Austurland


Austurland - 15.12.1991, Qupperneq 12

Austurland - 15.12.1991, Qupperneq 12
12 JÓLIN 1991. Skrif í Austurland Nokkuð fljótlega tók ég að mér að skrifa lítillega fyrir Aust- urland. Sjálfsagt hefur þetta komið til vegna þess að ég var að yrkja og skrifa á þessum árum og Bjarni sýndi þessari tómstundaiðju minni mikinn áhuga. Það sem birtist eftir mig í Austurlandi var af ýmsum toga. Einhverjar vísur voru birt- ar svo og smásögur en eins birt- ust þýðingar úr erlendum blöðum. Ég þýddi svolítið úr dönsku en aðallega úr þýsku með aðstoð Birgittu konu ntinn- ar sem er þýsk að uppruna. Þessi skrif mín fyrir Austur- land fengu svolítið óvæntan endi. Þannig var að ég sá einu sinni í þýska blaðinu Der Spie- gei grein sem vakti athygli mína og ég ákvað að þýða hana til birtingar í Austurlandi. Greinin fjallaði urn sannsögulegan at- burð og sagði í henni frá þýskri rússneskumælandi stúlku sem gegndi starfi símstöðvarstjóra hjá rússneska setuliðinu í Berlín. Faðir þessarar stúlku hafði verið hershöfðingi í stríð- inu en sat í fangelsi í Rússlandi þegar þeir atburðir senr greint var frá áttu sér stað. Eitt kvöld þegar stúlkan var við störf á sím- stöðinni kom hún inn á samtal á milli rússneska setuliðsstjór- ans í Berlín og Stalíns. Þegar samtalinu lauk fór hún inn á lín- una og tókst að ná tali af bóndanum í Kreml. Sagði hún honum frá föður sínum og grátbað Stalín að stuðla að því að hann yrði látinn laus. Sovéski þjóðarleiðtoginn mun engu hafa lofað en nokkrum dögum síðar var faðir stúlkunnar leystur úr haldi án þess að skýringar á því væru gefnar. Ég heid að megi halda því fram að þessi frásögn sýni ákveðna hlið á Stalín sem ekki hefur mikið verið til um- ræðu. Ég lagði talsverða vinnu í að þýða þessa grein en einhverra hluta vegna vildi Bjarni ekki birta hana í Austurlandi. Ekki veit ég hvort honum hefur þót hún vera of vinsamleg í Stalíns garð. Skömmu síðar birtist hins vegar greinin í Þjóðviljanum og vakti talsverða athygli. Ég varð öskuvondur þegar ég sá þýðing- una í Þjóðviljanum, rauk til Bjarna og tjáði honum að ég Bjarni Þórðarson. myndi aldrei framar skrifa staf- krók fyrir Austurland. Svona eftir á að hyggja þá hef ég lík- lega hlaupið á mig þarna en ég á skap sem stundum getur reynst illviðráðanlegt. Skemmtilegar endurminningar Prentsmiðjuárin voru að mörgu leyti afar skemmtileg og á ég ljúfar minningar frá þessum tíma. Pað var yfirleitt kátt á hjalla á vinnustaðnum og þang- að komu margir enda prent- smiðjan til húsa í miðjum bæn- um í svokölluðu Isfeldshúsi þar sem nú er Tónabær. Norðfirðingar voru eðlilega stoltir og ánægðir þegar útgáfa vikublaðs hófst á staðnum og ekki minnkaði stoltið þegar blöðin urðu fleiri. Fljótlega hóf- ust pólitískir andstæðingar sós- íalista blaðaútgáfu þó svo að sú útgáfa væri oft ansi stopul. Ein- hverju sinni gáfu framsóknar- menn út blað og líklega var það fyrsta blaðið sem gefið var út í Neskaupstað sem mótvægi við Austurland. Sonur eins harð- asta sósíalistans í bænum varð sér úti um framsóknarblaðið en límdi haus Austurlands yfir haus þess áður en karl faðir hans kom heim úr vinnu. Pað fyrsta sem faðirinn gerði þegar heim var komið var að grípa blaöið og hefja lcstur eins og hann var vanur aö gera dag hvern sem Austurland kom út. Fljótlega Höfuðverkur Smásaga Gamli maðurinn, sem lá í rúminu var fremur sjóndapur. Hann notaði ákaflega einkennileg gleraugu, þau voru grænleit og fremur þykk. Hann var búinn að liggja nokkra daga og hafði mjög slæman hósta. Dag einn fékk hann óþolandi höfuðverk. Hann kallaði á konuna sína og bað hana að ná í góðar pillur til læknisins. Gamla konan, hún hét Guðlaug, arkaði af stað til læknisins eftir pillunum. Pegar hún kom á biðstofuna var hún hálffull af fólki. Hún þurfti því að bíða nokkuð lengi. Loks kom röðin að henni ogfékk hún lyfseðil hjá lækninum. Guðlaug sótti nú pillurnar í lyfjabúðina og fór þvínæst heim. Maður hennar, hann hét Bjarni, kallaði í hana um leið og hún kom inn úr dyrunum. „Æ, flýttu þér nú með pillurnar, ég er að deyja úr höfuð- verkli, sagði