Austurland - 05.11.1998, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
Ólafur Sigurðsson
Flottinn af landsbyggðinni
Af vandamálum landsbyggðar-
innar er fátt alvarlegra en fólks-
fækkunin. Nú er það svo að eng-
an þarf að undra að þróun síðustu
áratuga sé sú að fólk leiti úr fá-
menninu í fjölmennið. I fjöl-
menninu felast oft möguleikar
sem ekki bjóðast annars og flest
verður hagkvæmara með aukn-
um íbúafjölda. Forystumenn
landsbyggðarinnar þurfa að taka
höndum saman og leita að raun-
verulegum ástæðum fólksflótt-
ans. Hver er ástæða flóttans?
Hverjum er um að kenna? Hvað
er hægt að gera til að sporna við
þessari þróun? Mér finnst stund-
um að ráðamenn landsbyggðar-
innar séu í ákveðinni vamar-
stöðu þegar þessi mál eru til um-
ræðu og festist of mikið í því að
kenna öðrum um þróunina. Nei-
kvæð umræða um breytingar
sem ættaðar eru frá hinum háu
Þad ER ódýrara
en þú heldur
að vera áskrífandi að
Austurlandi
Arteins 1470 kr. á þriggja mánaða fresti
400.- Kr. ð niðnuði eöa 122.- kr. per blaö
Brt þú áskrifandi?
Askriftarsími 477-1571
ráðuneytum eru talandi dæmi
um þetta. Fyrstu viðbrögðin eru
oftast þau að finna þeim allt til
foráttu, frekar en að skoða með
jákvæðum huga hvort ekki leynist
sóknarfæri í væntanlegum breyt-
ingum. Dæmi um þetta tel ég
vera umræðuna um Heilbrigðis-
stofnun Austurlands. Fólksflótt-
inn af Austurlandi er mál allra
Austfirðinga og við verðum að
fara að líta á hann sem slíkan.
Viðvarandi læknaskortur og
léleg þjónusta á heiibrigðissvið-
inu er eitt af vandamálum lands-
byggðarinnar. Austfirðingar eiga
að standa saman um að gera þær
kröfur til ríkisvaldsins að tryggður
verði rekstrargrundvöllur þess-
arar nýju stofnunar. Ljóst er að
til að svo megi verða þarf að
koma til meira fjármagn til þessa
málaflokks en nú er. í betra
skipulagi, samvinnu og jafnvel
samnýtingu á sérhæfðu starfs-
fólki geta falist möguleikar á efl-
ingu sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva á svæðinu. Við megum
fyrir alla muni ekki falla í þá
gryfju að engu megi breyta. Hér
á Austurlandi er þjónusta heil-
brigðisstofnana víða með ágæt-
um og ég tel að við þurfum ekki
að óttast það að sú þjónusta eigi
eftir að versna með tilkomu þess-
arar nýju stofnunar. Við eigum
að taka af fullum krafti þátt í
þeirri vinnu sem fram undan er í
skipulagi heilbrigðismála á
Austurlandi og taka þannig þátt í
að byggja upp heildstætt heil-
brigðisþjónustukerfi öllum íjórð-
ungnum til hagsbóta. Setjum
metnað okkar í að tryggja öfluga
framtíð HAUS og lítum á það
sem jákvætt sóknarfæri inn
framtíð Austurlands. Og umfram
allt, hættum þessu endalausa
svartnættisrausi og stöndum
saman um að gera fjórðunginn
sem byggilegastan.
Veríð sœl að sinni
Eru að ráðast í metnaðarfullt
nýsköpunarverkefni
Þróunarstofa Austurlands er um
þessar mundir að ráðast í metn-
aðarfullt nýsköpunarverkefni
ÞRASAÐ WÐ
ÞOKUNA
Meðal þess litla, sem Steinn Steinarr skáld lét
koma á prent eftir sig í lausu máli á sínum tíma,
eru fjórar örstuttar greinar sem birtust í blaði er
nefndist Hádegisblaðið, og kom út í Reykjavík
skamma hríð árið 1940. Þetta eru hugleiðingar um
lífið og tilveruna í herteknum bæ, fullar af
furðulegum þversögnum og óborganlegu gríni. Að
Steini látnum komu þær á ný út í litlu kveri, „Við
opinn glugga“ 1961 og loks í heildarsafni verka
hans 1982. Eg kynntist þessum ritsmíðum í
kverinu frá 1961. í þeim þótti mér slegnir neistar
þvílíkir að ég hef í rauninni ekki orðið samur
maður síðan ég las þær fyrst fyrir 37 árum, og enn
lít ég yfir þær mér til hugbótar þegar mér þykir ilia
ára í andlegum efnum og þá ekki síst til þess að
hressa mig ögn við eftir sjónvarpsdagskrána á
kvöldin. I einni þeirra stendur m.a.:
„Það er annars undarlegt hvað maður gengur
mikið í þessum heimi og ég held, að það sé ekki
fullsannað, hvað það á að þýða. Ég hef alltaf verið
á gangi frá því ég man eftir mér, út og suður, upp
og niður. Ég hef meira að segja gengið aftur á bak.
Sumir menn fara ríðandi eða akandi um allt, og
það veit enginn, hvað það á að þýða. Sennilega eru
menn að leita að hamingjunni eða vísdómnum".
Þessari ályktun fylgja svo grimmilega fyndnar
athugasemdir sem hér verður sleppt rýmisins
vegna. I annarri grein verður þessi kenning lesin:
„Það er gott að hugsa um sjálfan sig, í raun og
veru á maður aldrei að hugsa um neitt annað.
