Austurland - 28.10.1992, Page 7
MIÐVIKUDAGUR, 28. OKTÓBER 1992.
7
Frá starfsemi Náttúruverndarsamtaka Austurlands
NAUST - Náttúruverndar-
samtök Austurlands - hafa
fengist við ýmislegt á síðasta ári.
Aðalverkefnin voru unnin við
Hvannalindir, Hengifossárgil
og í fjörum Austurlands. Einnig
héldu samtökin nýstárlegan
aðalfund í ágúst í 150 m2 tjaldi
í Amardal.
Umbætur í Hvannalindum
voru tveggja ára verkefni sem
NAUST fékk styrk til úr Plast-
pokasjóði Landverndar árið
1991. Ferðafélag Fljótsdalshér-
aðs tók þátt í þessu starfi. í sum-
ar komu tæplega tuttugu ungl-
ingar úr Björgunarsveitinni Gró
á Egilsstöðum, en þá kynntist
hluti unga fólksins þessari gróð-
urvin hálendisins í fyrsta skipti.
Stígar voru lagfærðir, bílaslóðir
Getraunir
Allt stefnir í skemmtilega
keppni í vetur, þátttakendum
og hópum hefur fjölgað og eftir
tvær vikur virðast hópamir
nokkuð jafnir þannig að búast
má við jafnri og spennandi
keppni. Eins og komið hefur
fram er keppnin 10 vikur og
ógilda má 2 þannig að enn er
möguleiki á að vera með, sér-
staklega er skorað á sjómenn,
áhafnir togaranna, að mynda
hópa. Hafið samband eða látið
sjá ykkur í Egilsbúð á föstudag-
inn kl. 2000.
En víkjum þá að „tippinu“.
Fáir heimasigrar og mörg jafn-
tefli urðu þess valdandi að
nokkuð var um óvænt úrslit.
T. d. náði enginn íslendingur 13
réttum og fátt var um tólfur. En
hér hjá okkur var 10 hæsta skor
og vom 4 hópar sem náðu því:
West End, Libertos, Brothers
og Táin. Sauð . . . afsakið for-
ystusauðirnir frá því síðast,
Hnykklarnir, lentu í lykkjufalli
og náðu ekki að fylgja góðum
árangri eftir, fengu aðeins 7
rétta. EK
afmarkaðar og ný göngubrú sett
upp yfir ána að Eyvindarkofa.
Gönguleiðin upp að Hengi-
fossi hefur látið á sjá vegna
ágangs ferðamanna. Stígar voru
lagfærðir þar bæði til að minnka
jarðvegseyðingu og hættur við
gilbarminn. Styrkur fékkst frá
Ferðamálaráði, sem fór aðal-
lega til efniskaupa og launa ung-
linga úr Fljótsdal. Næsta sumar
er ætlunin að setja upp skilti
með örnefnakorti og leiðbein-
ingar- og varnarorðum. Einnig
er stefnt að því að reisa vatns-
klósett niðri við veginn, sem
myndi gera gilið að mjög mynd-
arlegum skoðunarstað á leiðinni
kringum Lagarfljót.
Fjöruhreinsunin var einnig
styrkt úr Plastpokasjóði Land-
verndar. Af styrknum greiddi
NAUST verkefnisstjóra, sem
var Guðrún Sveinsdóttir frá
Hvannastóði í Borgarfirði. Öll-
um sveitarfélögum sem liggja að
sjó var boðið að taka þátt í verk-
efninu; þau lögðu til launaðan
unglingaflokk eða jafnvel full-
orðna í sjálfboðavinnu og sáu
um að farga ruslinu sem safnað-
ist eða koma því í endurvinnslu.
Það var þó ekki smámagn, eða
um 30 tonn alls af 105 km fjöru.
Félagsstarfsemi er að fara af
stað hér á Vopnafirði og eru
briddsarar farnir að spila á fullu.
Þá er Kiwanisklúbburinn Askja
byrjaður sína vetrarstarfsemi og
félag eldri borgara heldur sínu
þróttmikla starfi áfram á fullu.
Má búast við að önnur félög sem
hér eru starfandi fari að hugsa
sér til hreyfings.
En lítum aðeins á briddsinn.
