Austurland - 06.08.1998, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998
7
Bréf Hjörleifs Guttormssonar í kjölfar
landsfundar
Á landsfundi Alþýðubandalagins 3.-4. júlí síðastliðinn var samþykkt að flokkurinn bjóði sameiginlega
fram með Alþýðuflokki og Kvennalista í alþingiskosningunum vorið 1999. Jafnframt féllst meirihluti
fundarmanna á fyrirliggjandi drög að málefnaniðurstöðu sem grunn að málefnasamningi/verkefnaskrá
til fjögurra ára fyrir væntanlegt framboð.
í fundarlok ávarpaði Hjörleifur Guttormsson alþingismaður fundinn og tilkynnti að hann myndi
segja sig úr Alþýðubandalaginu. Það gerði hann degi síðar með bréfi til formanns Alþýðubandalagsins
í Neskaupstað. Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, sagði sig einnig úr flokknum nokkrum dögum
eftir landsfundinn. Allmargir félagar hafa síðan sagt sig úr Alþýðubandalaginu.
í síðasta tölublaði Austurlands, 2. júlí sl., birtist grein eftir Hjörleif þar sem hann lýsti áhyggjum
sínum vegna hættu á klofningi flokksins og rekur ástæður þess. I framhaldi landsfundarins sendi
Hjörleifur síðan félögum í Alþýðubandalagsfélögum á Austurlandi og fyrrverandi félögum bréf það
sem hér er birt að hans ósk, en þar rekur hann helstu ástæður fyrir að hafa sagt skilið við flokkinn.
Bréf Hjörleifs, dagsett 12. júlí 1998 til félagsmanna og fyrrverandi félaga í
Alþýðubandalagsfélögum á Austurlandi, fer hér á eftir:
Góðir vinir og samherjar.
Undarfarnar vikur hafa um
margt verið erfiðar og afdrifarík-
ar fyrir Alþýðubandalagið og
sjálfan mig sem þátttakanda í
stjórnmálum og starfi flokksins
frá byrjun. Aðdragandi þessara
átaka er vissulega orðinn langur
en á aukalandsfundi flokksins
fyrir viku var komið að kross-
götum. Ég vil með þessu bréfi og
þeim gögnum sem því fylgja
gera ykkur grein fyrir helstu
ástæðum þeirrar ákvörðunar
minnar að segja skilið við
Alþýðubandalagið sem ég hef
helgað krafta mína í aldarþriðj-
ung.
1. Aðdragandinn.
Um nokkurt árabil hefur ver-
ið rætt um svonefnd „samfylk-
ingarmál" innan Alþýðubanda-
lagsins með það í huga að flokk-
urinn eignaðist nýja bandamenn
og treysti fylgi sitt. Fyrir alþing-
iskosningarnar 1995 komu til
liðs við flokkinn allmargir fyrr-
um félagar úr Þjóðarflokki og
hópur fólks sem ekki hafði
skipað sér í stjómmálaflokka.
Vom Ögmundur Jónasson for-
maður BSRB og Svanhildur
Kaaber meðal talsmanna þess
óháða hóps í Reykjavík og Ámi
Steinar Jóhannsson formaður
Þjóðarflokksins, búsettur á
Akureyri. í öllum kjördæmum
var borinn fram G-listi Alþýðu-
bandalagsins og óháðra til Al-
þingis vorið 1995 og níu manna
þingflokkur fékk nafn til sam-
hina „óháðu“ hefur verið ágætt
og hefur Ögmundur Jónasson
gert góða grein fyrir reynslu
þeirra af samstarfinu og viðhorf-
um til Alþýðubandalagsins nýlega.
Eftir að slitnaði upp úr sam-
starfi Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins í kjölfar kosn-
inganna 1995 hefur aukist um-
ræða um samstarf „stjómarand-
stöðuflokkanna“. Alþýðuflokk-
urinn hefur tekið undir þetta en
gert að skilyrði að um verði að
ræða sameiginlegt framboð flokk-
anna í næstu alþingiskosningum.
