Austurland - 06.08.1998, Blaðsíða 8
50% afsíáttur
á nærfötum
a\\a da9a frá kll0.oo.jg
@477 1609 og 897 1109
Elsta bæjar- og héraösfréttablað landsins,
stofnaö 1951
Neskaupstað 6. ágúst 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
íííiTIiUn*
Nýr skólastjóri við Húsó
Bima Kristjánsdóttir hefur verið
ráðin skólameistari Hússtjórnar-
skólans á Hallormsstað. Bima,
sem er með MA gráðu í textfl frá
listaskóla í Bandaríkjunum og
hefur stundað nám í Menningar-
miðlun í Danmörku, var annar
tveggja umsækjenda um stöð-
una, en Guðrún Tryggvadóttir,
Egilsstöðum, sóttist einnig eftir
stöðunni. Bima er skólakerfinu
ekki ókunnug því hún starfaði í
sex ár sem skólastjóri Heimilis-
iðnaðarskólans í Reykjavík. Vel
hefur gengið að ráða í stöður við
skólann og t.d. sóttust allir þeir
kennarar sem störfuðu við skól-
ann í fyrra eftir að halda áfram
störfum. Stefnt er að því að 24
nemendur stundi nám við skól-
ann á hvorri önn næsta skólaár
eins og undanfarið. Nemendur á
haustönn hefja nám l. septem-
ber og eru í skólanum fram að
áramótum, en seinni hópurinn
hefur nám um áramót. Fjölmarg-
ar fyrirspumir og umsóknir hafa
borist skólanum og alls hafa 18
staðfest að þeir ætli að stunda
nám við skólann næstu önn auk
þess nokkrir hafa nú þegar
staðfest skólavist á vorönn. Það
fer því hver að verða síðastur að
bóka nám við skólann.
Fjárfestar á ferð á Austurlandi
Það er Ijóst að Norðfirðingar og nœrsveitarmenn liafa ekki verið þurrbrjósta uni
verslunarmannahelgina því að mikið magn af áfengi var selt í Afengis og tóbaksverslun ríkisins
fyrir helgina en síðustu þrjá dagana seldist vín fyrir 3,5 milljónir. Ef við gerðum ráð fyrir því að
ekkert hefði verið keypt nema bjór, vœri um að rœða 20.000 dósir af bjór eða ca. kippa á rnann í
hinu sameinaða sveitarfélagi Eskifjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar. Fyrir utan þetta er svo
allt það áfengi sem selt var á dansleikjum í Egilsbúð. Eins og myndin sýnir glögglega var ekki mikið
eftir í hillum útibúi ATVR í Neskaupstað eftir helgina. Ljósm. S.Ó.
Kolmunnaveiðar hafnar
Um 1000 tonnum af kolmunna
hefur nú verið landað hjá Síldar-
vinnslunni í Neskaupstað og eru
bæði loðnuskip fyrirtækisins
farin á kolmunnaveiðar. Rann-
sóknarskip Hafrannsóknarstofn-
unar hafa mælt gífurlegt magn af
kolmunna og hefur fjöldi skipa
því farið á miðin síðustu daga.
Mælingar þurfa hins vegar ekki
að spá nákvæmlega fyrir veiði
því gífurlegt magn af loðnu
mældist áður en loðnuvertíðin
hófst en loðnuveiði hefur verið
daufleg. Menn ættu einnig að
vera hóflega bjartsýnir af þeirri
sök að íslensku skipin þykja full
kraftlítil til að stunda veiðar á
kolmunna. írsk skip sem veiða
kolmunna að staðaldri eru t.d.
búin allt að 14.000 hestafla
vélum, en flest íslensk skip eru
búin 2000-3000 hestafla vélum.
Á föstudag hélt stjóm fjárfestinga-
fyrirtækisins „Allied resource"
fund í Neskaupstað. Hluthafam-
ir lentu á flugvellinum á
Egilsstöðum á leiguflugvél en
þaðan var haldið á sumarhótelið
í Neskaupstað þar sem fundur-
inn fór fram. Hér er um að ræða
bandarískt stórfyrirtæki og verð-
ur að teljast afar sérstakt að slíkt
fyrirtæki skuli leggja lykkju á
leið sína til að halda fund á
Austurlandi. Forstjóri fyrirtæk-
isins er Dr. Heinz Schimmel-
busch sem hefur verið valinn
maður ársins í þýsku viðskipta-
lífi þrisvar sinnum. Starfsemi
fyrirtækisins byggist á því að
leggja til fjármagn og stjómend-
ur í þau fyrirtæki sem starfað er
með hverju sinni og því er Ijóst
að Allied resource leggur ekki fé
í hvað sem er. Nokkrir íslenskir
aðilar em hluthafar í fyrirtækinu
og þar á meðal Lífeyrissjóður
Austurlands. Á fundinum var
starfsemi fyrirtækisins kynnt
fyrir fulltrúum austfirsks at-
vinnulífs og þó að ekki hafi ver-
ið gerðir neinir stórir viðskipta-
samningar komust á tengsl sem
geta komið sér vel í framtíðinni.
Skattakongurinn greiddi tæpar átta milljónir
Þegar Ijósmyndari Austurlands var á ferðinni síðastliðinn
þriðjudag var verið að gera Beiti NK 123 klárann í
kolmunnaveiðar. Ljósm. S.Ó.
Sigurjón Valdemarsson, skip-
stjóri á Beiti, Neskaupstað, er
skattakóngur Austurlands árið
1997 en hann greiðir alls
tæplega átta milljónir í opinber
gjöld á árinu. I öðru sæti var
Kristinn Aðalsteinsson, fram-
kvæmdarstjóri á Eskifirði með
rúmar sjö milljónir. í þriðja sæti
var Þorsteinn Kristjánsson á
Eskifirði með rúmar sex millj-
ónir. Bjöm Magnússon, læknir í
Neskaupstað var fjórði með
rúmar fimm milljónir í opinber
gjöld og Jóhann Sigurður
Kristjánsson, stýrimaður á
Hólmaborginni á Eskifirði
greiddi rúmlega fjórar og hálfa
milljón í opinber gjöld á árinu.
Athygli vekur að Aðalsteinn hálfdrættingur miðað við ofan-
Jónsson, sem hafði tæplega átta greinda aðila og nær ekki þrem-
milljónir á síðasta ári, er ekki ur milljónum.
Slippfélagið
Málningarverksmiðja SÍMI: 588 8000
Vökvatengi og háþrýstislöngur -SVN Vélaverkstæði ® 477 1603