýpra.
YinlYang táknmyndin. Táknið á Orkubrautirnar. Ef dregnar eru
að merkja hið fullkomna sam- línur milli allra nálarstungu-
rœmi og þá stöðugu víxlverkun punktanna koma orkubrautirn-
sem er á milli yin- og yangkrafts- ar 12fram. Eftirþeim flæðir lífs-
ins í sérhverri lífveru. orkan (chi) um líkamann. Mis-
A kínamúrnum.