Austurland - 12.03.1998, Side 7
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1998
7
Konur í jakkafötum + karlar í kjólum = drag í Egilsbúð
Síðastliðið laugardagskvöld var haldið Austurlandsmót í dragi. Um 130 manns mœttu til að berja
herlegheitin augum og enn fleiri mœttu á dansleik með Sóldögg sem haldinn varað keppninni lokinni.
Þar sem Ijóst er að ekki er hœgt að lýsa með orðum því sem fyrir augu bar þetta laugardagskvöldið
er líklega best að láta myndirnar tala sínu ináli en Ijósmyndarar Austurlands voru að sjálfsögðu á
staðnum. Ljósnt. Þ.P.S. / Krist. J. Krist
Útvarpað frá bæjarstjórnarfundi
á Seyðisfirði
Mánudaginn 9. þ.m. hélt bæjar-
stjómin á Seyðisfirði 1509. fund
sinn. Dagskrá fundarins var með
venjulegu sniði, en það má frétt-
næmt teljast, að í fyrsta skipti
var allri dagskrá fundarins út-
varpað. Þessa framkvæmd ann-
aðist ný útvarpsstöð sem heitir
Útvarp Seyðisfjarðar og er rekin
af félagsmiðstöð ungmenna
staðarins, sem er til húsa í
Herðubreið. Sent er út á FM 104
og tókst þessi frumraun mjög
vel. A fundinum var m.a. lokið
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
fyrir árið 1998. Það sem frá-
söguverðast er af þessum bæjar-
stjórnarfundi er það helst að
ákveðið var að verja nokkuri
fjárhæð, eða þremur milljónum,
til rannsókna og borunnar eftir
heitu og köldu vatni í fírðinum.
Sveitarfélagið hefur fengið
framlag frá Byggðastofnun til
atvinnuþróunarverkefna að upp-
hæð 5. millj. og verður tveimur
millj. af því varið til þessa
verkefnis, að viðbættri einni
millj. frá bæjarsjóði.
Vatnsbúskapur Seyðfirðinga
er fremur frumstæður ennþá, því
að hann byggist á yfirborðsvatni
sem í nútímanum þykir ekki
mjög fýsilegur kostur. Nú er
unnið að því að fá hæfustu
sérfræðinga í þessum efnum til
aðstoðar við heimamenn í þessu
þýðingarmikla verkefni. Það
mun því draga til tíðinda,
vonandi jákvæðra, strax á
vordögum eða öndverðu sumri.
J.J.
GSM - GSM - GSM
Nýir og notaðir GSM
símar
Ericson, Nokia, Motorola,
Philips, Panasonic og fleiri
GSM símar frá kr. 7000,-
Tökum ódýrari síma upp í
nýrri og dýrari. Greiðslukjör.
Upplýsingar í
síma 898 0726
GSM símar og fylgihlutir
pí)^MÆUR MEÐ
... að allir fari að sjá „Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í
svona asnalegu leikriti“ sem sýnt er á Egilsstöðum þessa
dagana...
... að fólk stilli á úivarp Verkó Aust, FM 101,7 sem nemendur
Verkmenntaskólans í Neskaupstað standa fyrir nú í vikunni en
sent verður út fimmludag til sunnudags frá kl. 13. - 24...
x >
;si bókina „Þetta er allt að koma“ eftir Hallgrím
... að al
Helgason
... að allir fari varlega í umferðinni, muni að nota
öryggisbeltin og taki upp á þeim skemmtilega sið, til
tilbreytingar, að fara í einu og öllu eftir almennum
umferðarreglum...
... að á morgun föstudag segi allir, a.m.k. einu sinni, „ég elska
þig“ við einhvem sem það á skilið að heyra...
Fyrsti framboðslistinn
Fyrsti framboðslistinn í nýju og sameinuðu sveitarfélagi á
miðfjörðunum, vegna komandi sveitarstjómarkosninga í vor, liggur
nú fyrir en það er listi sjálfstæðismanna. Fyrstu 11 sætin skipa:
1. Magni Kristjánsson, skipstjóri Neskaupstað
2. Andrés Elísson, rafiðnfræðingur Eskifirði
3. Jóhanna Hallgrímsdóttir, leikskólastjóri Reyðarfirði
4. Hörður Þórhallsson, framkvæmdarstjóri Reyðarfirði
5. Magnús Sigurðsson, verktaki Neskaupstað
6. Árni Helgason, forstöðumaður Eskifirði
7. Isak J. Olafsson, sveitarstjóri Reyðarfirði
8. Helgi Friðrik Kemp Georgsson, tölvuður Eskifirði
9. Guðrún Víkingsdóttir, hárgreiðslumeistari Neskaupstað
10. Heiðberg Hjelm, bóndi Eskifirði
11. Erla Vignisdóttir, húsmóðir Reyðarfirði
Rauða kross deildin í Neskaupstað
Sjálfboðaliðar óskast
Um þessar mundir er verið að
endurskipuleggja það neyðar-
skipulag sem Rauða kross
deildin í Neskaupstað vinnur
eftir en hún hefur það hlutverk
að skrá þá sem þurfa að yfirgefa
heimili sín, veita þarf húsaskjól,
mat og sálræna aðhlynningu
þegar um stórslys eins og t.d. af
völdum snjóflóða er að ræða.
Þetta starf deildarinnar í Nes-
kaupstað er allt unnið af sjálf-
boðaliðum og nú með endur-
skipulagningunni liggur fyrir að
þörf er á fleiri sjálfboðaliðum.
Því eru þeir sem áhuga hafa á að
starfa með deildinni vinsamlega
beðnir að setja sig f samband við
Auði Hauksdóttur, Kolfinnu
Þorfinnsdóttur, Svein Árnason
eða Sigrúnu Geirsdóttur.
Rauða kross deildin í Nes-
kaupstað er ein af 51 deild
Rauða kross Islands en deildirn-
ar sinna félagslegri fjöldahjálp í
skipulagi Almannavama ríkisins.
Meðal annara verkefna deild-
arinnar í Neskaupstað er rekstur
sjúkrabifreiðar, í samvinnu við
sjúkrahúsið, mannúðarstarf,
skyndihjálparfræðsla o.fl.