Austurland - 28.10.1992, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR, 28. OKTÓBER 1992.
Evrópska efnahagssvæðið - EES
Nokkur ákvæði og afleiðingar
★ Hver konar mismunun á
grundvelli þjóðernis (ríkis-
fangs) er bönnuð á samnings-
sviðinu, nema samið hafi verið
um annað.
★ íbúar Vestur-Evrópu öðlast
sama rétt og íslendingar til að
setja á fót atvinnufyrirtæki og
sjálfstæða starfsemi hér á landi
nema í útgerð og frumvinnslu
sjávarafla.
★ Hugmyndir voru uppi um
margháttaða fyrirvara við flesta
þætti samningssviðsins, m. a.
um „fjórfrelsið" og varðandi
framsal sjálfsákvörðunarréttar.
Nú stendur aðeins eftir almennt
öryggisákvæði sem er afar veikt
og lítils virði.
★ Engar hömlur er hægt að
setja á útlendinga frá EES-ríkj-
um umfram fslendinga að því er
varðar kaup á iandi og hlunn-
indum sem því fylgja.
Áhrif á vinnumarkaðinn
★ Atvinnurekandi þarf ekki
lengur að leita álits stéttarfélaga
áður en útlendingur af EES-
svæðinu er ráðinn tii vinnu og
Veðurstofa íslands gefur ár-
lega út ársyfirlit yfir tíðarfarið á
landinu öllu. í tíðarfarsyfirliti
fyrir síðasta ár segir að tíðarfar
hafi verið hagstætt. Ef við lítum
aðeins á veðrið á Austurlandi á
síðasta ári kemur í ljós að loft-
vog stóð hæst á Egilsstöðum 16.
apríl, 1050.8 mbr. Hiti var al-
mennt 0.4 gráðum yfir meðal-
lagi og tiltölulega hlýjast var í
Möðrudal þar var hitinn 1.3° yfir
meðallagi. Árssveifla hitans var
minnst á Kambanesi 8° og á
Dalatanga og Teigarhorni var
hún 9° Minnst var ársúrkoman
í Möðrudal 360 mm. og 375 á
Grímsstöðum. Mesta sólar-
hringsúrkoman á landinu öllu
mældist á Eskifirði 17. mars,
139.9 mm.
Veturinn (desember 1990 -
mars 1991) var hagstæður þrátt
fyrir umhleypinga framan af og
ofsaveður í byrjun febrúar.
Snjór var lítill og hiti var 1.2
gráðum yfir meðallagi. Vorið
apríl-maí var hagstætt þó var
fremur kalt og nokkur snjó-
koma fyrri hluta apríl. Um mest
allt land var úrkoman 50-100%
umfram meðallag. Sumarhitinn
var 0.2 gráðum yfir meðallagi
og úrkoman minni en í meðalári
og minnst var hún á Egilsstöð-
um 101 mm. Haustið var talið
sæmilega hagstætt þó var fremur
kalt og hvassaviðasamt í haust-
byrjun. Mest úrkoma mældist í
Neskaupstað 653 mm. en á 7
stöðum á landinu var úrkoman
meiri en tvöföld meðalúrkoma.
ekki má láta íslendinga hafa for-
gang að atvinnu.
★ Opinn vinnumarkaður getur
haft margháttaða erfiðleika í för
með sér fyrir lítið samfélag eins
og hið íslenska. Vegna veikrar
félagslegrar stöðu suðurríkja
Evrópubandalagsins er veruleg
hætta á rýrnun félagslegra rétt-
inda í norðurhluta EES, þar á
meðal hér á landi.
★ í stað þriggja mánaða at-
vinnuleyfis til útlendinga kemur
ótímabundinn atvinnu- og bú-
seturéttur, ef útlendingur af
EES-svæði er einu sinni ráðinn
til starfa.
★ Atvinnuleysi er mikið og
vaxandi í löndum Evrópu-
bandalagsins og aðstaða verka-
lýðsfélaga er þar víða afar veik.
Áhrif á atvinnustarfsemi
★ Samkeppnisreglur EES úti-
loka að taka megi íslensk fyrir-
í júlíbyrjun fór hitinn í og yfir
28 gráður á nokkrum stöðum
Austanlands, hæstur var hann á
Egilsstöðum 28.8 gráður. Með-
alvindhraði á þéttbýlisstöðum
austanlands er mestur á Egils-
stöðum en minnstur í Nes-
kaupstað.
Fjölmargar aðrar upplýsingar
er að finna í Veðráttunni og
verða þær ekki tíundaðar hér
frekar.
tæki fram yfir erlend þegar um
er að ræða opinber innkaup sem
nema ákveðinni lágmarksupp-
hæð.
