Austurland - 11.06.1998, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
Framleiðsluferli í sjávarútvegi nánast mannfjandsamlegt
segir dr. Gestur Guðmundsson, félagsfræðingur
Um helgina var hér staddur hópur sem hefur verið að vinna að
verkefni tengdu svokallaðri Leonardo áœtlun evrópusambands-
ins. Verkefnisstjóri íslenska hópsins er dr. Gestur Guðmundsson
félagsfrœðingur. Gestur hefur mikinn áhuga á sjálvarútvegi sem
rannsóknarefni og hefur hann m.a. kennt áfanga við Háskóla
Islands sem nefnist ,Jélagsfrœði sjávarútvegs“ ásamt
Eskfirðingnum Þórólfi Þórlindssyni. Gestur er annars lielst
þekktur fyrir að hafa skrifað hina stórskemmtilegu bók
„Rokksaga Islands“. Blaðamaður Austurlands settist niður með
Gesti og spjallaði við hann vítt og breitt um íslenskan sjávarútveg.
Myndir þú segja að íslenskir
félagsvísindamenn hefðu sinnt
sjávarútvegi nœgilega vel sem
viðfangsefni?
„Nei, í raun og veru hafa fél-
agsvísindamenn lítið skoðað
sjávarútveginn með skipulegum
hætti. Þetta er afar merkilegt
með tilliti til þess að íslendingar
eru eina þjóðin í heiminum lifir
algerlega á sjávarútvegi. Islensk-
ur sjávarútvegur er stórmerkilegt
fyrirbæri, ekki síst með það fyrir
augum að hann ber sig fjár-
hagslega."
Hverjar heldur þú að ástœð-
urnar fyrir þessu séu?
„Það má segja að hinar
„praktísku" fræðigreinar og
sjónarmið eru algerlega ráðandi í
íslenskum sjávarútvegi. Menn
eru sífellt að velta fyrir sér
tæknilegu og hagfræðilegu hlið-
inni á sjávarútvegi á meðan allt
sem lýtur að félagslegum þáttum
gleymist. Menn taka upp kvóta-
kerfi án þess að hugsa um áhrif
þess á byggðaþróun og menn
taka upp tækninýjungar í vinnslu
án þess að velta fyrir afleiðing-
um þess fyrir starfsfólkið. Þetta
endurspeglast í fræðunum en af-
ar erfitt er að fá fjármagn frá
fyrirtækjunum í að rannsaka
hina félagslegu þætti sjávarút-
vegsins."
Hvaða áhrif telur þú að það
hafi haft að vanrœkja félagslega
þáttinn ífræðilegri umfjöllun og
stefnumótun ?
“Menn að vakna upp við þann
vonda draum að Islendingar vilja
helst ekki vinna í fiski og ráða
þarf útlendinga til að sinna
þessum störfum. Þetta bendir til
þess að hinir félagslegu þættir
íslenskur sjávarútvegur
er stórmerkilegt fyrirbæri,
ekki síst með það fyrir
augum að hann ber sig
fjárhagslega.
hafi verið vanræktir. Tæknilega-
og rekstrarlega hliðin hafa verið
Leikjaskólinn tekinn til starfa
Leikjaskóli Þróttar er tekinn til
starfa. Um 100 krakkar hafa
skráð sig til þátttöku og er það
svipuð þátttaka og í fyrra. í
leikjaskólanum er boðið upp á
fjölbreytta dagskrá íþrótta og
leikja sama hvernig viðrar.
Bömin geta sjálf valið sér leiki
eða íþróttir og daglega eru
margir möguleikar í boði.
Dagskráin stendur frá kl:13:30
til kl: 15:30 mánudaga til
fimmtudaga.
Eins og myndimar hér fyrir
neðan sýna glögglega ætti eng-
um að leiðast í leikjaskólanum,
a.m.k. vom krakkamir í gríðar stuði þegar ljósmyndari Austurlands átti leið hjá á dögunum.
Ljósm. S.Ó.
Félagsfrœðingurinn Gestur Guðmundsson.
í mikilli þróun en félagslega
hliðin aftur á móti staðið í stað.
Bestu dæmin um þetta eru t.d.
afar fullkomin frystihús sem
menn eru að hanna og smíða þar
sem varla virðist gert ráð fyrir
því að fólk eigi eftir að vinna.
Tæknilegu og hagrænu sjónar-
miðin eru algerlega ofan á. Það
er endalaust verið að bæta vél-
búnað og hagræða í rekstri en
menn gleyma því hversu mikill
auður liggur í því að eiga ánægt
og vel menntað starfsfólk. Þetta
eru menn að uppgötva í öðrum
starfsgreinum í auknum mæli en
sjávarútvegurinn er mjög aftar-
lega á merinni. Þetta hefur jafn-
vel verið þannig að menn er að
taka upp framleiðslufyrirkomu-
lag sem nánast mannfjandsam-
legt, þar sem afköstum er haldið
með því að hafa eftirlit með starfs-
fólki sem fullkomnast og með
því að halda verkaskiptingu í
hámarki. Þetta eru aðgerðir sem
eru í andstöðu við það sem menn
hafa verið að gera í öðrum
starfsgreinum þar sem menn
hafa verið að leitast við að auka
fjölbreytni starfanna og sjálf-
stæði starfsmannanna.“
Að hvaða leyti geta verkefhi
eins og Leonardo verkefnið
breytt þessu ?
„Leonardo verkefnið miðar
að því að finna leiðir til að gera
vinnustaðina að stöðum þar sem
menn læra stöðugt nýja hluti.
Einnig er þekking starfsmanna
skrásett að einhverju leyti til
þess að vinna námsefni fyrir
nýja starfsmenn. Þetta er alveg
ný hugsun í sjávarútvegi. Menn
hafa fyrst og fremst lagt mikið
upp úr tæknilegri og hagfræði-
legri þekkingu í sjávarútvegi en
hafa litið á hina praktísku þekk-
ingu sem þarf til að vinna störfin
sem sjálfsagðan hlut. Þetta end-
urspeglast m.a. í því að mönnum
eru ekki kennd vinnubrögð
þegar þeir byrja að vinna heldur
eiga þeir að uppgvöta réttu
handtökin. Svo þegar menn hafa
lært sín handtök þá verða þeir
afar fastheldnir á þau og eiga
erfiðara með að tileinka sér nýja
hluti. Leonardo verkefnið miðar
að því að finna formlegan farveg
fyrir þá þekkingu sem fyrir
hendi er og að gera mönnum
kleyft að halda áfram að ná betri
tökum á sínum störfum. Þetta
eykur sjálfstæði og fæmi starfs-
manna og gerir þá um leið að
verðmætari starfskröftum.“
Laus staða
Leikskólinn Lyngholt, Reyðarfirði, auglýsir
lausa stöðu leikskólastjóra frá og með 1.
september 1998. Skriflegar umsóknir berist
til skrifstofu Sameinaðs sveitarfélags á
Mið - Austurlandi, Búðareyri 7,730
Reyðarfirði fyrir 25. júní n.k.
Nánari upplýsingar fást hjá leikskólastjóra
í s. 474-1257 eða á skrifstofu hreppsins
ís. 474-1245