Þessu hefur tengst staða Þjóð-
vaka, en þinglið hans hefur verið
í upplausn og síðastliðinn vetur
gengu þrír af fjórum þingmönn-
um Þjóðvaka í Alþýðuflokkinn.
Kvennalistinn klofnaði eftir
landsfund í nóvember 1997
vegna afstöðu til „samfylkingar-
mála“ og aðeins einn þingmaður
listans af áður þremur, Guðný
Guðbjömsdóttir, hefur síðan átt
hlut að viðræðum flokkanna.
Á landsfundi Alþýðubanda-
lagsins í nóvember 1997 var
samþykkt að kanna gmndvöll til
frekara samstarfs félagshyggju-
flokka og boða til aukalands-
fundar Alþýðubandalagsins er
niðurstaða lægi fyrir. Svonefndir
málefnahópar fimm talsins voru
ekki settir á laggir fyrr en í mars
1998 og ætlaður naumur tími til
starfa. Undirritaður tók sæti í
hópi sem fjallaði um umhverfis-
mál, efnahags- og atvinnumál
o.fi. og tók fullan þátt í starfi
hópsins. I ljós kom í hópvinn-
mörg mikilsverð mál, þar á með-
al grundvallarmálefni, og leiddi
það til þess að ég skilaði séráliti.
Svipuð niðurstaða varð í mál-
efnahópi um utanríkismál, þar
sem Steingrímur J. Sigfússon
gerði grein fyrir sinni afstöðu í
greinargerð. Auðvitað reyndist
samstaða milli fulltrúa flokk-
anna um ýmis efni. Á heildina
litið leiddi málefnavinnan í ljós
svipaðan ágreining milli fiokk-
anna og birst hefur í sameigin-
legri stjómarandstöðu á Alþingi
á kjörtímabilinu, að ekki sé talað
um þann mikla ágreining sem
var við Alþýðuflokkinn á meðan
hann starfaði með Sjálfstæðis-
flokknum í ríkisstjóm á ámnum
1991-95.
Ég sendi álit mitt og álit
meirihluta starfshópsins um 10.
júní sl. til stjóma Alþýðubanda-
lagsfélaga á Austurlandi og
gerði jafnframt grein fyrir hon-
um og hættunni á klofningi flokks-
ins í blöðum [Morgunblaðið 21.
júní, Dagur 23. júní, Vikublaðið
Austurland 2. júlí] væri ógæti-
lega unnið í framhaldinu. Þá sat
ég fund framkvæmdanefndar
kjördæmisráðs Alþýðubanda-
lagsins á Fáskrúðsfirði 6. júní og
fund stjómar kjördæmisráðs 28.
júní á Egilsstöðum þar sem
staðan í aðdraganda aukalands-
fundar Alþýðubandalagsins var
aðalumræðuefnið. Báru menn
sig þar saman um stöðuna og ég
gerði grein fyrir því mati mínu
að sameiginlegt framboð flokk-
anna væri óaðgengilegt í ljósi
fyrirliggjandi málefnastöðu og
muni það fyrr en síðar leiða til
þess að Alþýðubandalagið hverfi
af sjónarsviðinu sem þjóðmálaafl.
2. Landsfundurinn 3.-4. júlí
1998.
Niðurstöður málefnahópa flokk-
anna lágu fyrir aukalandsfundin-
um á Hótel Sögu 3.-4. júlí en til
fundarins var boðað til þess eins
að taka afstöðu til þess afrakst-
urs og hugsanlega aukins sam-
starfs við aðra flokka. Það var
fyrst í setningaræðu á fundinum
að formaður flokksins kynnti
tillögu sína og varaformanns þess
efnis að af hálfu Alþýðubanda-
ræmis við það. Samstarfið við unni verulegur ágreiningur um
Hönnum vefsíður fyrir fyritœki,
# stofnanir og einstaklinga
ELDSMIÐURINN
lagsins skuli stefnt að sameigin-
legu framboði flokkanna í kom-
andi alþingiskosningum. Á fjórða
tug landsfundarfulltrúa undir
forystu Steingríms J. Sigfússon-
ar lögðu hins vegar til að hægar
yrði farið í sakimar, flokkamir
stilltu saman strengi sína mál-
efnalega eftir föngum og yrðu
samferða í afstöðu til ríkisstjóm-
armyndunar að kosningum lokn-
um. Hinsvegar byðu þeir fram
hver í sínu lagi og öfluðu fylgis
á sínum forsendum.
