Austurland - 26.03.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1998
7
Vdngaveltur
J dag veliif ttma Quðmundsdótiir vöngum á
íyjum hins eitífa vors.
Það er gott að velta vöngum hér
á Ensku ströndinni á Kanarí.
Maður á fullt í fangi með að vera
í fríi og svo þarf maður hvort
sem er alltaf að vera snúa sér! Ég
hef stundum haft á orði að hér sé
stærsta og fjölmennasta
elliheimili í heimi en mér líkar
það bara vel í dag, kannski
vegna þess hvað bilið milli mín
og þeirra sem öðlast hafa lög-
gildingu minnkar frá ári til árs.
Nú er talið að hér séu um
2000 íslendingar enda gengur
maður ekki marga metra í
miðbænum svo maður heyri
ekki ástkæra ylhýra málið og ísl-
endingabarinn hjá Klöru er
fullur kvöld eftir kvöld. Allir eru
vinir eins og dýrin í skóginum
og fólk sem rétt kastar kveðju
hvert á annað í sinni heima-
byggð kyssist hér og kjassast!
Maður má reyndar vara sig á því
að tala ekki hátt um næsta mann,
hvað þá að gera að honum
svolítið grín, því maður veit
aldrei nema þar sé Islendingur á
ferð.
En við erum í raun hreint
ótrúleg. Helst viljum við hafa
allt héma eins og heima, nema
veðrið og verðlagið. Það má
ekki sleppa bolludeginum, hvað
þá sprengideginum en þann dag
var svo fullt á barnum hjá Klöru
að hleypa þurfti inn í saltkjötið
og baunimar í hollum og Örvar
spilaði á nikkuna: Fram í heið-
anna ró! Ferðaskrifstofurnar
halda sérstakar Islendingahátíðir
og þorrablót og það er gert mikið
í því að halda þjóðernisvit-
undinni vakandi. Morgunleik-
fimin er jafnvel á sínum stað og
stundum er spiluð framsóknar-
vist!
Héma kynnist maður fljótt og
vel og allavega er það svo með
mig að mér hefur alltaf fundist
að landsbyggðarfólk sé hér í
meirihluta. Það er kannski ekk-
ert skrýtið því það er allt að
flytja suður. „Hvaðan eruð þið“
spurði konan á næsta bekk við
okkur í garðinum á Teniquia og
hún bætti við „Ég er frá Siglu-
firði“. „Við erum frá Neskaup-
stað“, sagði ég „kommar frá
Litlu Moskvu“. „Þetta líkar mér
að heyra“, sagði konan „maður á
að koma til dyranna eins og
maður er klæddur". Það var mér
nú ekki svo erfitt í þessu tilfelli
því fatnaðurinn var ein lítil
bikinibrók. Og konan hélt áfram:
„Ég er líka kommi og Sigga
systir líka“. Þama hófust sem
sagt góð kynni á þessari ósköp
hversdagslegu spumingu, hvað-
an erað þið?
Hreint ótrúlegt kamival með
miklum sýningum hefur staðið
hér yfir. Þessu fylgir mikill
mannfjöldi og hávaði og oft á
tíðum er erfitt að komast leiðar
sinnar. Þessum hátíðarhöldum
lauk með heljarmikilli skrúð-
göngu þar sem þúsundir gengu
um göturnar í þeim skrautleg-
ustu og fáráðlegustu búningum
sem ég hef á ævi minni séð en
svo sannarlega glöddu þeir aug-
að. Flugeldasýningin var frábær,
ekkert svo sem betri en hér
heima á Neistaflugi eða á gamla-
árskvöldi, að pálmunum undan-
skildum sem skutust upp í loftið
í sýningarlok, svona rétt til að
minna á hvar við vorum stödd,
ef einhver slkyldi hafa gleymt
því. Sagt er að kamivölin séu
gósentíð allra þjófa og
uppáhaldsskemmtun allra klæða-
skiptinga, þeir komi meira að
segja frá meginlandinu til að
vera á þessari hátíð. Víst er að
klæðnaður klæðaskiptinganna
og/eða dragdrottninganna var
meiriháttar og hef ég aldrei séð
annað eins.
Þótt viðdvöl Islendinga hér sé
tímabundin, oftast 3-4 vikur, em
hér landar sem hafa hér búsetu
allt að hálft árið. Það gæti ég
ekki nema að hafa með mér
tölvu og vera nettengd. Nema þá
að íslenska ríkið væri búið að
koma hér upp góðu bókasafni
því þótt ég fari aldrei í ferðalög
án þess að hafa með mér a.m.k.
eina ljóðabók og annað sem til
fellur þá kvelst ég hér af les-
málsleysi. Það fást að vísu hér
reyfarar á flestum tungumálum
en einhvemvegin er það svo að
mér finnst þeir aðeins vera til að
grípa til í algjörri neyð. Tvær
lesbækur Moggans eru nánast
gatlesnar og þær hafa verið mér
tilefni til vangaveltna að undan-
fömu. I þeim eru mörg ljóð eftir
marga höfunda, húsmæður í
Reykjavík, Vestmannaeyjum og
Svíþjóð, kennara í Stykkishólmi
og Þórshöfn og svona mætti
lengi upp telja. Þessi ljóð les ég
alveg í botn, aftur og aftur þótt
þau séu ekki ljóð í mínum
hefðbundna skilningi og hefðu
einhvertímann verið kölluð
atómljóð. Eftir lestur þeirra, ekki
bara núna heldur alltaf, held ég
að allir geti skáldað og eftir að
ég las líka í Mogganum hveijir
fá „skáldalaun" í ár, er ég alveg
viss. Stundum er ort undir
áhrifum en oftar ekki. Fyrst hélt
ég að yrkja undir áhrifum þýddi
að fólk væri hífað eða vel kennt
en nú veit ég að svo er ekki. Alla
vega var ég bláedrú á nektar-
nýlendunni þegar mér datt þetta
í hug:
Strípalingamir á ströndinni
eru ekki úr plasti
eins og þeir sem ég lék mér
aldrei með í gamla daga.