Maður á að hugsa hlýlega um sjálfan sig og með
dálítilli respekt. Þó það sé engin sérstök ástæða til
þess“.
Nú er því ekki að leyna að ég hef fengið
tilskipanir frá réttum aðilum um að ganga dálítið
mér til heilsubótar og hef reynt að fylgja þeirra
ráðum, en er á hinn bóginn svo lélegur
skipuleggjandi að mér hefur ekki tekist að koma
almennilegri reglu á þessi ferðalög, þótt ég sé
meira og minna á stjákli um göturnar héma á
Egilsstöðum á hverjum degi. Þetta er dálítið
skemmtilegt rölt en því miður engan veginn
gaman á við það að lalla á eftir rollum um mýrar
og móa eins og ég gerði meðan svo átti að heita að
ég væri nokkum veginn normal sveitamaður, en
það er mjög langt síðan.
Að kvöldlagi um vetumæturnar skrapp ég á
spássértúr eftir að hafa horft og hlýtt á einn af
þessum hugljómunarþáttum í sjónvarpinu þar sem
spámenn og spekingar eru kvaddir á vettvang til
þess að leysa eitt eða fleiri af vandamálum
þjóðarinnar, sem því miður virðist tímgast þeim
mun örar sem fleiri gefa sig fram með úræði sem
koma eiga ósköpunum fyrir kattarnef. Ég lagði
upp með það heilræð Steins í kollinum að hugsa
svolítið hlýlega um sjálfan mig, þótt til þess hefði
ég að vísu enga ástæðu enda varð útkoma
þenkinganna heldur bágborin eins og sjá má:
Ég er heldur feitur, hárlítill eldri maður
sem hökti um brautimar, stundum eilítið glaður
en oftast í fýlu eins og mér vera ber
því ástandið kvað vera bölvað á landi hér.
Ég staulast áfram stirðbusalegur í skrefi
með staf minn og hatt, en kuldafiðring í nefi
og hnerra mót vindi, bíð Herrann að hjálpa mér
en hygg mig þó vita kvumig allt saman fer.
Hvað dugar oss nú að hrópa, hrína og æja?
Hugarins akur er búið að teðja og plægja.
Lítið oss gagnast eftirá upphugsuð ráð
því upp vér skemm rétt eins og til er sáð.
S.Ó.P.
sem miðar að því að koma aust-
firskum fyrirtækjum í viðskipta-
sambönd við norsk fyrirtæki.
Verkefnið er samstarfsverkefni
Þróunarstofu Austurlands,
Rogalands Næringstjeneste og
er unnið með styrk frá Norrænu
Atlantsnefndinni, Atvinnuþró-
unarsjóði Austurlands og Roga-
iand fylki í Noregi. Hreinn Sig-
marsson alþjóðaráðgjafi Þró-
unarstofu Austurlands er um-
sjónarmaður verkefnisins á Is-
landi.
Markmið verkefnisins er að
koma á samstarfi á milii ís-
lenskra og norskra fyrirtækja.
Stefnt er að því að ávinningur
fyrirtækjanna komi fram í
aukinni alþjóðlegri samkeppnis-
hæfni, aukinni þekkingu á sviði
fyrirtækjasamstarfs, tækni- og
vömþróun, framleiðslu og al-
þjóðlegri markaðssetningu. Að
lokum beinist athyglin að því að
auka hagnað fyrirtækjanna og
draga úr rekstrarkostnaði.
Markmið verkefnisins er að
finna samstarfsfleti á milli fyrir-
tækja á Austurlandi og fyrir-
tækja í Rogalandi fylki í Noregi.
I Rogaland fylki búa rúmlega
Daglegar
ferðir
Neskaupstaður s. 477 1190
Eskiijörður s. 476 1203
Reyðarfjörður s. 474 1255
Viggó P
V öruf lutningar
Œ477 1190
360.000 manns og það einkenn-
ist af mjög fjölbreyttu atvinnu-
og mannlífi. Stavanger er höfuð-
staður fylkisins með um 106.000
íbúa. Þrátt fyrir stærðina er í
Rogaland-fylkinu einnig minnsta
sveitarfélag Noregs sem heitir
Utsira með 230 íbúa. Landbún-
aðarframleiðslan í Rogalandi er
sú umfangsmesta í Noregi bæði
þegar litið er til fjölda ársverka
og verðmætasköpunar. I strand-
bænum Egersund er stærsti fisk-
markaður Noregs en hann tók á
móti 350.000 tonnum árið 1995
og er allur afli boðinn upp á EES
svæðinu með aðstoð nútíma
samskipta og fjarskiptatækni.
Fylkið er eitt stærsta iðnaðar-
svæði Noregs og miðstöð fyrir
olíu- og gasframleiðslu. Að öðru
leyti eru opinber þjónusta auk
þjónusta einkaaðila á sviði fjár-
magns, ferðaþjónustu, vöruvið-
skipta o.fl mikilvægar atvinnu-
greinar í Rogaland fylki.
Okeypis smáar
Tapað/fundið
Lyklakippa með nokkrum
lyklum og plötu með færeyska
fánanum tapaðist í Neskaupstað.
Finnandi vinsainlega skili
henni á skrífstofu Austuríands.
Til sölu
Átta vetra, rauð meri til sölu.
Uppl. í síma 477-1191
Til sölu
33“ jeppadekk á álfelgum, nán-
ast ónotuð.
Uppl. ís. 477-1629
Tapað/fundið
Sá/sú sem tók grænan frakka í
misgripum í fatahenginu í Egils-
búð eftir Sálarshowið er vin-
samlega beðinn um að hringja í
s. 477-1428