Austurland - 11.06.1998, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
Austurland
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjörn Sigurðsson (ábm) 3 4771383og8994363
Blaðamaður: Sigurður Ólafsson S 477 1066 og 895 8307
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir 3 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
3 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurland@eldhorn.is
Auslurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og hönnun: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
llm launastefnu stjórnvalda
Fréttir af launakjörum og kjarabaráttu ríkisstarfsmanna verða æ
algengari eftir því sem dagamir líða. Nú síðast hefur umfjöllun
um uppsagnir sjúkraliða á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum
landsins tröllriðið fréttatímum dag eftir dag. Ljóst er að mjög
mikil óánægja ríkir með launakjör og að ríkisvaldið gerir lítið í
að koma til móts við kröfur þessarar stéttar hvað launakjör
varðar. Það sem einnig vekur athygli er skilgreining stjómvalda
á ábyrgð, en samkvæmt samningum eru greidd mis há laun eftir
því hversu mikla ábyrgð starfsmaður axlar. Samkvæmt þessari
skilgreiningu stjórnvalda eru stéttir á borð við verkfræðinga og
tæknifræðinga taldar axla mikla ábyrgð og er borgað hærri laun
þessvegna, en hjúkrunarfræðingar eru taldir bera eins litla
ábyrgð og hægt er og njóta því ekki ívilnana í launum. Meðal
annars sökum þessa óréttlætis sem sjúkraliðar telja að þeir séu
beittir hafa þeir sagt upp í stórum stíl. Það kemur í sjálfu sér ekki
á óvart að lítið sé verið að gera í málinu af hálfu stjórnvalda en
það sem kemur hinsvegar nokkuð á óvart er framkoma yfirvalda
í garð þeirra sem ekki hafa sagt upp. Búið er að afturkalla
sumarleyfi þeirra, neyðaráætlanir hafa verið gerðar o.s.frv. Ljóst
er að búist er við að uppsagnirnar munu taka gildi og að ekki
verði neitt gert til að koma í veg fyrir þær, þ.e. ekki verður farið
út í þá einföldu aðgerð að endurskoða launakjör og um leið
skilgreiningu á ábyrgð.
Ef önnur stétt er skoðuð, þ.e. kennarar, þá heyrist að mjög
erfitt er að manna kennarastöður þessa dagana og þá sérstaklega
á landsbyggðinni. Ljóst er að þeir kjarasamningar sem gerðir
voru á dögunum hafa enganveginn orðið til þess að manna allar
þær kennarastöður sem til eru í landinu. Þetta bitnar eins og
undanfarin ár sérstaklega illa á landsbyggðinni og því
afskekktari sem byggðin er, því erfiðara er að fá
kennaramenntað fólk til starfa þar.
Stjórnvöld þurfa nauðsynlega að taka þessa hluti til skoðunar,
og því fyrr því betra. Þó er ljóst að ekkert verður unnið í þessu
brýna máli á næstunni þar sem Alþingi hefur nýlega farið í
sumarfrí. Þó er ljóst að stjórnvöld þurfa að fara að hugsa sinn
gang ef ekki á illa að fara. Þar sem nú líður að kosningum og
ætla mætti að það væri alþingismönnum til framdráttar að hafa
leyst svo mikilvæg mál áður en að þeim kemur væri ekki
óeðlilegt að farið yrði að vinna í launamálum ríkisstarfsmanna
sem allra fyrst. Ljóst er að meðan launakjör eru eins og raun ber
vitni, mun ekki vera hægt að ráða hæfa og vel menntaða
einstaklinga til starfa í sum af mikilvægustu störfum í
þjóðfélaginu.
Fluguveiði og fluguhnýtingar
Opnuð hefur verið verslunin,
Veiðiflugan, á Reyðarfirði, sem
sérhæfir sig í vörum sem notaðar
eru við fluguveiðar og flugu-
hnýtingar. Það er Björgvin Páls-
son, forfallinn veiðimaður, sem
á hugmyndina og stendur að
opnuninni. Verslunin mun aðal-
lega þjóna fluguveiðimönnum,
en aðrir veiðimenn ættu einnig
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi í versluninni. Að sögn
Björgvins er hugmyndin að byija
smátt og bæta síðan við sig. Um
beinan innflutning verður að
ræða þannig að verð ætti að vera
þokkaleg, a.m.k. samkeppnishæf
við sambærilegar sérverslanir í
Reykjavík og Akureyri.
I framhaldi gæti farið svo að
Björgvin stæði fyrir flughnýt-
ingamámskeiði og einnig jafn-
vel flugukastnámskeiðum.
„Ég er með ólæknandi
veiðidellu", segir Björgvin og
bætir að það eigi reyndar bæði
við um stangveiði jafnt sem aðra
^aradís " ml
O sortitr artdans! Fyrsta ráð mitt
þetta: Eig hreint, gæskuríkt og
geislandi hjarta svo að þitt ntegi f^ mmm
verða ríkið, fornt, eilíft og
óforgengUegt.
Opið hús að Þiljuvöllum 29 öll mánudagskvöld Hl
Daglegar
ferðir
Neskaupstaður s. 477 1190
Eskifjörður s. 476 1203
Reyðaríjörður s. 474 1255
Viggó P
V öruf lutni ngar
(3)477 1190
veiði. „Ástæðan fyrir því að ég
fór út í þetta er að ég er orðinn
hundleiður á að ef ég er að hnýta
og vantar eitthvað smávægilegt
að þurfa að panta það að sunnan
og bíða síðan í jafnvel nokkra
daga eftir því. Hugmyndin er að
það sem ekki verður til á lager
verður hægt að útvega innan
tveggja sólarhringa".
En er markaður fyrir slíka
verslun?
„Já, ég er ekki í nokkrum vafa
um það. Á Austurlandi era mjög
margir sem eru að veiða og hnýta
flugur. Þessi bransi er í bullandi
uppsveiflu um þessar mundir
þannig að það er markaður hér
sem er hreinlega sveltur".
Austfiróingur vikunnar_____________________________________________________
Fullt nafn? Sigurðui Ólafsson Sigurðurf Ólafsson, nýráðinn blaðamaður
Fæðingardagur? 20.10.74 á Austurlandi.
Fæðingarstaður? Akureyri
Heimili? Nesbakki 7 Neskaupstað
Núverandi starf? Blaðamaður
Fjölskylduhagir? Trúlofaður Jónu Árný Þórðar
og á 5 mánaða dóttur, Sigríði Theodóru
Bifreið? Volvo 244
Uppáhaldsmatur? Léttreykt svínakjöt
Versti matur? Bjúgu
Helsti kostur? Það verða aðrir að dæma um
Helsti ókostur? Full værukær
Uppáhalds útivistarstaður? Urðirnar
Hvert langar þig mest að fara? Til Englands í
framhaldsnám
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Formentor á Mallorca
Áhugamál? Dóttir mín
Uppáhalds stjórnmálamaður? Sverrir Hermannsson
Uppáhalds íþróttafélag? Þróttur
Hvað metur þú mest í fari annarra? Tryggð
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið polli? Bjarni bróðir
Mottó? „Það er aldrei of seint ef að klukkan er ekki orðin“
Skemmtilcgasta sem þú gerir? Að horfa á dóttur mína brosa
Leiðinlegasta sem þú gerir? Að taka til
Minnisstæðast úr kosningabaráttu? Ótrúleg samstaða Fjarðalistafólks sem jók trú mína á
mannkyninu stórlega
as