Loðnutorfumar em misþéttar
eftir aldri
- svona rétt eins og síldar-
torfurnar
og kviðsvið karlanna missíð
og þau verða ekki í askana
látin.
Þegar hér var komið sögu var
ég alvarlega farin að hugsa um
að sækja um skáldalaun og
umsóknina sendi ég daginn eftir
þegar ég sat út á svölum og úr
pennanum hristist þetta:
Konan í næstu íbúð
dró gluggatjöldin frá
og speglaði sig nakin
í glerinu.
Gluggaþvottamaðurinn brosti
þegar hann skvetti
úr vatnsfötunni á rúðuna
og konan dró fyrir.
Heima beið mín bréf þar sem
umsókn minni um skáldalaun í
ár var hafnað, ég verð því bara
að láta mér nægja að skrifa
vangaveltur af og til.
(Skrifað á Kanarí fyrir
hálfum mánuði en birtist fyrst
nú, þar sem ritstjórinn gat ekki
lesið skriftina mína! Eg.)
Sundlaug Neskaupstaðar
Sundlaugin opnar á morgun, föstudaginn
27. mars og verður opin til 1. júní sem hér segir:
Mánudaga - fóstudaga
06.45-09.00 og 16.00-20.00
Laugardaga og sunnudaga / /
10.00- 18.00 I Á
Forstöðumaður
Fermingar á Pálmasunnudag og Skírdag
Reyðarfjarðarkirkja
Pálmasunnudagur 5.apríl
Bóel Jóhannesdóttir Heiðarvegi 23b
Gunnhildur Rán Stefánsdóttir Holtagötu 3
Hafliði Hinriksson Réttarholti 1
Hreinn Erlingsson Hjallavegi 4
Logi Steinn Karlsson Austurvegi 7
Margrét Guðríður Oskarsdóttir Vallargerði 10
Ólafur Gunnarsson Hæðargerði 7
Vilhelm Henriksen Bakka
Ásta Hulda Guðmundsdóttir Stekkjargrund 4
(fermist í Rvík.09/04)
Eskitjarðarkirkja
Skírdagur 9. apríl
Aðalsteinn Valdimarsson Túngötu 4
Ásta Sif Jóhannsdóttir Dalbarði 2
Dagný Ómarsdóttir Hátúni 23
Davíð Brynjar Sigurjónsson Fögruhlíð 13
Eiríkur Þór Hafdal Þórarinsson Fossgötu 3
Fannar Hafsteinsson Bleiksárhlíð 2
Friðjón Magnússon Strandgötu 3c
Friðrik Karl Friðriksson Bleiksárhlíð 15
Guðjón Blöndahl Arngrímsson Bleiksárhlíð 65
Guðni Þór Jósepsson Steinholtsvegi 4
Hermann ísleifsson Bleiksárhlíð 49
Hrannar Helgi Steingrímsson Bleiksárhlíð 38
Karen Sigurðardóttir Eskifirði
Karl Stephen Stock Lambeyrarbraut 4
Oddný Erla Bj. Jóhannsdóttir Kirkjustíg 2
Ragnar Sigurmundsson Lambeyrarbraut 10
Regína Thorarensen Fífubarði 7
Sturla Halldór Kristjánsson Svínaskálahlíð 7
Tinna Ámadóttir Hlíðarendavegi 7
Valgeir Magnússon Strandgötu 71a
Prestur séra Davíð Baldursson
N orðfjarðarkirkj a
Pálmasunnudag 5. apríl
Davíð Gunnarsson Urðarteigi 25
Halldór Hermann Jónsson Mýrargötu 5a
Hrefna Rún Vignisdóttir Blómsturvöllum 24
Anna Hlíf Árnadóttir Nesbakka 3
Hjalti Hjálmarsson Hólsgötu 6
Sóley Þórðardóttir Skorrastað 4
Erla Egilsdóttir Miðgarði 1
Kristín Ella Guðmundsdóttir Starmýri 2
Ævar Unnsteinn Egilsson Nesbakka 19
Jónína Rakel Sigurðardóttir Sæbakka 15
Ninja Ýr Gísladóttir Hrafnsmýri 2
Eiríkur Eyðunsson Símonsen Nesbakka 21
Prestur séra Þorgrímur Daníelsson
Hönnum vefsíöur fyrir fyritceki,
stofnanir og einstaklinga
ELDSMIÐURINN
Sími: 478-1600
webmaster@eldhorn.is
Eldsmiöurinn - austfirskt 21 . aldar fyrirtceki