★ Með reglum um óheftar
fjárfestingar og fjármagnsflutn-
inga verður engar hindranir
hægt að setja um kaup fólks frá
EES-ríkjum á fyrirtækjum, t. d.
í ferðaþjónustu eða banka-
starfsemi.
★ Hver kyns rekstrarstuðning-
ur af hálfu ríkis eða sveitarfé-
laga við fyrirtæki hér á landi
verður óheimill að gerðum
EES-samningi.
Veiðiheimildir gegn
tollaívilnunum
★ í stað fríverslunar með fisk,
sem var upphafleg krafa EFTA-
ríkjanna, hefur nú verið fallist
á að hleypa fiskiskipum EB inn
í íslenska lögsögu gegn því að
íslendingar fái niðurfellingu eða
lækkun á tollum af fiski.
★ Með því að heimila fiski-
skipum EB-ríkja veiðar á ís-
landsmiðum er vikið frá því sem
hefur verið grundvallarstefna
fslendinga eftir útfærslu land-
helginnar. Reynslan af veiði-
flotum EB-ríkja á eigin haf-
svæðum og víðar ætti að vera
víti til varnaðar.
Umhverfisvernd víkur
fyrir viðskiptafrelsi
★ Grundvallarhugmyndin að
baki Evrópubandalagsins og
EES er aukinn hagvöxtur og
viðskiptafrelsi. Um umhverf-
ismál eru hins vegar engin bind-
andi ákvæði í EES-samningi.
Verndun náttúru og auðlinda
víkur fyrir viðskiptahagsmun-
um.
★ Áhrif fjórfrelsisins á um-
hverfismál verða mjög neikvæð
eins og fram hefur komið í út-
tekt á vegum Evrópubandalags-
ins. Umhverfissamtök á
Norðurlöndum hafa eindregið
varað við afleiðingum af EES-
samningnum.
Skerðing á
sjálfsákvörðunarrétti
★ í EES-samningi felst veruleg
skerðing á sjálfsákvörðunarrétti
þjóðarinnar og íslendingar af-
sala sér mikilvægum stjórntækj-
um í atvinnu- og efnahagsmál-
um.
★ Möguleikar Alþingis til að
móta og setja lög verða stórlega
skertir. Allt frumkvæði til laga-
setningar á samningssviðinu er
í höndum EB og þjóðþing
EFTA-ríkjanna verða að fallast
á Iögin frá Brussel eða eiga ella
yfir höfði sér refsiaðgerðir.
★ Á sviði dómsmála er íslensku
dómsvaldi að hluta afsalað í
hendur EFTA-dómstólsins og
íslendingar skuldbinda sig til að
túlka samninginn í samræmi við
úrskurði EB-dómstólsins í Lúx-
emborg.
Dýrkeyptur samningur
★ Lengi var því haldið fram að
samningurinn snerti ekki land-
búnaðarafurðir, en með sam-
þykkt hans yrði að leyfa inn-
flutning á ýmsum vörutegund-
um í beinni samképpni við inn-
lenda framleiðslu og óvíst er að
leggja megi jöfnunargjöld á
innfluttar landbúnaðarafurðir.
★ Óheimilt verður að setja
hömlur á innflutning lyfja. Þetta
mun leiða til stóraukins inn-
flutnings á lyfjum og gera allt
eftirlit með notkun þeirra mun
erfiðara.
★ Kostnaður við aðild að EES-
samningi og því skriffinnsku-
bákni sem honum fylgir mun
nema allt að einum milljarði
króna. Er þá ekki reiknað með
greiðslum í þróunarsjóð fyrir
verst settu EB-löndin né tolla-
tapi okkar af innflutningi frá
EES-ríkjum.
Undirskriftarlistar þar sem
krafist er þjóðaratkvæða-
greiðslu um EES-samning liggja
frammi í Króka og víðar.
Bókafregn
Út er komin ljóðabók eftir
Hallberg Hallmundsson, hin
þriðja á jafn mörgum árum.
Bókin heitir Svartir riddarar og
aðrar hendingar og er ort í
„samvinnu" við bandaríkst
skáld sem dó í dögun þessarar
aldar, eins og segir í kynningu
bókarinnar.
Frumhöfundurinn er Stepen
Crane en eins og Crane hefur
Hallberg verið kallaður efa-
gjarn, bölsýnn og kaldhæðinn.
í bókinni eru 75 ljóð og það
er Brú sem gefur bókina út og
er hún fyrsta bókin í flokki bóka
sem Brú hyggst gefa út með
verkum bandarískra skálda.
Næsta bók verður væntanlega
bók 100 valinkunna kvæða eftir
Emily Dickinson.
Veðráttan 1991