Austurland - 02.07.1998, Qupperneq 1
Síldarvinnslan bætir
tækjakost
Síldarvinnslan h/f mun í
haust taka í notkun nýjar
vélar til að pakka loðnu. Vél-
amar rnunu auka afköst til
muna þar sem mannshöndin
þarf að vinna sífellt smærri
hluta verksins.
Þróttur 75 ára
Á sunnudag heldur Þróttur
Neskaupstað upp á 75 ára
afmæli félagsins og er bæjar-
búum boðið í kaffisamsæti í
Egilsbúð af því tilefni.
í haust verða svo frekari
hátíðarhöld og verður þá
haldin dæmigerð afmælis-
veisla.
Engin virk skotfæri
hafa fundist
Sprengjuleit á æfingasvæði
breska hersins við Ás í Norð-
ur-Múlasýslu er að verða
lokið en leitin hófst á
föstudag og stóð yfir í tæpa
viku. Einn sérfræðingur
Landhelgisgæslunnar tekur
þátt í leitinni ásamt nokkrum
frá Varnarliðinu á Keflavfk-
urflugvelli, en þeim til að-
stoðar eru björgunarsveitar-
menn af svæðinu.
Öðru hvoru hafa fundist
virk skotfæri við Ás en þar
um slóðir höfðu bresku her-
sveitimar, sem hingað komu
í seinna stríðinu, skotæfingar.
Beiðni barst um sprengju-
leitina vegna fyrirhugaðrar
skógræktar í landi Áss.
Loðnuveiðar að
glæðast?
Sæmilega hefur allast síðustu
sólarhringana á loðnumiðum
og virðist veiði vera að glæð-
ast.
Að sögn Bjarna Bjama-
sonar skipstjóra á Súlunni
EA verða menn að hafa í
huga að óvenju snemma er
farið af stað og verði veiðin
að teljast ágæt miðað við það.
Að sögn Bjarna mun það
sennilega skýrast á næstu
dögum hvemig vertíðin verði.
Þegar blaðið fór í prentun
var búið að landa 6405
tonnum í Neskaupstað, 4883
tonnum á Seyðisfirði, 4224
tonnum á Eskifirði og 1035
tonnum á Reyðarfirði.
Þörunga
plága?
Rauðbrún slikja
á Norðfirði og á
miðum
Síðustu daga hafa margir
veitt athygli rauðbrúnni slikju
á Norðfirði og víðar. Að sögn
Finns Þórðarsonar, trillukarls,
hefur slikjan sést í a.m.k.
tvær vikur og er hún einnig í
Hellisfirði og úti í Norðfjarð-
arflóa.
Að sögn Bjarna Bjama-
sonar, skipstjóra á Súlunni EA,
hefur svipaðrar slikju einnig
orðið vart á loðnumiðunum.
Bjarni segir sjóinn vera
einkennilegan þar sem slikjan
er og hafi hann svo mikla
samloðun að nótin sé eins og
sápukúla þegar hún er tekin
inn því að vatnið slitni ekki á
milli möskvanna. Ekki er víst
að slikjan á miðunum sé
sama fyrirbærið og inni á
Norðfirði.
Að sögn sérfræðings hjá
Hafrannsóknarstofnun er
slikjan á Norðfirðinum mjög
líklega þörungagróður en
sérfræðingurinn treysti sér
ekki til að segja til um hvaða
fyrirbæri það er sem menn
hafa orðið varir við á mið-
unum.
Á miðunum hafa menn
einnig orðið varir við óvenju
mikið magn af marglyttu sem
hefur gert mönnum nokkuð
erfitt fyrir við veiðar.
Myndnt her að ofan var tekin í verslun í Neskaupstað síðastliðinn þriðjudag. Það skal tekið fram að
hvorki verslunin né afgreiðslustúlkan sem sést á myndinni tengjastpeningafölsun á nokkurn hátt.
Síðustu daga hefur orðið vart við
falsaða peningaseðla í umferð í
Neskaupstað. Að sögn lögregl-
unnar er um að ræða 500, 1000
og 5000 kr. seðla. Alls hafa ver-
ið sviknar út vörur að andvirði
10.000 kr. með seðlunum í
þremur verslunum í Neskaup-
stað en einnig varð vart vart við
falsaðan seðil á Eskifirði. Lög-
reglan vill koma því áleiðis til
verslunareigenda og afgreiðslu-
fólks að vera á varðbergi gagn-
vart þessum seðlum og láta
lögregluna tafarlaust vita ef
þeirra verður vart. Seðlarnir eru
ekki sérlega vel falsaðir en þó
nægilega vel til að blekkja í
skamma stund.
Dagskrá NeKstaflugs að skýrast
Að sögn „flugmannanna" Marí-
asar Ben. Kiistjánssonar og Bjama
Freys Ágústssonar er dagskrá
Neistaflugs '98 að skýrast. Þegar
er búið að bóka hljómsveitina
Karma til að spila á laugardags-
kvöldinu en Karma ætti að vera
Örvar Kristjánsson mun leika á
harmonikkudansleik á Kirkju-
mel. Norðfirskir tónlistarmenn
munu eins og síðustu ár halda
uppi dagskrá á föstudagskvöld-
inu og mun þar fjöldi söngvara
troða upp. Að lokum er búið að
ráða Skralla trúð til að skemmta
þeim yngstu. Þetta er að sjálf-
sögðu ekki öll dagskráinu því
Marías og Bjami em í samninga-
viðræðum við fjölda skemmti-
krafta þessa dagana og ljóst er að
hátíðin verður glæsileg að
vanda. Þeir segja fjáraflanir hafa
gengið vel og hafi flest fyrirtæki
séð sér fært um að styrkja hátíð-
ina og skipti þá oft engu máli
hvort viðkomandi fyrirtæki hafi
eitthvað upp úr hátíðinni sjálfri.
a.m.k. Norðfirðingum í fersku
minni þar sem þeir spiluðu á
frábærum dansleik í Egilsbúð á
sjómannadaginn. Búið er að
bóka Valgeir Guðjónsson til að
skemmta við varðeldinn í lysti-
garðinum en Valgeir er óþarft að
kynna. Hljómsveitin Buttercup
mun skemmta unglingunum en