Nú er lokið þremur umferðum
af sjö í aðaltvímenningi félags-
ins og er staðan þessi:
Átta sveitarfélög frá Vopnafirði
til Breiðdalsvíkur tóku þátt í
fjöruhreinsuninni með alls 143
manns. Þessar staðreyndir og
undirskriftir þátttakenda eru
geymdar á sniðugan hátt á
hreindýraskinni sem NAUST
vill gjaman senda á nokkra staði
í fjórðungnum í vetur. Reynt
var að láta þátttakendur kynn-
ast yndi þess að vera í fjörunni
og skemmta sér þar saman, auk
þess að fræðast svolítið um hana
og taka eftir hvað umgengni
okkar við náttúruna þarf að
batna.
NAUST hefur unnið talsvert
við að forða landslagsslysum
sem stjórnast að sunnan en
snerta hálendið okkar á Aust-
urlandi. Stjórnin hefur bent á
ýmsar leiðir til að minnka
skurðagröft og því að sökkva
gróðurlendi og náttúruminjum
vegna Fljótsdalsvirkjunar.
Fréttir frá Iðnaðarráðuneyti og
Landsvirkjun gefa fólki sem
kynnt hefur sér heilnæmi heim-
sókna á hálendið tilefni til að
staldra við og spyrja sig hvort
íslendingar geta virkilega verið
svo kærulausir við eigið land eft-
ir 1100 ára búsetu að sökkva
endalaust gróðurlendi og nátt-
Stig
1. Ólafur og Stefán 439
2. Jósep Þ og Jón Þór 430
3. Kristinn og Kristján 409
4. Jósep J og Sigurjón 383
5. Þórður og Gauti 382
Úrslit á föstudagskvöldið
voru þessi:
Stig
1. Ólafur og Stefán 191
2. Jósep Þ og Jón Þór 184
3. Kristinn og Kristján 182
AH
Vopnafjördur
Félagsstarf vaknar
í ferð „veðurfrœðinga“hópsins frá VMA á Dalatanga í byrjun október, mœldist hitinn á Dalatanga
22°um hádegið. Áörskammristundfylgdust„veðurfræðingarnirmeð 14°hitalækkun. Ljósm. AB
Frá aðalfundi NAUST. Ljósm. HG
úruperlum vegna stundargróða
af rafsölu. Einnig er það sjón-
armið að bæta við línustæðum
þvers og krus um landið til að
spara nokkur prósent á kostnað-
aráætlun óskiljanlegt þegar
maður ferðast um þetta svæði
og hugleiðir hvort það verður
beinlínis skemmtilegt að koma
þar eftir á, en bömin okkar
munu ekki eiga sama möguleika
til samanburðar!
Að lokum vill stjórnin lýsa
eftir nýjum félögum og öðrum
stuðningi; það er örugglega á
fingrum teljandi hve mörg frjáls
samtök ná yfir allt Austurland.
NAUST nær um fjórðunginn
með því móti að stjórnin skiptist
á um að vera nyrst, syðst og í
miðju, en tilfærslan fer fram á
þriggja ára fresti. Nú býr öll
stjórnin nyrst, en næsta sumar
verður ný stjórn kosin af svæð-
inu frá Berufirði til Öræfa. Við
skorum á íbúa þessa svæðis að
hugleiða hvemig verður hægt að
tryggja blómlegt starf næstu árin
með því að finna áhugasamt
fólk um að ísland verði áfram
skemmtilegur blettur á móður
jörð. Ábendingar um slíka ein-
staklinga, svo og um starfsemi
samtakanna verða vel þegnar af
Philip Vogler núverandi for-
manni, Kristbjörgu Krist-
mundsdóttur varafonnanni,
Braga Björgvinssyni ritara, Sig-
rúnu Hrafnsdóttur gjaldkera og
Magnúsi Hjálmarssyni með-
stjórnanda. Philip Vogler
formaður
NESKAUPSTAÐUR
Eldri borgarar
athugið
Nú hefst íþróttakennslan . . .
Mætið öll í íþróttahúsið sunnudagsmorgun
kl. 1030. Sundleikfimi í sundlaug sjúkrahússins
mánudaga kl. 1830 fyrir karla og kl. 1930 fyrir
konur. Létt leikfimi í sal Breiðabliks
fimmtudaga kl. 1700. Kennari verður Stefanía
Freysteinsdóttir.
Félagsmálaráð Neskaupstaðar
Til áskrifenda Austurlands
Innheimtaáskriftagjaldafyrirsíðasta ársfjórðung stendurnú
yf ir. Þeim sem þegar hafa gert skil er hér með þakkað. Þeim
tilmælum er vinsamlega beint til þeirra sem enn hafa ekki
gert skil að gera það nú þegar.
Þá eru þeir sem enn skulda eldri áskriftargjöld vinsamlega
beðnir að greiða strax.