Engar marktækar tilraunir til
málamiðlunar milli þessara sjón-
armiða voru gerðar af hálfu
flokksforystunnar fyrir lands-
fundinn eða á fundinum sjálfum
og gengu tillögurnar því til at-
kvæða. Hlaut tillaga formanns
og varaformanns rösklega 70%
atkvæða viðstaddra fulltrúa en
tillaga Steingríms tæp 30%. Ég
flutti ræðu í almennum umræð-
um á fundinum og gerði þar
grein fyrir mínum viðhorfum.
Fylgir ræða mín hjálagt og skýrir
hún afstöðu mína í aðalatriðum.
Þegar niðurstaða atkvæðagreiðslu
lá fyrir ávarpaði ég fundinn og
gerði grein fyrir því að ég ætti
samvisku minnar vegna ekki
lengur samleið með Alþýðu-
bandalaginu. Kveðjuávarp mitt
fylgir einnig með þessu bréfi.
Daginn eftir tilkynnti ég for-
manni Alþýðubandalagsins í
Neskaupstað um úrsögn mína úr
félaginu og þar með úr flokkn-
um.
Eins og sjá má af ofansögðu
og flest ykkar vitið var þetta
erfiða skref ekki tekið í neinu
fljótræði eða í „hita leiksins"
eins og stundum vill verða
heldur að yfirlögðu ráði. Ég
treysti mér einfaldlega ekki
samvisku minnar vegna og
þeirra málefna og hugjóna sem
ég hef barist fyrir og hef enn að
leiðarljósi í stjómmálum að fella
merkið og gerast þátttakandi í
ferð sem liggur í allt aðra átt.
Samþykkt landsfundarins var
engin hefðbundin ákvörðun
stjómmálaflokks, þar sem spurn-
ing er um meirihluta og minni-
hluta, heldur um sjálfan grund-
völl og tilvist flokksins. Engin
meirihlutasamþykkt um slík
undirstöðumál getur bundið fé-
laga í flokki sem er að hverfa af
sjónarsviðinu, heldur er hver og
einn frjáls að því að gera það
upp við sig hvort hann eða hún
vill láta flytja sig í allt annað
pólitískt samhengi.
3. Framtíðin.
Ég sé vissulega eftir því
Alþýðubandalagi sem við höfum
átt sem vettvang saman og unnið
hefur mörg þrekvirki í þrjátíu ára
sögu sinni. En úr því sem komið
er þýðir ekki að sýta það heldur
að vinna úr stöðunni eftir bestu
getu hver á sínum forsendum.
Verkefnin eru síst minni en áður
til að berjast fyrir í stjómmálum
og ég mun leggja málum lið
framvegis sem hingað til, þótt í
nýju samhengi verði.
Þau stóm álitamál sem réðu
afstöðu minni um næstliðna
helgi snerta á engan hátt sam-
skipti mín við ykkur viðtakendur
þessa bréfs. Undan samskiptum
við félaga í Alþýðubandalaginu
á Austurlandi þarf ég í engu að
kvarta, heldur hef ríka þörf fyrir
að þakka þau og þann trúnað
sem mér hefur verið sýndur. Ég
er áfram þingmaður ykkar og
kjördæmisins og kveð ykkur
sem slíkur.
Ykkar einlœgur
Hjörleifur Guttormsson
Góður matur og flott föt!
Viltu kunna að búa það til?
Ein önn í Hallormsstaðaskógi - og þú getur það.
Nokkur pláss laus á haustönn
Hússtjórnarskólinn á Hallormsstaö
uppl. ísíma471 1172