hann. Guðlaug sótti glas af vatni og rétti honum nokkrar pillur. Hann tók þær og drakk vatn með. Eftir stund- arkorn var hann sofnaður. Guðlaug hellti nokkrum pillum úr pakkanum í lófa sinn og lét 4 á lítið borð, sem stóð við rúm Bjarna. Þvínæst sótti hún glas af vatni og setti það hjá. Hún fór fram í eldhús og lagfærði þar ýmislegt. Innan úr herberginu heyrðust hrotur, svo það var auöheyrt, að Bjarni svaf vel. Seint um kvöldið vaknaði Bjarni og kallaði á konu sína: „Guðlaug, hvar eru pillurnar, ég er alveg að sálast úr höfuð- verk‘\ Gamla konan var að sýsla við eldinn og kallaði því inn: „Þær liggja á borðinu hjáþérog glasaf vatni hjáþeim“. „Kveiktu þá ljós“, kallaði Bjarni, „svo ég sjái til“, bætti hann við. Bjarni seildist eftir pillunum og glasinu á borðinu. Hann renndi þeim niður með vatninu. Síðan lagðist hann útaf. Höfuðverkurinn leið smátt og smátt frá og nú leið Bjarna vel. „Æ, miklir blessaðir menn eru þessir læknar", tautaði hann. „Ef ég hefði nú ekki fengið þessar pillur væri ég líklega dáinn úr höfuðverk". Síðan hélt hann áfram: „Já, því segi ég það, þessar pillur þær eru ómissandi". Bjarna ieiö nú virkilega vel og þcssvcgna sofnaði hann áöur en varöi. Guölaug gamla kom inn í herbergiö. Hún hélt á hvítri skyrtu. Gamla konan gekk rakleitt að boröinu, sem stóð við rúm Bjarna og rótaði þar til. „Hvaö skyldi hafa oröið af hvítu tölunum, sem ég lét hér á borðið?", tautaöi hún fyrir munni sér. Síðan hélt hún áfram að leita á boröinu en árangurslaust. Tölurnar voru horfnar með öllu. Á boröinu lágu 4 pillur viö glasið hans Bjarna. Sögu þessa samdi Óskar Björnsson um tvítugt en hún hirtist fyrst í Austurlandi árið 1951. Óskar Björnsson. fór karl að ókyrrast í sæti sínu og að endingu stóð hann upp og henti frá sér blaðinu og hrópaði: „Nei, nú er bara um tvennt að ræða; annað hvort er Bjarni orðinn vitlaus eða þeir í prent- smiðjunni fullir". Þessi athugasemd föðurins er að mörgu leyti skiljanleg því seint hefði framsóknartónn ein- kennt skrif Bjarna Þórðarsonar en ekki var óalgengt að við prentsmiðjumenn værum vei kenndir í vinnunni. Ég held hins vegar að störfin í prentverkinu hafi gengið þokkalega þrátt fyrir að flaskan hafi alloft verið innan seilingar. Fljótlega hófst í Austurlandi vísnaþáttur sem Davíð Áskels- son kennari sá um. I fyrsta þættinum hvatti Davíð menn til að senda sér efni í þáttinn og sagði að heimilisfang sitt væri box 56 í Neskaupstað. Gárung- arnir hófu að grínast með heim- ilisfang umsjónarmannsins en Davíð birti þá eftirfarandi vísu í næsta blaði: Úr íbúðinni œtla loks yfirvöld að bera mig. En fjandierhart aðflytja’ íbox, fyrr lœt ég nú skera mig. Margar afskaplega góðar vís- ur birtust í vísnaþætti Davíðs og hann hafði líka hvetjandi áhrif á mig og fleiri sem voru að reyna að fást við að setja saman vísur. Mér er t. d. eftirminnileg þessi vísa sem er eftir Einar Svein Frímann: „Elskið alla menrí', kvað Mannsins sonur, en mörgum þótti krafan nokkuð stór. Pá sagði Fjandinn: „Elskið allar konur", og allir hlýddu. Siðan fór sem fór. Ugglaust væri lengi hægt að rifja upp sitthvað skemmtilegt frá þessum tíma en eftir á að hyggja finnst mér það hafa verið dýrmæt reynsla að fá að starfa í prentsmiðjunni á meðan hún var að slíta barnsskónum. SG S 11774 SKQGRÆKT RIKISINS HALLORMSSTAÐ veljum íslenskt Góðfúslega pantið jólatrén í tíma Umboðsmenn á Austurlandi: Bakkafjörður Vopnafjörður Borgarfjörður Seyðisfjörður Egilsstaðir Neskaupstaður Neskaupstaður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Breiðdalsvík Djúpivogur Járnbrá Einarsdóttir Kaupfélag Vopnfirðinga KHB KHB Byggingavörudeild KHB Aðalsteinn Halldórsson Kaupfélagið Fram Jóhanna Sigtryggsdóttir Byggingavörudeild KHB Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar Kaupfélag Stöðfirðinga Kaupfélag Stöðfirðinga Kaupfélagið Djúpavogi Höfn Kiwaniskl./Haukur Sveinbjörnsson sími 31660 sími31203 sími 29940 sími21201 sími 11200 sími71253 sími 71304 sími 61466 sími 41200 sími51245 sími 58882 sími56670 sími 88882 sími 81260

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.