Húsfreyjan - 01.12.1952, Page 13
Svafn Þórleifsdóttir:
Rannveig Kristjánsdóttir Hallberg
Minningarorð
1 septembermánuði síðastl., barst
hingað til lands frá Svíþjóð andláts-
fregn Rannveigar Kristjánsdóttur.
Hafði hún andast að heimili sínu í
Gautaborg. Engum, sem fylgzt hafði
með heilsufari hennar hin síðustu
misseri, kom þetta á óvart og þó
mun marga hafa sett hljóða, er fregn-
in barst. Skömmu, en dáðríku lífs-
starfi var lokið, engin von framar um,
að Rannveigar nyti lengur við hérna
megin landamæra lífs og dauða, nema
að því leyti sem störf hennar og saga
lifa, þótt nú sé brotið við blað.
Rannveig var fædd að Dagverðar-
cyi-i við Eyjafjörð, 17. dag maímán-
aðar árið 1927. Foreldrar hennar voru
þau hjónin Sesselía Eggertsdóttir og
Kristján Sigurðsson, kennari við
barnaskóla Akureyrar og bóndi að
Dagverðareyri. Hún ólst upp hjá
foreldrum sínum og kynntist því
þegar á bernskuárum sveitalífinu,
enda varð þess oft vart á þroska-
árum hennar, hve nátengd hún var
sveitabúskapnum og hversu vel hún skildi
lífsviðhorf og lífskjör þess fólks, sem þar
elur aldur sinn. Að loknu barnaskóla-
námi hóf Rannveig nám við Mennta-
skóla Akureyrar og lauk glæsilegu stúd-
entsprófi úr stærðfræðideild skólans vor-
ið 1938. Sama ár hóf hún nám við há-
skólann í Kaupmannahöfn, en hvarf það-
an eftir ársdvöl. Hafði hún þá tekið þá
ákvörðun að helga starfskrafta sína mál-
éfnum heimilanna, einkum þó starfssviði
húsfreyjunnar. Fór hún til Sviþjóðar og
iA;
,
> -• '!
Rannveig Kristjánsdóttir.
lagði þar stund á húsmæðrakennaranám
og lauk þar kennaraprófi í þeim fræðum.
Árið .1942 kom hún heim til Islands
aftur og varð þá þegar kennari við Hús-
mæðrakennaraskóla Reykjavíkur.
Árið 1944 hefst nýr þáttur í sam-
tökum kvenna hér á landi. Á því herr-
ans ári hlýtur Kvenfélagasamband Is-
lands í fyrsta sinni svo ríflegt fjárfram-
lag úr rikissjóði, að sambandið sér
ástæðu til að breyta að verulegu leyti
starfsháttum sínum. Á auka-landsþingi
það ár var ákveðið að opna skrifstofu
HÚSFREYJAN 13