Austurland - 11.06.1998, Blaðsíða 8
Tömatar ja* É
AppeLsínur 9 ** ö a\\a daga frá kl.io.oo-jp
Nii”J NESBAKKI
I * CS/177 1CnQ nn PQ7 HflO
'0
Londonlamb frá KEA
@4771609 og 897 1109
Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins,
stofnað 1951
Aiififiirland
Neskaupstað 11. júní 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Alþingi samþykkti tillögu Þuríðar Backman
Stuðningur við lífrænan
landbunað
Ný sveitarstjórn saman komin ífyrsta skipti.
Ljósm. S.Ó.
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar
Á jrriðjudag var haldinn fyrsti
fundur bæjarstjórnar í samein-
uðu sveitarfélagi Eskifjarðar,
Neskaupstaðar og Reyðarfjarð-
ar. Fundurinn var haldinn í
Félagslundi á Reyðarfirði. Smári
Geirsson var kosinn forseti
bæjarstjórnar, Elísabet Bene-
diktsdóttir var kosinn fyrsti
varaforseti og Guðrún Oladóttir
annar varaforseti. Ásbjöm Guð-
jónsson var kosinn formaður
bæjarmálaráðs og jafnframt var
á fundinum samþykkt tillaga
Fjarðalistans um að ráða Guð-
mund Bjamason í stöðu bæjar-
stjóra. Hinnar nýju bæjarstjórnar
bíða afar krefjandi og umfangs-
mikil mál. Skipuleggja þarf
stjómsýslu hins nýja sveitarfélags
og stórar framkvæmdir standa
fyrir dymm. Því er mikilvægt að
hin nýja bæjarstjórn láti hendur
standa fram úr ermum.
Skömmu fyrir þinglok sam-
þykkti Alþingi að tillögu land-
búnaðamefndar þingsályktunar-
tillögu um aðlögun að lífrænum
landbúnaði, sem Þuríður Back-
man varaþingmaður hafði frum-
kvæði að. Tillagan sem nú er
orðin að ályktun Alþingis er
svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að undirbúa við-
eigandi breytingar á landbúnaðar-
löggjöfinni til þess að unnt sé að
styðja bændur sem aðlaga
búskap sinn viðurkenndum líf-
rænum búskaparháttum í sam-
ræmi við lög nr. 162/1994 og
reglugerð nr. 219/1995, um líf-
ræna landbúnaðarframleiðslu.
Þessi samþykkt hlýtur að
vekja ánægju þeirra sem þegar
hafa byrjað framleiðslu lífrænna
afurða og vonandi létta þeim
róðurinn sem hyggjast leggja út í
slíka framleiðslu.
Nýtt síldar-
ævintýri?
Norsk-íslenski sfldarstofninn er
nú kominn inn í íslenska lög-
sögu og em veiðar hafnar af krafti.
Þegar blaðið fór í prentun var
Hólmaborgin nánast búin að
fylla sig og Guðrún Þorkelsdótt-
ir byrjuð að veiða. Hins vegar
fór ekki vel hjá Beiti sem fékk svo
stórt kast að nótin rifnaði. Beitir
hélt því til lands en Börkur var á
leiðinni á miðin. Að mati Frey-
steins Bjamasonar útgerðarstjóra
Sfldarvinnslunnar virðast veið-
amar fara vel af stað og það heyr-
ir til stórtíðinda að sfld skuli
veiðast á þessum árstíma á ný.
Háhyrningurinn Keikó á leið heim!
Heiðurskonur heiðraðar
Einn af föstum liðum sjómannadagsins er að ákveðnir
einstaklingar eru heiðraðir. Þetta árið voru það fjórar
sjómannskonur sem voru heiðraðar. Það voru þær Gíslína
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Björg Olöf Helgadóttir, Sigríður S.
Mýrdal og Sigurbjörg Sigurjónsdóttir. Ljósm. as
Á þriðjudag var tilkynnt að Free
Willy-stofnunin hefði fengið
leyfi til að flytja háhyminginn
og Eskfirðinginn, Keiko, til
landsins eftir margra ára útlegð.
Forsætisráðherra og landbúnað-
ar- og umhverfisráðherra áttu
fund með fulltrúum stofnunar-
innar á þriðjudag og var þar
formlega gefið leyfi fyrir heim-
komu Keikós. Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði það skil-
yrði sett fyrir komu Keikos, að
Free Willy-stofnunin tæki fulla
ábyrgð á velferð dýrsins og
flutningi þess, svo og lausn úr
llotkví þegar og ef að því kæmi.
Hins vegar er ekki enn orðið
Ijóst hvert Keiko kemur til með
að fara. Til greina kemur að
senda hann til Vestmannaeyja
eða Eskifjarðar, en ekki mun
skýrast fyrr en í næstu viku hvor
staðurinn verður fyrir valinu.
Síðar í mánuðinum verður flutt
hingað til lands stór sjókví fyrir
háhyminginn. Kostnaðurinn við
smíði og flutning kvíarinnar er
um 70 milljónir króna. Aðrar
110 milljónir kostar svo að flytja
Keiko heim.
Það er til merkis um hvað
Austfirðingar eru seinir á sér í
Keiko málinu að Húsvíking-
urinn, Arnar Sigurðsson, sem
gerir út hvalaskoðunarbáta hefur
sótt um og fengið einkaleyfí á
nafninu Keiko til markaðssetn-
ingar. Þannig gætu Eskifirðingar
t.d. ekki byggt „Hótel Keiko“
eða selt „Keikoborgara“. Ef sú
ákvörðun verður tekin að finna
Keiko heimili á Eskifirði, er ljóst
að Austfirðingar verða að hætta
að tala um þetta ástsæla sjávar-
spendýr í hálfkæringi og átta sig
á því hversu risavaxið hags-
munamál er hér á ferðinni.
Slippfélagið
Málningarverksmiðja
SIMI: 588 8000
1
Nýsmíði úr áli og stáli
-SVN Vélaverkstæði m 477 1603