Austurland


Austurland - 15.12.1991, Page 23

Austurland - 15.12.1991, Page 23
JÓLIN 1991. 23 Hátíðarmatseðill ritstjóra Gestgjafans Tímaritið Gestgjafinn er vel þekkt meðal allra þeirra sem unna góðum mat og fallega fram bornum. Rut Helgadóttir ritstjóri blaðsins er matreiðslumaður Austurlands að þessu sinni og fara tillögur hennar að hátíð- armatseðli hér á eftir. Rjúpuseyði með grænmeti f. 4. 1 hamflett og hreinsuð rjúpa. l'/ilítri hœnsnasoð (t. d. af ten- ingi). V: stilkur sellerí. V: gulrót. Vr blaðlaukur (hvíti hlutinn). Skolið rjúpuna að utan og innan og sjóðið í hænsnasoðinu í 40 - 50 mínútur. Hreinsið grænmetið og skerið það í örlitla bita. Sigtið soðið, takið bring- umar frá og skerið þær í litla bita. Bætið grænmetinu og rjúpubringunum ísoðiðogsjóð- ið áfram í 10 mínútur. Berið súpuna fram sjóðheita með smjördeigshálfmánum. Smjördeigshálfmánar: 1 pk. frosið smjördeig. 1 egg■ Þíðið smjördeigið og fletjið það lauslega út. Skerið út hálf- mána með smákökumóti og setjið þá á ofnplötu klædda bökunarpappír. Penslið hálf- mánana með þeyttu eggi og bak- ið í lOmínútur við 200gráður. Innbakaðar laxabollur með paprikusósu f. 4. 300 g ferskur roð- og beinlaus lax. I tsk. salt. 1 eggjahvíta. 2 dl rjómi. Cayennepipar á hnífsoddi. V/> lítri fisksoð. 250 g frosið smjördeig. 1 egg til að pensla með. Skerið laxinn í litla bita, setjið hann í blandara og hrærið í mauk, eða setjið hann tvisvar í gegnum hakkavél. Látið farsið standa í kæli í klukkustund. Takið laxafarsið úr kæli og bæt- ið saltinu í. Hrærið eggjahvít- unni saman við og bætið síðan rjómanum í smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, bragðbæt- ið með pipar. Hitið soðið að suðumarki, mótið fjórar stórar bollur úr farsinu, sjóðið bollurn- ar í 3 - 4 mínútur og látið soðið bullsjóða á meðan. Takið boll- urnar upp með fiskispaða og kælið þær. Þíðið smjördeigið og fletjið það þunnt út. Skerið út ferhyrndar kökur úr deiginu, leggið eina bollu á hvern ferning og pakkið deiginu utan um. Prýstið endunum vel saman svo deigið sé alveg lokað. Hitið ofn- inn í 250 gráður, penslið deig- bögglana með egginu og bakið í 10 mínútur, eða þar til deigið er gulbrúnt. Berið fram heitt með paprikusósu. Paprikusósa: 200 g rauð paprika. 1 lítill laukur. 2 dl rjómi. Salt og cayennepipar eftir smekk. Skerið paprikurnar í tvennt og fjarlægið kjarnana og stilkinn, skolið helmingana og skerið síðan í þunnar sneiðar, skiljið eftir nokkrar þunnar sneiðar til skrauts. Afhýðið laukinn og skerið hann í þunnar sneiðar. Setjið rjómann í pott og sjóðið paprikuna og laukinn í rjómanum í 20 mínútur. Setjið allt í blandara og hrærið þar til sósan verður slétt og kekkja- laus. Bragðbætið með salti og pipar og berið sósuna fram heita með laxinum. Hreindýrafilé með rjómapiparsósu f. 4. 700 - 800 g hreindýrafilé. 1- 2 msk. hveiti. 1 tsk. salt. 2- 3 msk. smjör. 2 msk. grœnn pipar (fœst bœði þurrkaður og niðursoðinn). V2 dl vatn. V/2 dl rauðvín. 3 dl rjómi. Hreinsið filéið og skerið í átta jafn stóra bita. Veltið bitunum upp úr hveitinu og saltið. Brún- ið smjörið vel á djúpri pönnu og steikið kjötið í 4 - 5 mínútur á hvorri hlið. Takið kjötið af pönnunni og haldið því heitu. Setjið piparinn á pönnuna og steikið hann í 20 - 30 sekúndur. Hellið vatninu yfir ásamt rauð- víninu og sjóðið í 5 mínútur. Bætið rjómanum í og hitið vel í gegn, varist að láta bullsjóða eftir að rjóminn hefur verið sett- ur í. Berið kjötið fram með pip- arsósunni, soðnu grænmeti, brúnuðum kartöflum og rifs- berjahlaupi. Hnetukökur með bláberjaís f. 8. Hnetukökur: 50 g heslihnetur. 50 g möndlur. 25 g hveiti. 160 g sykur. 1 egg- 1 eggjahvíta. 50 g brœtt smjör. Rífið hneturnar smátt í blandara og setjið í skál. Bætið hveiti og sykri saman við hnetu- mylsnuna. Þeytið saman egg og eggjahvítu og hrærið saman við. Bræðið smjörið og bætið því í deigið. Teiknið sextán hringi á bökunarpappír, leggið pappír- inn á ofnplötu og smyrjið hnetu- Rut Helgadóttir. deiginu inn í hringina svo allar kökurnar verði jafn stórar. At- hugið að kökurnar eru frekar þunnar. Hitið ofninn í 200 gráð- ur og bakið kökurnar í 4 - 6 mínútur eða þar til þær eru gul- brúnar. Kæliðkökurnaroglegg- ið þær síðan saman tvær og tvær með bláberjaísnum á milli. Bláberjaís: 8 eggjarauður. 100 g sykur. 2 dl bláberjasulta Í4 dl Grand Marnier líkjör (má sleppa). 6 dl rjómi. Þeytið eggjarauður og sykur þar til það er ljóst og létt. Bætið sultunni og líkjörnum í og hrær- ið lauslega. Stífþeytið rjómann og bætið honum varlega saman við. Hellið ísblöndunni í form og frystið í minnst 5 tíma. Skreytið ískökurnar með rjóma og ferskum eða frystum bláberj- um þegar þær eru bornar fram. Réttumegin við strikið með Reglubundnum sparnaði W9/ Reghibundinn ■ /• spamaður Reglubundinn sparnaður- RS-ereinfaltog sveigjan- legtsparnaðarkerfisem hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að vera réttu megin við strikið í fjármálum. Ávinningurinn er margfaldur: Þú eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum hætti, átt greiðari aðgang að lánsfé, kemst í hóp bestu viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum þínum en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við bankann um að millifæra ákveðna upphæð reglulega inn á Grunn, Landsbók, Kjörbók eða Spariveltu sem saman mynda RS. Við inngöngu í RS færðu þægilega fjárhagsáætlunar- möppu fyrir heimilið og fjölskylduna. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Allar nánari upplýsingar fást í ítarlegum bæklingi sem liggur frammi í næstu afgreiðslu Landsbankans

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.