Austurland


Austurland - 11.06.1998, Page 3

Austurland - 11.06.1998, Page 3
FIMMTUDAGUR 11. JUN! 1998 3 Félagsfundur Alþýðubandalagið í Neskaupstað heldur félagsfund að Egilsbraut 11, fimmtudaginn 11. júnínk. kl.20.30. Fundarefni: Landsmálin og flokksmálin. Hjörleifur Guttormsson kemur á fundinn Stjórnin KVA fær ÍBK í heimsókn KVA náði fyrsta sigri sínum í fyrstu deild á sjómannadaginn þegar liðið lagði KA á heima- velli með tveimur mörkum gegn engu. Það voru þeir Sigurjón Björn Björnsson (Buffi) og Veigur Sveinsson sem skoruðu mörkin. KVA náði að vinna sigur þrátt fyrir að tvo menn vantaði í byrjunarliðið. KVA er nú í 6 sæti deildarinnar með 4 stig, hefur sigrað einn leik, gert eitt jafntefli og tapað tveimur. Árangurinn er athyglisverður þegar það er haft í huga að liðið Samningur um „Stéttarfélagsverð" með Flugfélagi íslands Helstu efnisatriði Flugfélag íslands lætur í té sæti til ráðstöfunar skv. eftirfarandi skiptingu: Frá Reykjavík Áfangastaðir Akureyri Egilsstaðir Homafjörður Húsavík Isafjörður Vestmannaeyjar sætafjöldi 1.700 1.000 600 500 1.000 1.000 Fullorðnir verð m. skatti 6.730 6.730 6.730 6.730 6.730 5.730 Frá Reykjavík um Akureyri: Áfangastaðir Grímsey Kópasker Raufarhöfn Þórshöfn Vopnafjörður Sætafjöldi (1.700) Fullorðnir 11.730 11.730 12.730 12.730 12.730 Börn verð m. skatti 4.866 4.866 4.866 4.866 4.866 3.866 Börn 8.566 8.566 9.566 9.566 9.566 Farþegi skal nýta næstu mögulegu brottför frá Akureyri til lokaáfangastaðar Frá Akureyri Áfangastaðir Sætafjöldi Fullorðnir verð m. skatti Börn verð m. skatti Isafjörður 120 6.730 4.866 Grímsey 40 5.730 3.866 Kópasker 100 5.730 3.866 Raufarhöfn 100 6.730 4.866 Þórshöfn 150 6.730 4.866 Vopnafjörður 150 6.730 4.866 Egilsstaðir 90 6.730 4.866 Sala farmiða: Farmiðarnir eru seldir á öllum sölustöðum Flugfélags Islands og hjá umboðsmönnum þess um allt land á almennum afgreiðslutímum þeirra. Hægt er að kaupa miða með því að mæta á sölustaðinn eða í gegnum síma og þá með greiðslukorti (kreditkort). Fullnaðargreiðsla skal fara fram við kaup á farmiða. Lágmarksdvöl/hámarksdvöl - bókun: Þrjár nætur - einn mánuður. Bóka þarf ferð þrjá sólahringa fyrir brottför. Fargjaidið: Gildir fyrir félagsmenn stéttarféiaganna, maka/sambúðarfólk og böm á heimili að 20 ára aldri. Gildistími: Stéttarfélagsfargjöld eru í gildi allt árið nema eftirtalin tímabil: 10. desember - 10. janúar Frá Pálmasunnudegi - fyrsta sunnudags eftir páska. Frá sunnudegi vikuna fyrir Verslunarmannafrídaginn - sunnudagsins á eftir. Breytingar: Breytingargjald er kr. 900,- fyrir hverja bókun. Aðild að fclagi: Farþegi verður að færa sönnur á að hann sé félagsmaður í aðildarfélagi. Heimilt er að krefja farþega um persónuskilríki við brottför. Verðbreytingar - endurskoðun: Verð samkvæmt samningum taka breytingum í samræmi við breytingar á „fullu“ fargjaldi. Þá skal endurskoða verð og aðra skilmála vor og haust. ASÍ - fyrir hönd stéttarfélaganna. Sími: 477-1230 Fax: 477-1227 hefur tapað naumt fyrir tveimur efstu liðum deildarinnar og gerði jafntefli við liðið sem nú er í þriðja sæti. Síðastliðinn fimmtudag mættust Þróttur og KVA í keppninni um Coca Cola bikarinn og fór leikurinn fram í Neskaupstað. Leikurinn var fremur jafn á að horfa, en sókn KVA var augljóslega sterkari en sókn Þróttar sem var frekar bitlaus. Hinn Júgóslavneski Boban Ristic skoraði öll mörk KVA og er alveg ljóst að þar fer leikmaður í sérflokki. Þar með er KVA komið í 32 liða úrslit og fær bikarmeistara Keflavíkur í heimsókn til Reyðarfjarðar fimmtudaginn 18 júní. Myndirnar hérfyrir neðan voru teknar á leik KVA og Þróttar. A efri myndinni sjást áhyggju- fullir stuðningsmenn Þróttar og á neðri myndinni sést þegar KVA gerir harða hríð að marki Þróttar. Ljósm. as Legsteinar Ódýrir og vandaðir legsteinar í úrvali Sendum myndabækling 720 Borgarfirði eystra sími 472-9977 Fax 472-9877 I__________________________I ATH! Ekki gleyma að fara rneð fötin í hreinsun. Við höfum opið virka daga frá Id. 12.45 - ió.oo Lækurinn Egilsbraut Tónskóli Neskaupstaðar 7rtalin kennarastaða er laus til umsóknar við Tónskóla Neskaupstaðar: Staða málmblásturskennara Um er að ræða fulla stöðu frá 1. september 1998 Umsóknarfrestur er til 19. júní Upplýsingar veitir skólastjóri, Ágúst Ármann Þorláksson, ísíma 477-1377 og 477-1613 ~ Fræðslumálaráð Neskaupstaðar

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.